Kennitöluflakk veldur miklu tjóni.

Í einfaldri mynd er kennitöluflakk þegar verðmæti eru tekin úr einu félagi(félagi með takmarkaða ábyrgð) og flutt í annað. Skuldir og fjárhagslegar skuldbindingar verða eftir og upphaflega félagið sett í þrot. Sami einstaklingur getur hugsanlega leikið þennan leik margoft. En í hverju er tjónið fólgið? 1) starfsmenn tapa starfi, réttindum og eiga útistandandi launakröfur, 2) kennitöluflakkarar skekkja samkeppnisstöðu sér í hag, 3)ríkissjóður missir af skatttekjum.  Fjöldi félaga með takmarkaða ábyrgð er mjög mikill hér á landi. Árið 2012 voru slík félög 30984 ! Á íslenskum vinnumarkaði eru 188000 einstaklingar. Það er ljóst að ekki er nema hluti þessara félaga starfandi. Rúmlega fimmtungur fyrirtækja skilar ársreikningum á réttum tíma. Þau fyrirtæki sem eru í vanskilum eru óíkleg til að skila ársreikningi. Það er mismunandi eftir greinum hvaða fyrirtæki eru líkleg til að verða gjaldþrota. Frá 2008 til 2012 eru það einkum fyrirtæki í byggingarstarfsemi, verslun, fjármálastarfsemi og fasteignasölu. Sáralítið af kröfum vegna gjaldþrota félaga innheimtist. Árin 2011 og 2012 voru lýstar kröfur 400 milljarðar en 8 (!) milljarðar innheimtust. Undanfarin ár hefur Ábyrgðarsjóður launa greitt 2 milljarða á ári en hann er fjármagnaður með tryggigargjaldi. Á árunum 2006 til 2013 voru 160 einstaklingar sem tengdust 5 gjaldþrotum eða fleiri. Langflestir eða 7566 tengjast einu gjaldþroti. 330 einstaklingar tengjast 3 gjaldþrotum eða fleiri. --Nú hefur Alþýðusamband Íslands sett fram tillögur um hvernig bregðast megi við þessum vanda. 

Norskur landbúnaður er kommúnískur.....

Sylvi Listhaug heitir ráðherra landbúnaðarmála í Noregi. Hún er þingmaður Framfaraflokksins. 2010 skrifaði hún grein á E24 sem er fréttasíða um efnahagsmál. Listhaug var þá í borgarstjórn Óslóar. Þar gagnrýndi hús stefnuna í landbúnaðarmálum harðlega og þá samninga sem þáverandi stjórn hafði gert við bændasamtökin. Þar lýsir hún skipulagi landbúnaðarmála í Noregi sem kommúnísku og svo hafi það verið í 6 áratugi. Nils Björke formaður samtaka bænda er undrandi á því að Framfaraflokkurinn skuli hafa fengið ráðuneyti landbúnaðarmála. Stefna Hoyre er í andstöðu við niðurskurðarsstefnu þess flokks. Hann er eftir sem áður reiðubúinn til viðræðna og samræðu við nýjan ráðherra.

Sveitarfélög á köldum svæðum.

Fjórðungsþing Vestfirðinga mótmælir því að ný ríkisstjórn ætli að vinna gegn því að jafna húshitunar-og raforkukostnað í landinu. Í raforkuna sé varið 240 milljónum en ætti að vera 1100 milljónir. Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga er framlag til jöfnunar húshitunarkostnaðar 1344 milljónir en ættu að vera 1700 milljónir ef farið væri að tillögum starfshóps um jöfnun húsnitunarkostnaðar. Nú er það auðvitað velþekkt að húshitunarkostnaður er mjög mismunandi á landinu. Þeir sem geta ekki nýtt heitt vatn úr iðrum jarðar eru mun verr settir en hinir. Árið 1996 voru stofnuð Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum og voru stofnendur 37 sveitarfélög. Samtökin hafa beitt sér allnokkuð í þessum málaflokk. Það vekur athygli að þau hafa ekki ályktað eða sent frá sér fréttatilkynningu um fjárlagafrumvarpið. (Nú má vera að bloggarar hafi misst af ályktun frá samtökunum.) Á heimasíðu samtakanna eru engar ályktanir að finna.  


Mistök Áslaugar Maríu...

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins ritar grein í málgagn sitt og telur það rangt af meirihlutanum að hafa hækkað fjárhagsaðstoð til atvinnulausra. það virki letjandi og nú sé enginn munur á ráðstöfunartekum vinnandi og þeirra sem atvinnulausir eru. Nú eru veigamiklar ástæður til efast um útreikninga borgarfullrúans og eflaust verða einhverjir til þess. Vandinn við grein Áslaugar er hins vegar sá að hún skilur alls ekki málið í heild sinni. Vinna er miðlæg í íslenskri menningu. Atvinnuþátttaka er óvenjulega há. Vinnutími á viku og yfir árið er mjög hár.Vinnan skiptir því afarmiklu máli fyrir sjálfsmynd fólks. Þetta gildir almennt en auðvitað ekki án undantekninga. Hvort einstaklingur fær vinnu eða ekki ræðst af mörgu. Eitt er framboð starfa. Eftir hrun hefur framboð starfa verið minna en eftirspurn í heildina séð. Vinna er ekki bara laun eða ráðstöfunartekjur. Hún er líka þátttaka í samfélaginu. Vinnan er leið til að komast út úr einangrun heimilisins. Þótt vinnuálag geti verið mikið og vinnuaðstæður er það samt sem áður betra en að vera án vinnu. Fjölmargar rannsóknir félagsvísindamanna sýna fram á slæmar afleiðingar atvinnuleysis fyrir einstaklinginn. Kannski borgarfulltrúinn ætti að kynna sér þær.

Með lögum skal land byggja. Fyrir og eftir hrun?

Margt bendir nú til þess að ýmsir hafi ekki farið að lögum í viðskiptum fyrir hrun. Fjöldi mála í rannsókn, ákærur og dómar í einstökum málum virðist benda til þess. Oft er hruninu líkt við náttúruhamfarir með réttu eða röngu. Stjórnmálamenn líkja starfi sínu eftir Hrun við rústabjörgun. Björgunarstörf á Íslandi eru styrkt af almannafé og að mestu unnin í sjálfboða vinnu. Nú um stundir vinnur hluti lögmannastéttarinnar við einhvers konar rústabjörgun talað í líkingamáli. Þrotabú eru rústir fyrrverandi starfandi fyrirtækja og fjármálastofnana. Skilanefndir eru þá nokkurs konar björgunarsveitir sem sjá til þess að allir fái réttláta meðferð og það sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum. Undanfarið hafa verið fréttir af afkomu nokkurra lögmannsstofa. Logos, Lex BBA legal og Landslög högnuðust um rúmlega 1.5 milljarð eftir skatt árið 2012 samkvæmt Morgunblaðinu í dag.  Arðgreiðslur til eigenda námu 1.16 milljörðum á síðasta ári. Nú eru sígild svör við þessu: laun íslenskra sérfræðinga á þessu sviði eru sambærileg launum erlendra sérfræðinga. Hitt svarið: á síðasta ári var mikil yfirvinna og mjög lítið um frí. Sumarleyfi var ekki í myndinni... Það er nú gott og blessað. Mannlífið hefur sín lögmál og líf dýranna sín lögmál. Þegar ljónið hefur rifið í sig bráðina og heldur brott mætir hrægammurinn á svæðið.

Bloggfærslur 16. október 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband