Vændi á Íslandi.

Vændi hér á landi á sér langa sögu. Vændi hefur lengst af verið lokaður heimur sem skýrist af fámenni þjóðarinnar og ríkum hagsmunum til þöggunar. Við slíkar aðstæður er sá sem selur aðgang að líkama sínum í  sérstaklega erfiðri aðstöðu. Í nútímanum er vændi nátengt mansali. Mansal getur falið í sér frelsissviptingu, kúgun, flutning milli landa og "hagnýtingu" í kynferðislegum tilgangi.  Gerð var skýrsla um vændi á Íslandi 2002. Eldri vændiskonur höfðu fastan kunnahóp og vændið helst stundað í heimahúsum. Skýringar kvennanna var að þetta væri gert til að ná endum saman fjárhagslega. Götuvændi var talið lítt sýnilegt en tengdist oft vímuefnaneyslu eða heimilislausum einstaklingum. Í sömu skýrslu var fjallað um nauðarvændi unglinga. Greiðsla er ekki bundin við peninga heldur einnig húsaskjól, mat, vímuefni og ýmislegt annað. Vændisviðskipti geta  átt sér stað innan sama  vímuefnahópsins.  Skipulegt vændi er þegar þriðji aðili hefur milligöngu um vændi og tekur hluta af innkomu. Skipulagt vændi getur verið með mismunandi hætti t.d. vændi sem tengist nektarstöðum eða að melludólgar leigi út "vinkonur" sínar. Samkvæmt skýrslunni var geðheilsa þeirra sem stunduðu vændi ekki góð; kviði, þunglyndi, sjálfsvígshugsanir og lágt sjálfsmat. Vonleysi, ótti  við ofbeldi og vanlíðan einkennir tilveruna. Mjög stór hluti þeirra sem stunda vændi hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi í barnæsku. Marga hefur skort umsjón og eftirlit í uppeldi. Kynferðisofbeldi í æsku hefur langvarandi áhrif á sálarlíf þolandans. Samkvæmt lögum frá árinu 2009 eru kaup á vændi ólögleg á Íslandi. Ýmsar aðgerðir eru gegn vændi á Íslandi. Samtökin Stóra Systir voru stofnuð 2011. Samtökin hafa verið mjög gagnrýnin að aðgerðarleysi stjórnvalda sem er áberandi að þeirra mati. Kristínarhús var stofnað 2011. Stígamót stofnuðu húsið er er það athvarf fyrir fórnarlömb mansals og vændis. 

Starfsfólk skyndibitastaða í verkfalli.

Sumt er fyrirferðamikið í fréttum en annað ekki. Á hverjum degi eru stjörnur Hollywood í fréttum. Við fáum að fylgjast með hversdagslegum hlutum í lífi þeirra. Líf annarra er ekki jafn fréttnæmt að mati fjölmiðlanna. Í 60 borgum USA hafa starfsmenn skyndibitastaða háð baráttu fyrir hækkun lágmarkslauna. Þau eu nú 7.25 $ en krafan er að þau verði 15$ á klukkustund. Starfsfólk McDonald, Burger King, Wendy , KFC og Taco Bell krefjast auk hærri launa einnig rétt til að mynda stéttarfélög. Í Detroit eru starfsmenn skyndibitastaða um 53 þúsund. Starfsfólk skyndibitastaða er láglaunahópur sem á erfitt með að ná endum saman. Sumir verða að fá matarmiða(aðstoð) til að það takist. Laun 25% allra á vinnumarkaði eru 15$ eða minna á tímann. Þessi hópur fær margvíslega fjárhagslega og félagslega aðsoð. Nái krafan um 15$ á tímann fram að ganga gætu árslaun orðið 31200 $. Röksemdir vinnuveitenda eru hefðbundnar. Kauphækkanir munu leiða til hærra verðs á vöru og þjónustu, minnkandi eftirspurnar og uppsagnar starfsfólks. Almennt virðist vera stuðningur meðal almennings við kröfur starfsmanna. Laun þeirra eru lág og hópurinn hefur dregist aftur úr. 

Einvígi Merkel kanslara og Steinbruck kanslaraefnis jafnaðarmanna.

Á sunndagskvöld er sjónvarpseinvígið og stendur í einn og hálfan tíma. Mikið er í húfi fyrir jafnaðarmenn. Flokkur kanslarans hefur talsvert forskot sem erfitt er að vinna upp. Búist er við að áhorfendur verði um 20 milljónir og undirbúningur aðstoðarmanna hefur staðið yfir á fullum krafti. Þrjár vikur eru til kosninga. Nú þarf að efla samstöðuna og vinna óákveðna á sittband. Sjónvarpssendingin sjálf er skipulögð í smáatriðum. Ræðupúltin er á ákveðnum stað. Staðsetning myndavéla og myndskeið eru fyrirfram ákveðin. Það er mælt uppá sekundu svo ræðutíminn verði jafn. Spurningum stjórnenda á að svara á einni og hálfri mínúndu. Engin minnisblöð eru leyfð. Aðeins autt blað og penni. Merkel kemur vel fyrir. Hún er róleg, yfirveguð og móðurleg. Steinbruck nýtur ekki sömu vinsælda og Merkel. Hann hefur ekki sömu útgeislun og er álitinn dæmigerður technókrati. Merkel kanslari þykir ekki góður ræðumaður og orðræðan þykir sérkennileg. Steinbruck er afar góður ræðumaður og getur verið hvassyrtur.  Honum hættir til að tala eins og sá sem veit betur(Besserwisser) en ætti að ráðum konu sinnar að tala meira frá hjartanu. Stefna stóru flokkanna er áþekk að flestu leyti í skattamálum. Jafnaðarmenn vilja hærri skatta á tekjuháa og meiri fjármuni í menntun og stuðning við barnafólk. Efnahagsástandið í Þýskalandi er að mörgu leyti gott og það er Merkel hagstætt.

Messað yfir atvinnurekendum.

Aðalhagfræðingur Seðlabankans hélt fyrirlestur hjá Félagi atvinnurekenda 29. 8. 2013. Yfirskriftin var eðlilega þróun og horfur í efnahagsmálum. Batinn nú er hægari en á fyrri sambærilegum skeiðum. Stærðargráða hrunsins og erfiðleikar í Evrópu skýra það. Hér varð bankakreppa og gjaldeyriskreppa en slíkar kreppur eru djúpar og vara lengi. Botni náði íslenska hagkerfið snemma árs 2010 og síðan þá hefur batinn verið hraðari en hjá helstu viðskiptalöndum í Evrópu en hægari en í USA. Í mörgum þróuðum ríkjum eru hagvaxtarhorfur mjög litlar og líkur á samdrætti hjá nokkrum ríkjum. Fjárfestingarstig hér á landi er mjög lágt í sögulegu samhengi en hefur þó hækkað frá botni 2010. Fyrir hrun var fjárfestingarstig mjög hátt en einnig almenn skuldsetning. Þetta er eitt af því sem skýrir mjög litlar fjárfestingar eftir hrun. Góðar fréttir eru nú af vinnumarkaði ; atvinnuleysi minnkar, fólki í fullu starfi fjöldar, vinnutími lengist,fleiri flytjast til landsins en frá því og stórt hlutfall þeirra sem hverfa af atvinnuleysisskrá hverfa til launaðrar vinnu. Hins vegar eru slæmar fréttir af verðbólgu; hún er að hækka og horfur eru fremur slæmar. Laun hafa hækkað umfram framleiðni sem að öðru jöfnu ýtir undir verðbólgu. Raunvextir Seðlabankans eru nú 2%. Neikvæðir raunvextir árið 2011 lækkuðu fjármagnskostnað ríkissjóðs. Vextir hér á landi eru háir í alþjóðlegum samanburði vergna hárrar verðbólgu og verðbólguvæntinga. Miðað við lönd með álíka verðbólgu eru vextir hér lágir.(Stuðst við glærur á heimasíðu Seðlabanka Íslands.)

Hvað er fasismi?

L W Britt rannsakaði fasisma í Þýskalandi, Spáni, Portúgal, Grikklandi, Chíle og Indónesíu. Hann rannsakaði þann tíma sem fasistar voru að völdum í þessum löndum. Hann taldi sig finna 14 sameiginleg einkenni. Þau eru : 1)öfgafull og stöðug áhersla á þjóðernisstefnu. Viðhorf til útlendinga nálgaðist vænissýki og mikil áhersla lögð á heiður og hermensku. 2) lítisvirðing fyrir mannréttindum og sérstaklega réttindum minnihlutahópa. 3)óvínir og sökudólgar kerfisbundið búnir til í þeim tilgangi að sameina þjóðina. 4) valdakjarninn var nátengdur her og hermennsku. Mikil áhersla á að styrkja herinn. 5) karllæg viðhorf ríkjandi. 6) Fjölmiðlar algerlega undir stjórn valdahópsins. 7) þjóðaröryggi varð að þráhyggju. 8)náið samband valdakjarnans og kirkjunnar eða kirkjudeilda. 9) stórfyrirtæki fengu afgerandi stöðu í hagkerfinu. 10) ofuráhersla/þráhyggja varðandi glæpi og strangar refsingar. 11) kerfisbundin spilling og sjálftökukerfi valdakjarnans. 12) sýndarkosningar haldnar. 13) verkalýðsfélög brotin niður og starfssemi bönnuð. 14) fyrirlitning á menntamönnum og listum.  Tíminn milli heimsstyrjaldanna er venjulega talið söguskeið fasismans. Hann var endanlega sigraður af bandamönnum. Eftir stríð hafa margvíslegar nýfasískar hreyfingar og öfgahreyfingar til hægri komið fram. Þær hafa nokkur af þessum einkennum en önnur ekki. (stuðst við L W Britt í Council for Secular Humanism.)

Er vandinn of stór fyrir félagsmálaráðherra?

Öllum er ljóst að gífurlegur vandi hefur skapast á húsnæðismarkaði eftir Hrun. Íbúðasjóður og bankar hafa tekið til sín mikinn fjölda íbúða frá einstaklingun auk fasteigna frá lögaðilum. Fyrir hrun var byggt og framkvæmt af ofurkappi og taumlausri græðgi en engin þörf var fyrir hluta þess sem byggt var. Um allt land standa nú auðar íbúðir í eigu Íbúðalánasjóðs sem eru ýmist í söluferli eða ónothæfar og drabbast niður. Á sama tíma er mikill skortur á húsnæði á höfuðborgarsvæðinu og leiguverð rýkur í hæstu hæðir. Það dapurlega er að þetta ástand hefur verið yfirsjáanlegt í langan tíma. Í viðtali á rás2 sagði ráðherra félagsmála og húsnæðismála að úrlausn vandans sé ekki öll á herðum stjórnmálamanna. Ráðherrann bindur vonir sínar einkum við aðkomu stéttarfélaganna( ASI/BSRB) og bendir réttilega á að þau sinni nú þegar afar mikilvægum verkefnum og geti hæglega bætt húsnæðismálum á sína könnu. Ráðherann hlýtur að vera að meina að t.d. ASI eigi að hafa áhrif á stefnumótun í þessum málum en ekki eingöngu að hafa hugsanlega áhrif á fjármögnun bygginga. Í byrjun þessa árs kynntu forystumenn ASI mjög ítarlega hugmyndir sínar í húsnæðismálum. Segja má að þeir sæki stefnumótun sína einkum til félagslega húsnæðiskerfisins í Danmörku. Áherslur verkalýðshreyfingar hafa því lengi legið fyrir. Ef að líkum lætur er félagsmálaráðherra opinn fyrir hugmyndum samvinnumanna eins og þær birtast í Búseta. En hver á að vera hlutur einkafjármagnsins í lausn húsnæðisvandans? Fasteignabólan sem sprakk var sögulegt framlag einkafjármagnsins en væntanlega ekki margir sem vilja endurtaka leikinn.

Verðbólgan og ríkisstjórnin.

Greiningardeild Arionbanka spáir því að framundan sé mesta hækkun verðlags frá 2009. Ef spáin rætist er það ríkistjórnarflokkunum mikið áhyggujefni bæði vegna efnahagsmálanna og vegna pólitískrar stöðu stjórnarinnar. Bankinn byggir spá sína á því að von sé á gjaldskrárhækkunum, útsöluáhrif séu ekki komin fram að fullu, fasteignaverð á höfuðborgarsvæði muni hækka og að óvissa sé um komandi launasamninga. Gangi spá eftir verður 12 mánaða verðbólga í lok árs 4.7%. En hvað er til ráða? Að mati bankans er mikilvægast að gjaldeyrisskapandi fjárfesting nái sér á strik sem hljómar óneitanlega kunnuglega. Seðlabankinn hefur gengismarkmið og mun reyna að halda sveiflum krónunnar á þröngu bili. Ef verðbólgulíkur vaxa mun bankinn líklega beita vöxtum sem tæki. Hver eru verkefni hagstjórnarinnar? að leysa snjóhengjuna, endurfjármögnun og lánalengingar vegna erlendra lána, greiða niður skuldir ríkissjóðs, aukinn stöðugleiki og auknar arðskapandi fjárfestingar. Verkefnin eru ekki einföld og ytri skilyrði fremur óhagstæð.

Nether Sýrlands(Syrian Electronic Army).

Það var SEA sem réðast á heimasíðu New York Times og gerði hana óstarfhæfa í marga klukkutíma. Á Twitter réðst SEA á reikning AP og setti falskar fréttir þar inn. 2011 kemur SEA fram á netinu með nokkrum heimasíðum. Að eigin sögn er um að ræða unga ákafa stuðningsmenn Assads sem vilja berjast gegn vestrænum fjölmiðlum vegna rangs fréttaflutnings um ástandið í Sýrlandi. Á þessu ári hefur hópurinn m.a. ráðist á BBC, Reuters, 60 minutes, Washington Post og Harvard háskólann. Allt bendir til þess að hópurin starfi í samvinnu við ríkisstofnanir. Uppreisnarmenn í Sýrlandi notfæra sér einnig netið, m.a. samskiptamiðilinn Facebook. SEA njósnar og reynir að afla sér upplýsinga um menn og starfsemi. Hernaður í netheimum er löngu orðin staðreynd.

Utanríkisráðherrann og þingviljinn.

Utanríkisráðherra gerði sér ferð til Brussel til að tilkynna stækkunarstjóra ESB að Ísland gerði hlé á aðildarviðræðum. Ráðherrann sagði ennfremur og sérfræðingar yrðu fengnir til að gera skýrslu um gang viðræðna hingað til og meta stöðu þeirra. Enn fremur átti skýrslan að innihald mat á stöðu ESB og þróun sambandsins. Alþingi átti síðan að ræða skýrsluna og taka frekari ákvarðanir í málinu. Líður nú nokkur tími og fer fram umræða um ferð ráðherrans og skýringar hans á málinu öllu. Næst ber það við að ráðherran tilkynnir fjölmiðlum og þjóðinni að hann hafi látið vinna lögfræðiálit innan ráðuneytisins. Álitið er birt á vef ráðuneytis og af því má ráða að þingsályktanir séu ekki bindandi í sama skilningi og lög. Þær sem ekki styðjist við lög séu á engan hátt bindandi nema sem leiði af þingræðisvenju. Ráðherranum er ljóst að báðir ríkisstjórnarflokkarnir eru andvígir aðild að ESB og að þessu samanlögðu íhugar hann nú að leggja niður samninganefnd og hópa. Í allra augum myndi slíkt þýða slit viðræðna en ekki hlé á viðræðum. Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins ítrekar þá skoðun sína að þjóðin eigi að koma að ákvörðunum í þessu máli. Loks gerist það að Forseti Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur að Alþingi eigi með formlegum hætti að samþykkja breytta stefnu varðandi aðildarviðræður. Það virðist vera skilningur hans og annarra nefndarmanna í forsætisnefnd Alþingis. Næsti þáttur í þessu leikriti mun gerast innan veggja þingsins. Nú ræðst hvort og hvernig þjóðin mun koma að málinu. Á máli skákmanna mætti segja að byrjunarleikir ráðherrans hafi verið undarlega slakir en kannski rætist úr í miðtaflinu.

Grikkland og kosningar í Þýskalandi.

Styrmir Gunnarsson virðist trúa því að skuldavandi Grikkja sé aðalkosningamálið í Þýskalandi ef marka skrif hans í Evrópuvaktina í dag. Þetta er misskilningur. Skuldavandi nokkurra ríkja á evrusvæðinu hefur verið mikilvægt viðfangsefni stjórnmála í Þýskalandi um nokkurt skeið. Styrmir virðist álíta það stórfrétt að fjármálaráðherran hafi "viðurkennt" að Grikkir þyrftu á frekari lánveitingum("björgunarpökkum") að ræða. Fjármálaráðherrann sagði frá þessu í kosningaræðu eins og um væri að ræða hlut sem allir vissu. Almenningur, stjórnmálamenn og sérfræðingar vissu þetta allt. Þess vegna talaði ráðherrann um þetta eins og sjálfsagðan hlut. Skuldavandi Grikkland er mikilvægt mál og ekki verður komist hjá því að ræða á fjölmörgum stóðum ; í Grikklandi sjálfu, í öllum löndum ESB, hjá AGS og öðrum alþjóðlegum fjárálastofnunum. Kosningabaráttan Í Þýskalandi snýst ekki fyrst og fremst um Grikkland en það er örugglega óskemmtilegt fyrir Grikki að fylgjast með því öllu sem skrifað er og sagt um kreppuna í landinu. Erfiðast f öllu er að reyna sára fátækt sem hluti grísku þjóðarinnar hefur orðið að gera í kreppunni.

Næsta síða »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Ágúst 2013
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband