25.12.2013 | 14:12
Páfinn og nýfrjálshyggjan eða talsmenn ríka fólksins taka til varna.
Þýska stórblaðið Die Welt bendir á það að bankastarfsmenn séu líka manneskjur. Ekki eru allir ríkir hamingjusamir og heilsuhraustir og ekki eru allir fátækir góðir menn. Guð gerir ekki greinarmun á fólki. Það er ekki til hástétt, millistétt(sic) og lágstétt. Jesus sneri sér til þeirra sem voru hataðir og fyrirlitnir á hans dögum,tíma Rómarveldis. Hann talaði við fátæklinga, betlara, þræla og vændiskonur. Kristin kirkja hlýtur að gera það sama í samtímanum. Hún reynir vernda fátæklinga, innflytjendur, fanga og í mörgum löndum samkynhneigt fólk. Kirkjan skilur þá ekki eftir og yfirgefur en öll verðum við að ganga í gegnum hreinsunareldinn samkvæmt guðfræði kaþólskra. En hvað um bankamennina og hina ríku? Er þeim útskúfað? Í Hirðisbréfi sínu Evanigeli gaudium segir Frans páfi að félagslegt óréttlæti sé illskan kristölluð. Það er markaðskerfi segir páfinn sem þaggar niður í fátækum og en leyfir hinum ríku að lifa í lúxus í sálarró og án samviskubits eða samúðar með þeim sem minna hafa. Þetta kerfi er illskan komin til jarðarinnar. Þetta finnst þýska blaðinu Die Welt ekki gott. Hvernig er hægt að tengja hamingjuna eingöngu við efnahagslega afkömu. Blaðið tínir einnig til greinar í Nýja Testamentinu þar sem eign og hyggindi eru ekki fordæmd. Margir milljarðamæringar gefa miklar gjafir. Gaf ekki Bill Gates sem á kaþólska konu helming eigna sinna og styður þróunarstarf með miklum fjárframlögum? Hvað með Bono og alla hans tónleika?En eru gráðugur bankamenn illskan í sjálfu sér? Geta þeir ekki verið villuráfandi sálir og hugsanlega fundið sannleikann og kærleikann? Hverju skyldi Frans páfi svara? Guð elskar alla menn og allir menn hafa verið börn í huga guð. En mennirnir hafa frelsi og bera ábyrgð á eigin lífi. ---Sögulega séð hefur ávallt verið nokkur spenna milli ráðandi afla í markaðskerfinu og kaþólsku kirkjunnar. Siðfræði mótmælenda fellur mun betur að markaðskerfinu. Kenningar Kalvíns , svo dæmi sé tekið falla algerlega að markaðskerfinu. Auður og veraldleg velgegni eru vísbendingu um að viðkomandi sé útvalinn til eilífs lífs í himnaríki. Hann hefur orðið náðarvalsins aðnjótandi.
25.12.2013 | 10:48
Hagfræðingar sem mærðu bankana á Íslandi og allir hinir.
Spádómsgáfa er takmörkuð auðlind og ætti þess vegna að vera mjög verðmæt. Mikið framboð er á spásögnum og hagspám. Hagdeildir bankanna, Seðlabankinn, hagdeild ASI og Hagstofan eru dæmi um aðila hér á landi sem setja fram hagspár með misjöfnum árangi. Af því að spár ganga venjulega ekki eftir að það auðveldur leikur að nota misheppnaðar spár gegn mönnum seinna. Vegna jólahátíðar munum við halda okkur við útlönd með dæmi. Í september 2007 sagði David Cameron(en hann varð stuttu seinna forsætisráðherra) í ræðu við LSE. " Hagkerfi heimsins er nú stöðugra en verið hefur í margar kynslóðir. Fjármálamarkaðir eru háþróaðir og nota sér nútíma hugmyndir". það sama ár sagði Lord King(bankastjóri Englandsbanka):"Það eru engir möguleikar á almennum samdrætti. kannski breytingar á einum ársfjórðungi en það er allt og sumt." Í október 2008 sagði Elísabet drottning Englands í ræðu við sama skóla og Cameron :"Hvers vegna sá enginn kreppuna kom?" Í september 2008 sagði Donald Luskin (eitt helsta gúrú í bandarískum fjárfestingaheimi)." Þeir sem halda því fram að kreppa sé framundan spinnur upp sínar eigin skilgreiningar á kreppu."Í júni 2007 sagði Gordon Brown( þá forsætisráðherra):" Ný gullöld blasir við City of London". Árið 2003 hélt Robert Lucas( einn helsti fulltrúi nýklassískrar hagfræði) ræðu á þingi samtaka bandarískra hagfræðinga. Hann sagði:"Öll mikilvæg vandamál varðandi það að koma í veg fyrir kreppu hafa verið leyst."(Michael Roberts Blog)
24.12.2013 | 11:42
Stríðið í Sýrlandi heldur áfram; ofbeldi, hungur og kaldur vetur.
Stjórnarhermenn, uppreisnarmenn og islamistar berjast af miskunnarlausri hörku. Þótt athygli fjölmiðla heimsins beinist ekki að stríðsátökum breyti það ekki veruleika hinna stríðshrjáðu og þjáðu. Á síðustu vikum hefur stjórnarherinn gert árásir með þyrlum á borgina Aleppo. Sprengjurnar sem varpað er niður sprengja, kveikja í og dreifa málmbrotum um allt. Síðan 15. desember hafa 300 látist þar af mörg börn. Í Sýrlandi er háð blóðugt og grimmilegt borgarastríð. Að undanförnu hefur athygli heimsins beinst að efnavopnum og eyðingu þeirra. Það hefur engu breytt um gang stríðsins. Um stundarsakir hafði einræðisherran Assad betur í áróðurstríðinu. Eftir stríð í 34 mánuði er Assad enn við völd og verður það afar líklega áfram. Menn óttast óvissuna semtæki við ef hann léti af völdum. Í september munaði minnstu að Obama hefði fyrirskipað loftárásir á mikilvæg skotmörk stjórnarhersins. Nú er komin upp ný staða. Tvær hreyfingar berjast gegn stjórnarhernum; uppreisnarmenn sem studdir eru af Sádum og íslamistar sem njóta stuðnings Qaida. Eitt skortir ekki í þessu stríði,þ.e. aðila sem útvega eða selja vopn. Þrír stríðandi aðilar sem allir berjast gegn öllum. Engin bandalög. 22 milljónir sýrlendinga eru öðrum háðir um aðstoð. Um mat og lyf. 3 milljónir hafa flúið úr landi og 6 milljónir eru á flótta innanlands. Skólakerfi Sýrlands þótti bera af í arabískum heimi. Nú er það ekki lengur til. 4.8 milljónir barna ættu að vera í skóla en mikill meirihluti gerir það ekki. Heil kynslóð er að glatast. Í héruðum Kúrda í norðaustur Írak hafa SÞ komið upp mikilli stöð með hjálpargögnum. Þaðan á að dreifa þeim til Sýrlands.
23.12.2013 | 21:26
Jólanóttin í þjóðsögum og þjóðtrú.
Það er algengt stef í þjóðsögum að karl eða kona verði að dvelja ein á bænum á jólanóttu. Þá gátu álfar birtst eða huldufólk og haldið sín jól. Í Eyrbyggju birtast drukknaðir sjómenn á Fróðá og setjast að drykkju. Það er einn hluti hinna mögnuðu Fróðárundra.Grettir glímdi við Glám hinn sænska á jólum. Þjóðsagnaminni um álfkonu er tengt jólum. Þræði þjóðsögunnar má lýsa svona með einfölduðum hætti. Óþekkt kona kemur á sveitabæ og gerist vinnukona. Á jólum þegar allir ganga til messu er hún ein á bænum. Ef einhver er hjá henni deyr hann skömmu síðar. Hugrakkur maður njósnar um konuna. Hann sér hvar hún gengur inn í bjargið og er fagnað af álfum. Hildur álfadrottning, svo notað sé þekkt nafn, dansar á jólanótt en hugrakka manninum tekst að ná í grip til sönnunar. Daginn eftir segir hann bónda alla söguna en álfadrottningin hverfur til álfheima og er laus úr álögum. Þessi söguþráður er til í margvíslegum breytilegum útgáfum.
23.12.2013 | 19:04
Þýskaland: ríkisstjórnarflokkar deila um mansal og dvalarrétt.
Jafnaðarmenn og hægri flokkarnir deila nú um túlkun á stjórnarsáttmála. Fyrsta málið var um lágmarkslaun og hvort þau ættu að gilda án undantekninga. Annað málið snýst nú um rétt kvenna sem þvingaðar hafa verið til að stunda vændi til að dvelja í landinu eftir málsmeðferð og réttarhöld. Í stjórnarsáttmálanum segir að vernda eigi konur sem hafa orðið fórnarlömb mansals. Ung rússnesk kona hefur ekki séð ættjörð sína í mörg ár. Hún var seld til Þýskalands og þvinguð til að stunda vændi. Hún er tekin föst vegna ólöglegra skilríkja. Í fangelsi segir hún félagsráðgjöfum sögu sína. En fyrir rétti vill hún ekkert segja vegna ótta. Hún óttast um eigið líf eða öryggi fjölskyldu sinnar í Rússlandi. Ef konan segir ekki frá fyrir rétti og ber vitni er ekki hægt að ákæra þá sem seldu hana til Þýskalands. Konunni verður því að veita réttaröryggi og dvalarleyfi í Þýskalandi. Þetta verður að gilda fyrir þá sem standa utan ESB; þessi er skoðun lögfræðinga hjá stofnun um mannréttindi. Eva Högl sem er lögfræðingur og jafnaðarmaður segir að konan eigi að fá dvalarleyfi í Þýskalandi án þess að vitna fyrir rétti. Hans Peter Uhl úr flokki Merkel kanslara er þessu ekki sammála. Konan verði að taka virkan þátt í réttarhaldinu til að öðlast réttarvernd og dvalarleyfi. Flokkarnir takast á um öll atriði málsins. Er til nægilegt fjármagn til að sinna ráðgjöf fyrir konurnar? Vændiskonur sem hafa verið seldar mansali fá oft ekki nægjanlega læknisþjónustu. Þær hafa ekki rétt á að fá börn sín frá heimalandi sínu til Þýskalands. Konurnar hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi en einnig andlegu. Sagt er við þær: við vitum hvar börnin þín eru og hvar fjölskyldan býr.... Ef ofbeldisverkin koma til kasta dómstóla er konunum dæmdar skaðabætur. Í Hollandi er reglan sú að hafi hinn dæmdi ekki borgað inna 8 mánaða greiðir hið opinbera konunni. Upphæðin getur numið allt að 100000 evrum. Ákvörðun um þetta atriði er í höndum jafnaðarmanna.
23.12.2013 | 10:30
Sinnir kirkjan trúarþörf manna?
Mannfræðin og sögurannsóknir sýna okkur að maðurinn hefur djúpa þörf fyrir hið yfirnáttúrulega og að skynja hið yfirskilvitlega í veruleikanum. Menn óttast æðri mátt og það sem er fyrir handan. Hefðir krikjunnar eru hins vegar kaldar og sérteknar. Þær virðast ekki snerta fólk. Alls konar hjátrú er hluti af daglegu lífi fólks og lifir góðu lífi þrátt fyrir upplýsingu og vísindi.( 7, 9, 13, og svartir kettir, hæð númer 13,,,) Málverk seljast á stjarnfræðilegar upphæðir, norskar prinsessur reka skóla sem kenna fólki að tala við engla en krikjusókn minnkar. Hjá kaþólikkum er trúarþörfinni sinnt á myndrænni og nærtækari hátt en hjá mótmælendum. Maríudýrkun og messuformið benda til þess. Guðfræðin er þurr og fjarlæg daglegu lífi fólks. Guð kristinna manna er illskiljanlegur; hann er einn og þríeinn, allsstaðar og eilífur og almáttugur. Og hann er lika kærleikur. Skapari tíma og rúms. Stór hluti Íslendinga veit lítið um kenningar Þjóðkirkjunnar. Í Buddadómi er enginn guð en Búdda sjálfur verður þá guð á sama hátt og María guðsmóðir er tilbeðin hjá kaþólikkum. Kirkjur eru skipulagðar stofnanir að hætti regluveldis. Þær eru ekki helsti eða besti vettvangur trúarreynslu og trúarlegrar upplifunar. Jakki Michaels Jackson var sleginn á nærri 2000000 dollara 2011. Jakkinn er trúartákn eða blæti. Hann er talinn búa yfir töframætti. Tebolli sem Lady Gaga drakk úr á tónleikaferð til Japans seldist á 58000 evrur á online uppboði. Augun hafa mátt. Margir telja sig skynja augnaráð. Þetta á rót sína að rekja til miðalda. Til hliðar við krikjur og kenningar þeirra lifir margvísleg trú góðu lífi.
23.12.2013 | 07:48
Þorlákur helgi og Þorláksmessa.
Þorlákur helgi Þórhaldsson er verndardýrlingur Íslands samkvæmt ákvörðun Stjórnardeildar sakramenta og guðsdýrunar í Páfagarði. Þessa ákvörðun samþykkti Jóhannes Páll 2 í janúar 1984. Þorlákur helgi var prestur, munkur, ábóti og biskup í lifanda lífi. Hann var strangtrúaður og heittrúaður og vildi efla vald kirkjunnar sem stofnunar á sinni tíð. Hann vildi bæta siði presta og almennings. Meðan hann var biskup í Skálholti hélt hann í öllu daglegum háttum kanokareglu. Til eru Jarteinabækur Þorláks helga og enn eru sungnar Þorlákstíðir. Þorlákur helgi var mjög lærður maður í guðfræði. Hann dvaldi áratug í París og Lincoln og nam guðfræði. Mikill átrúnaður var á Þorláki helga hér á landi.Í Færeyjum tók hann á sig mynd jólaveins í þjóðtrú. Þorlákur lést 23. 12. 1193 og var árið 1199 messudagur tekinn upp honum til heiðurs og lögleiddur. Í lútherskum sið er lítið um helgihald á Þorláksmessu. Sumir vitja leiði ástvina sinna.
22.12.2013 | 19:45
Stóra glærusýningin mistókst; hvað varð um heimsmetið?
Búið var að tillkynna um heimsmet í skuldaleiðréttingum. Nefnd undir formennsku stærðfræðidoktors fékk það hlutverk að útfæra hugmyndir. Seint og um síðir var skýrslu skilað og mikil sýning var sett á svið. Spunameistarar og almannatenglar höfðu unnið baki brotnu. Ráðherrar fluttu stutt ávörp. Stærðfræðidoktorinn hélt mikla og flotta glærusýningu.Glærurnar voru flottar. Dæmin voru líka flott en það vantaði innihald og það sem mestu máli skipti; fjármagn.Upphófust nú miklir útreikningar vítt og breitt um þjóðfélagið. 300 milljarðar urðu skyndilega 60 milljarðar. Heimilin í landinu urðu skyndilega útvalin heimili. Og hver er nú niðurstaðan? Kjósendur láta sér fátt um finnast skv nýjustu skoðanakönnun Gallup. Helsta breytingin er að Píratar(sic) bæta við sig 2%! Eftir heimsmetið er stjórnin með 48% fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi. Framsókn er nú 9% minna fylgi en hún fékk í kosningum. Hvernig væri nú að reyna aftur við heimsmet?
22.12.2013 | 19:27
Þýskaland; deilur um lágmarkslaun milli stjórnarflokkanna.
Horst Seehofer (CSU) vill gera undantekningar varðandi lágmarkslaun. Vinnumálaráðherrann Andrea Nahles(SPD) er á annarri skoðun. Seehofer vill gera undantekningar varðandi lærlinga og ellilífeyrisþega. Ráðherra efnahagsmála í Bæjaralandi hefur einnig lýst sömu skoðun. Með þessu ganga þau gegn stjórnarsáttmálanum. Bæði segjast þau óttast að lágmarkslaun án undantekninga muni fækka störfum. Í stjórnarsáttmálanum er sagt að 8.5 evrur á tímann eigi að vera lágmarkslaun í öllu landinu í seinasta lagi árið 2017. Nahles hafnar hugmyndum Seehofer algerlega. Þann 1.1.2017 verða lágmarkslaun í landinu 8.5 evrur ef ekki verður stjórnarsamstarfinu lokið. Seehofer telur sjálfan sig sveigjanlegan (sic). Í kosningabaráttunni hafnaði hann algerlega skattahækknum en samþykkti síðan skattahækkanir í stjórnarsáttmála.
21.12.2013 | 19:24
Er vændi líka vinna?
Ef vændi er bannað með lögum hverfur það ekki. Það sem verra er; ofbeldi og kúgun virðast aukast. En hvað er þá til ráða? 28 dollara á tíman gátu götumellur í Chicago þénað fyrir nokkrum árum. Þetta kom fram í rannsókn tveggja hagfræðinga. Þetta voru fjórum sinnum hærri laun en ófaglærðir gátu fengið á sama tíma. En þetta var ekki fengið með sitjandi sældinni. Í 300 skipti á ári að meðaltali urðu konurnar að hafa samfarir án þess að nota verjur. 12 sinnum á ári urðu þær fyrir ofbeldisárás. Reglulega tók lögreglan þær fastar þar sem vændi er ólöglegt. Til þess að losna við handtöku urðu konurnar að hafa samfarir við lögreglumenn án borgunar. En hvernig er hægt að skapa markað fyrir vændi þar sem konurnar eru lausar við ofbeldi og kúgun? Af margvíslegum ástæðum,m.a. siðferðilegum er erfitt að fá áreiðanlegar upplýsingar um raunverulega markaði. Það virðist ljóst að bann gerir vændi hættulegt. Upplýsingar verða bjagaðar. Vændiskonurnar vita ekki hversu áreiðanlegir kaupendur vændis eru. Viðskiptavinirnir hafa bjagaðar upplýsingar um hversu góðar vændiskonurnar eru. Slíkar aðstæður eru heppilegar fyrir melludólga. Þeir veita konunum ákveðna vernd og öryggi sem leiðir til þess að þær geta sett upp hærra verð. Melludólgarnir velja viðskiptavinina og útvega húsnæði. Óvissa vegna skorts á upplýsingum verður minni fyrir konurnar. Vændiskonur geta einnig tekið að hlutverk melludólga. Fylgdarkonur í New York notuðu t.d. heimasíðu til að vara hver aðra við svikulum og ofbeldisfullum vændiskaupendum. Ef vændi er bannað geta vændiskonur ekki snúið sér til lögreglu ef á þeim er brotið. Þannig skapar bannið kerfi valds og varnarleysis. Það að lögleyða leysir ekki öll vandamál. Sum vandamál verða mun erfiðari. Reynsla Þýskalands sýnir að vændismarkaðurinn verður mun stærri en kúgun vændiskvenna einnig meiri.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar