Misskipting auðæfa þjóðanna.

1% eiga 41% heildarauðs þjóðanna. Ríkustu 10% eiga 86%. Sá helmingur mannkyns sem minna á á 1% auðsins. 8.4% allra fullorðinna í heiminum eiga 84.3% af öllum eignum heimilanna ,þ.e. landeignir, húsnæði og fjármuni;hlutabréf og sparifé. Hrein eign 393 milljóna manna er 86% af öllum eignum heimila. Tveir þriðju allra fullorðinna í heiminum eiga minna en 10000 dollara(1.2 milljón íslenskra króna)og 3.2 milljarðar manna eiga engar eignir. 98700 einstaklingar eiga hins vegar meira en 50 milljónir dollara hver. Helmingur þeirra býr í USA.  Allar þessar tölur eru fengnar úr nýrri skýrslu Credit Suisse Bank og þær eru í samræmi við skýrslur sem gerðar hafa verið á undanförnum árum. Misskiptingin er einnig innan hver ríkis. Nefna má Bretland sem dæmi. Þar er hreyfanleiki milli stétta lítill. Þeir sem fæðast inní ofurríka fjölskyldu verða ofurríkir. Ríkasta tíundin á 4.4 sinnum meira en sá helmingur þjóðarinnar sem minna á. Ríkustu 20% eiga 62% af öllum samanlögðum eignum heimila. frjáls markaður, frjáls viðskipti milli manna og jöfn tækifæri eru lykilatriði í hugmyndafræði markaðshagkerfis. Veruleikinn er greinilega allt annar. 


Fátækt þjóðanna.

1.2 milljarður manna lifir í sárri fátækt. Til framfærslu hefur hver manneskja minna en 1.25 dollara á dag. Af þessum fjölda eru börn 400 milljónir.  Fátæktarmörk i USA eru 60 dalir fyrir fjórar manneskjur á dag. Það að fá ekki nóg að borða er hlutskipti þeirra sem lifa í sárri fátækt. Og þetta er 21. öldin. Þeim sem lifa í sárri fátækt hefur fækkað umtalsvert undanfarna þrjá áratugi. Þjóðarauður Kína og Indlands hefur vaxið hratt og það skýrir fækkunina að mestu leyti. Það er einkum í Kína sem baráttan gegn fátækt hefur skilað árangri.  Þeim sem lifa í sárri fátækt hefur hins vegar fjölgað í mörgum ríkjum Afríku. Stór hluti þeirra hefur ekki aðgang að hreinu vatni eða hreinlætisaðstöðu. Þá síður aðgang að rafmagni. Flestir lifa í sveit eða strjálbýli. Fátæktin er ekki örlög eða vilji guðs. Hvorki í Afríku né hér á landi. Henni er hægt að útrýma með pólitísku valdi ef vilji er fyrir hendi.

Langar vinnustundir eða að lifa lífinu.

Margir hafa óskað sér stuttrar vinnuviku. B Russel skrifaði ritgerðina Lof letinnar (idelness) árið 1932. Hann taldi að þjóðfæelaginu væri mest stjórnað með því að hver maður inni 4 tíma á dag. Þá hefði hann nægan tíma til að njóta vísinda, málaralistar og ritstarfa. Keynes setti fram svipaðar hugmyndir 1939. Hann taldi að vinnuvikan yrði 15 tímar 2030. Ekki hafa þessar hugmyndir eða spádómar gengið eftir. Enn er vinnuvikan löng og vinnudagurinn langur. Í Japan var vinnustundafjöldi á mann 2200 árið 2012. Í Bretlandi var hann 1600 stundir að meðaltali þetta sama ár. Í Finnlandi var talan 1800 stundir. Í Grikklandi eru vinnustundir 2100 að meðaltali á vinnandi mann. Þjóðverjar vinna 1400 stundir en framleiðnin í Þýskalandi 70% meiri. En er sá sem hefur há laun hvattur til að taka sér frí? Bæði og. Fórnarkostnaður frísins er hár en hann hefur efni á því að veita sér ýmislegt. Há laun geta líka rekist á þak. Þá segja menn; ég er búinn að þéna nóg. Þetta nægir mér og mínum lífsstíl. Í sumum tilvikum er vinnan skapandi og spennandi. Frumleiki og sköpunarkraftur fá að njóta sín. Með sama hætti getur frítími einkennst af óvirkri móttöku, t.d. afþreygingarefnis í sjónvarpi. Hver eru þá skilin milli vinnu og frítíma?

Starfasköpun smáfyrirtækja.

Á áttunda áratugnum gerði bandaríski hagfræðingurinn D Birch rannsókn á starfasköpun. Niðurstaða hans var sú að smáfyrirtæki sköpuðu flest störf í USA. Rannsóknir fleirri aðila benda til sömu niðurstöðu. Rannsóknir á smáfyrirtækjum beinast að sprotafyrirtæjum og hins vegar ört vaxandi fyrirtækjum. Rannsóknir benda til þess að 4 til 8 ár frá stofnun skapi smáfyrirtæki langflest störf. Árið 2008 birtist listi yfir 100 áhugaverð sprotafyrirtæki í tímaritinu Frjálsri verslun. 2009 voru 200 fyrirtæki á listanum og og 2010 voru 140 fyrirtæki á 9 sviðum. Árið 2010 var talið að 500 störf hefði skapast í sprotafyrirtækjum frá bankahruni. Eftir bankahrunið jókst mikið áhugi stjórnvalda á starfasköpun nýrra fyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð opnaði frumkvöðlasetur, Hugmyndahús Háskólanna varð til, Viðskiptasmiðjan var stofnuð og fleira mætti telja. 

Íslenska ríkið brýtur alþjóðalög á flóttamönnum.

Framkvæmdastjóri flóttamannahjálpar SÞ í Norður Evrópu segir að íslenska ríkið hafi ítrekað brotið á réttindum flóttafólks. Á Íslandi eru flóttamenn dæmdir fyrir skjalafals skömmu eftir komu til landsins en það eru brot á lögum. Slík vinnubrögð þekkjast ekki í Norður Evrópu. Ísland sker sig úr. Það hefur reynt á 31. grein flóttamannasamningsins í máli fyrir Hæstarétti Íslands. Dómurinn dæmdi stjórnvöldum í hag. Dæmdur flóttamaður er settur á sakaskrá. Flóttamenn reyna á engan hátt að hylja það að skilríki séu fölsuð. Þetta eru einu skilríkin sem þeir hafa. Ljóst er að breyta verður ákvæðum í íslenskum lögum þannig að þau samræmist alþjóðalögum og nútímahugmyndum um mannréttindi. Í dag er áætlað að 12 milljónir manna séu ríkisfangslausar. Ísland hefur ekki fullgilt samning um stöðu fólks án ríkisfangs frá 1954. Í íslenskum lögum er ekki að finna skilgreiningu á ríkisfangslausum einstaklingi. Það er deginum ljósara að Ísland á mikið verk að vinna í málefnum flóttamanna og hælisleitenda. 

Rauði krossinn: 43 milljónir fátækra í Evrópu þurfa aðstoð.

Fólkið er háð því að fá matargjafir og heita súpu. Rauði krossinn metur þetta sem erfiðustu kreppu í sex áratugi í nýlegri skýrslu sem birt var í Róm og  Genf. Fjöldi þeirra sem eiga ekki fyrir brýnustu lífsnauðsynjum hefur vaxið mikið á árunum 2009 til 2012. Núna eru 120 milljónir í hættu á að verða fátækir.  Í vaxandi mæli er leitað til hjálparstofnana. Á Ítalíu er ástandið sérstaklega alvarlegt. Þegar kreppan var dýpst urðu 150000 fyrirtæki, einkum smærri fyrirtæki, að hætta starfsemi. Þetta gerir hjálparstofnunum erfitt fyrir að afla matargjafa. 

Bloggfærslur 11. október 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband