Dýragarðsbörnin gleymast ekki.

Christiane F fæddist 1962 í Hamborg. 1978 skrifuðu tveir blaðamenn við tímaritið Stern bók um unga eiturlyfjaneytendur í Berlín. Bókin varð þekkt í allri Evrópu og kvikmynd var gerð eftir henni. Christiana hefur reynt fyrir sér sem leikkona og söngvari. Hún eignaðist son en missti forræði yfir honum. Hún byrjaði að nota eiturlyf 12 ára og var háð heróíni 14 ár. Hún seldi sig á svæðinu kringum aðaljárnbrautastöð Berlínar. Hún hefur lifað viðburðarríku lífi. Hún er andhetja og tákn heillar kynslóðar. Hún lifði og hrærðist í pönksenu Hamborgar og undirheimum Berlínar. En hún var þekkt og hitti stjörnur eins og Bowie, Cave og Ninu Hagen. Í dag er hún í methadon-meðferð. Hún hefur skrifað bók sem heitir Annað líf mitt. Bókin er skrifuð með A Vukovic. Christiane hefur stofnað sjóð sem styrkja á börn sem eiga foreldra sem eru háðir eiturlyfjum. Í Þýskalandi er áætlað að tvær og hálf milljón barna eigi foreldra sem neyta eiturlyfja.(Annað eða bæði). Opinber heimasíða Christiane er : christiane-f.com.

Ríkisstjórnin gegn velferð?

Stundum er niðurskurður hjá hinu opiinbera, fyrirtækjum og heimilum óhjákvæmilegur. Þetta er þegar þjóðarbúið verður fyrir miklum áföllum. Áður fyrr vöru fiskafurðir nánast eini útflutningur íslenskra fyrirtækja. Ekkert ál og lítil ferðamennska. Ef aflabrestur varð þarf ekki að útskýra afleiðingar. Hrun bankanna, hrun krónunnar og fjöldagjaldþrot er að sjálfsögðu mikið áfall. En áföll bitna ekki jafnt á öllum, sumir græða jafnvel og í öllum erfiðelikum felast möguleikar og lausnir. Hvað væri hægt að segja um mann sem neitar vinnu og tekjumöguleikum þrátt fyrir bága stöðu? Hvað er hægt að segja um ríkisvald sem neitar sjálfu sér um skatttekjur og tekjur af gjöldum þrátt fyrir bága stöðu? Þetta er núverandi ríkisstjórn að gera. Síðastliðið sumar rýrði hún tekjustofna sína um 12 milljarða króna með lækkun veiðigjalds og með því að hækka ekki vsk. á ferðaþjónustu. Þetta var þvert á ráðleggingar sérfræðinga og hagfræðinga. Var eingöngu tekið mark á háværum köllum sérhagsmunaaðila? Ríkisstjórnin ákvað einnig að framlengja ekki auðlegðarskatti. Fyrir þessu eru engin hagfræðileg eða lagaleg rök. Eftir hverju var farið? Hluti hópsins eru við aldur og mikið af eignum bundin en litlar tekjur; var það ástæðan. Af hverju er þá ekki sama umhyggja sýnd öðrum? Tapaðar skatttekjur eru á bilinu 10 milljarðar. Sátt og samstaða eru vinsæl orð og notuð við hátíðleg tækifæri. Samstaða verður ekki nema tekið sé tillit til lífskjara og velferðar alls almennings. Ríkisstjórnin virðist ekki vera á þeirri leið.

Ríkisstjórnarmyndun í Þýskalandi.

Kristilegir demókratar, systurflokkur þeirra í Bæjaralandi og jafnaðarmenn reyna nú stjórnarmyndun. Merkel kanslari lýsti þí yfir í podcast ávarpi að hún hefði áhuga á aukinni fjárfestingu í menntun og rannsóknum. Þetta hefur hljómað vel í eyrum jafnaðarmanna. Nú gætu þeir slakað á kröfum um skattahækkanir.  Kanslarinn hefur einnig áhuga á að lækka skuldir. Grunnur framfara og aukinnar framleiðni eru tækninýjunar að mati kanslarans. Upplýsingatækni og nettækni þarf að renna saman við hefðbundinn iðnað. Í kosningabaráttunni lögðu jafnaðarmenn áherslu á að hækka skatta tekju hárra. Hægri flokkarnir eru andvígir þessu. Aðalatriðið er að fjármagna nauðsynlegar fjárfestingar og skattahækkun er ekki markmið í sjálfu sér. Traust virðist ríkja á milli forystumanna flokkanna enda hafa þeir starfað áður saman í ríkisstjórn. Merkel vill leggja áherslu á bílaiðnað, efnaiðnað og framleiðslu vél. Þýskaland er forysturíki á þesu sviði og á að halda þeirri stöðu. Eitt setur hugsanlega strik í reikninginn. Þann 10.10. ætla fulltrúar hægri flokkanna að ræða við græningja. Þetta líkar jafnaðarmönnum ekki. Ein stjórnarmyndun í einu en ekki tvær. Þannig verður þetta að vera.

 


Guðlaugur Þór og ríkasta fólkið.

Guðlaugur Þór hefur ekki hlotið þann frama ínnan Sjálfstæðisflokksins sem hann hefur lengið stefnt að. Ekki er ljóst hvað veldur. Guðlaugur Þór er fylginn sér og vinnusamur. Hann hefur lag á að virkja fólk og fá það til starfa. Hann hefur á sínum snærum allöflugar kosningavélar eins og komið hefur í ljós alloft. Hann er einnig fjáröflunarmaður nokkur fyrir sjálfan sig og flokkinn sællar minningar. En Guðlaugur Þór er maður margra og ólíkra skoðana. Hann hefur mismunandi skoðanir eftir tímabilum á samamáli. Fer það eftir stöðu hans hverju sinni hvaða skoðun hann heldur fram. Í VB í dag er Guðlaugur þeirrar skoðunar að vinstri stjórnin hafi veitt ríkasta fólkinu 44 milljarða skattaafslátt. Lög um skattlagningu fjármálafyrirtækja voru afgreidd frá Alþingi 2010. Þar var grein um undanþágu vegna fjármálafyrirtækja í slitameðferð. Engar athugasemdir komu fram í nefndaráliti og frumvarpið var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Greidd voru atkvæði með nafnakalli og Guðlaugur Þór sagði já.  Árið 2010 sagði Guðlaugur Þór já. Það er nú gleymt og í dag er hann Hrói Höttur.

Fjárlög fyrir byrjendur.

Á hverju ári leggur stjórnarmeirihluti fram frumvarp til fjárlaga á Alþingi  fyrir næsta almanaksár. Í frumvarpinu er gerð grein fyrir áætluðum tekjum og gjöldum ríkisins, veitt er heimild til að taka lán og selja eignir. Fjárlög eru eins konar rekstraráætlun fyrir ríkið. Gerð fjárlaga er alllangt ferli. Það fer af stað undir stjórn fjármálaráðherra og ráðuneyti, ríkisstofnanir og ýmsir fleiri aðilar taka þatt í því. Á Alþingi fær frumvarpið þinglega meðferð í nefndarstarfi og umræðum. Fjárlaganefnd er ein af fastanefndum þingsins og fær frumvarpið til umfjöllunar eftir 2. umræðu. Nefndin er einnig eftirlitsaðili Alþingis gagnvart framkvæmdavaldinu. Heildarjöfnuður er heildartekjur að frádregnum heildargjöldum. Frumjöfnuður er frumtekjur að frá dregnum frumgjöldum. Frumtekjur eru allar tekjur nema vaxtatekjur. Frumgjöld eru öll gjöld nema vaxtagjöld. Fjárlögum er skipt í liði og hefur hver liður sitt númer. Fyrstu tölustafirnir tákna ráðuneyti. Ríkisreikningur er ársreikningur ríkissjóðs. Hann á að skýra rekstur og stöðu ríkissjóðs og stofnana ríkisins. 

Er týndur áratugur framundan?

Eftir kreppuna í Japan 1990 tók við langt tímabil stöðnunar sem nefnt var týndi áratugurinn. Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins er spurt hvort Ísland sé nú í sömu stöðu? Lítil arðsemi og framleiðni einkennir mörg fyrirtæki. Hlutur lífeyrissjóða í eignarhaldi hefur vaxið frá hruni. Stöðnun ríkir og fjárfestingar eru ekki umfram aðskriftir. 2007 voru fyrirtæki í öllum greinum mjög skuldsett og hátt hlutfall lána í erlendri mynt. Eiginfjárhlutfall var almennt mjög lágt. Við hrunið varð staðan óviðráðanleg. Eiginfjárhlutfall hrundi,hlutfallið skuldir ebitda margfaldaðist og fjármagnsliðir sömuleiðis. Hagur útflutningsgreina hefur vænkast eftir hrun en innlendar þjónustugreinar eiga í vandræðum. Meirihluti fyrirtækja er nú með arðsemi undir 10% og þriðjungur er með arðsemi undir stýrivöxtum. Að öðru jöfnu ætti eigiðfé þeirra að rýrna á komandi árum. Dreifing á arðsemi er óvenjulega mikil. Mörg fyrirtæki hafa alltof litla arðsemi og mörg mjög mikla arðsemi. Í grófum dráttum má skipta fyrirtækjum í tvennt. Fyrirtæki í auðlindageiranum ganga vel en illa gengur hjá fyrirtækjum í innlendum þjónustugeira. það segir sína sögu að á arunum 2009 til 2012 voru fjárfestingar minni en árið 2007. Framtíðin er óráðin. Með rangri efnahagsstefnu er hætta á langvarandi stöðnun hér eins og varð í Japan. Með réttri stefnu er hægt að styrkja batann og koma Íslandi úr því öngstræti sem landið er lent í. 

 


Skuldir ríkisins og arðgreiðslur.

Í lok ágúst voru skuldir ríkisins 1.459 milljarðar króna eða 85% af vergri landsframleiðslu. Þar af voru erlendar skurldir 402 milljarðar. Peningalegar eignir ríkissjóðs nema 578 milljörðum króna. Ríkissjóður á talsverðar eignir í fjármálafyrirtækjum , 98% í Landsbankanum, 13% í Aríonbanka, 5% í Íslandsbanka, meirihluta í 4 sparisjóðum og auk þess á ríkið Íbúðalánasjóð og Byggðastofnun. Undanfarin ár hefur eiginfjárhlutfall bankanna hækkað verulega. Færa má rök að því að eiginfjárhlutfallið sé óþarflega hátt. Að öðru jöfnu ætti að vera svigrúm fyrir auknar arðgreiðslur. Eign gefur af sér arð en seld eign gefur ekki af sér neinn framtíðararð. Það er því reiknidæmi fyrir ríkissjóð hvort og hve mikið er rétt að selja. En það er einnig spurning um pólitíska stefnu. 

Launalausir bandarískir ríkisstarfsmenn sendir heim...(1)

Frá 1. 10 hafa 800 þúsund bandarískir ríkisstarfsmenn verið launalausir og dvelja heima. Þrátefli stjórnmálaflokkanna veldur þessu einkennilega ástandi. Þessi undarlega staða hefur margvíslegar afleiðingar. Það hægir á hagvexti um 0.1%. Ef ástandið varir í viku verða áhrifin um 0.3%. Það hafa lengi verið ákveðin mörk sem gilda um lántökur og skuldsetningu alríkisstjórnarinnar. Bæði fulltrúadeild og öldungadeild verða að samþykkja breytingar. Nú er Obamacare orðið að bitbeini milli stjórnmálaflokkanna. Þetta er hættulegur leikur. Alríkið er stór og mikilvægur lántalandi á alþjóðlegum mörkuðum. Ástandi getur leitt til verri skilyrða á fjármálamarkaði eða mikil niðurskurðar hja ríkinu. Ekki er líklegt að það gerist. Repúblíkanar í fulltrúadeildinni munu semja en teboðsfólkið ætlar að ganga eins langt og hægt er. Teboðsfólkið óttast að umbætur Obama séu skref í átta að evrópskum  sósíalisma og velferðarríki! Skelfilegra getur það nú ekki orðið! Bandarískt heilbrigðiskerfi er ákaflega dýrt en það er óskilvirkt. Lífslíkur eru lægri en í flestum ríkjum Evrópu og barnadauði hærri. Tillögur Obama fela í sér mikilvægar breytingar. Nú er ekki hægt að neita fólki um sjúkratryggingar á grundvelli sjúkrasögu þess eða láta fólk borga meira vegna sjúkrasögu.

Rauða kverið kemur aftur.

Byltingin er ekki teboð skrifaði Mao formaður og í dag er þessi setning enn vinsæl hjá Kínverjum. Nú á að gefa Rauða kverið út aftur í þremur mismunandi útgáfum. Viðhafnarútgáfan mun kosta sem svarar 40 þúsundum íslenskra króna. Chen Yo heitir útgefandinn og hann kennir í herskóla í Peking. Rauða kverið var til í bókahillum 68-kynslóðarinnar. Á ensku var hún kölluð little red book álíka og little black dress. Á tímum menningarbyltingar í Kína var algerlega nauðsynlegt að hafa Rauða kverið á sér. Það var fylgst með því að stúdentar væru með bókina á sér og það þótti eftirsóknarvert að kunna utanað greinar og geta vísað í blaðsíðutal. 1964 var Kverið fyrst gefið út og 1968 var upplagið orðið einn milljarður eintaka. Aðeins Biblían hefur betur. Lin Pio stýrði útgáfu en hann féll í ónáð snemma á 8. áratugnum. Eftir dauða Mao 1976 var bókin ekki endurútgefin. Það er vaxandi áhugi á Mao og valdatíma hans í Kína í dag. Gamlir byltingarsöngvar heyrast og söguleg leikrit eru sett á svið. Kína er mesta iðnaðarríki heimsins en auðvitað ekki kommúnískt samfélag í skilningi Karl Marx. Kannski boðar útgáfa Rauða kversins að ný-maoistar séu að eflast?

Helblá ríkisstjórn í Noregi.

Loksins er það ljóst að Framafaraflokkurinn og Hægri munu mynda stjórn. Venstre og Kristilegi þjóðarflokkruinn ætla að styðja stjórnina og vinna með henni að einhverju leyti. Það er hins vegar óljóst á hvern hátt samvinnan mun binda flokkana tvo. Það er ákveðið að hafa samráð allra flokkanna um mikilvæg mál en það er engin skuldbinding að styðja t.d. fjárlagafrumvarpið. Það er ljóst að Venstre og Kristielgi þjóðarflokkurinn ætla sér að hafa margvísleg áhrif. Allar tillögur Framfaraflokksins munu verða ræddar á samráðsfundum allra flokkanna og á þeim vettvangi er hægt að sníða af þeim verstu vankanta. Fjölmörg hagsmunasamtök bíða nú þess sem koma skal. Í samstarfsyfirlýsingu flokkanna er fjallað mjög stuttaralega um landbúnað. Merkir þetta að niðurskurður styrkjakerfis sé á dagskrá? Vinnumarkaðsmál eru varla nefnd á nafn í yfirlýsingunni. Ætlar hægri stjórnin að breyta vinnumálalöggjöfinni? Afnema réttindi? Komandi mánuðir og ár munu veita svar við þessu.(klassekampen.no)

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Okt. 2013
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband