26.10.2013 | 19:37
Er læknastéttin að yfirgefa landið?
Læknar virðast mjög óánægðir með laun sín, kjör og starfsaðstæður. Undanfarin ár hafa verið daglegar fréttir um niðurskurð á sjúkrahúsum og heilsugæsluþjónustu. Fréttir hafa verið af gömlum og úreltum tækjum, bilunum, liftum sem gætu stöðvast og svo framvegis. Ætla mætti að íslenska heilbrigðiskerfið væri komið fram af bjargbrúninni og væri í frjálsu falli. Ýmsar tölur hafa verið nefndar sem sýna að í alþjóðlegum samanburði séu grunnlaun lækna hér mun lægri en í nálægum löndum. Grunnlaun sérfræðilækna hér eru um 530 þúsund á mánuði en ein til ein og hálf milljón í Noregi, Bretlandi,Svíþjóð og Hollandi. Grunnlaun í USA eru ein til fimm milljónir. Þessar tölur gefa að sjálfsögðu sterkar vísbendingar um raunveruleg laun og kjör en segja ekki alla söguna. Í Læknablaðinu hefur komið fram að launakjör á Landsspítala séu engan vegin samkeppnishæf við t.d. laun lækna í Svíþjóð eða jafnvel lækna hér á landi sem starfa utan Landsspítalans. Læknar virðast telja að þeir hafi dregist aftur úr miðað við t.d. lögfræðinga og verkfræðinga sem starfa hjá hinu opinbera. Nýr Landsspítali og ný tæki eru hluti af lausninni en mannauður, rannsóknir og þekking skiptir meira máli. En hvað munu stjórnvöld gera? Fara leið einkavæðingar álíka og í Svíþjóð sem gagnrýnendur segja að leiði til dýrari læknisþjónustu, meiri mismununar og minni gæða. Fá erlenda lækna, t.d. indverska, til starfa í mikið auknum mæli? Hækka veiðigjald á stórútgerðina til að fjármagna fjárfestingar og launahækanir í heilbrigðisgeiranum? Skylda lækna með lögum til að vinna hér á landi í ákveðinn árafjölda eftir nám? Læknar geta auðvitað krafist hærri launa eins og margar aðrar stéttir. Þeir geta einnig bent á það hjá hvaða greinum, fyrirtækjum, stofnunum eða þjóðfélagshópum peninga er að finna. Þeir hljóta að sjá það eins og aðrir hverjir vaða í peningum og vita ekki aura sinna tal.
26.10.2013 | 16:31
Og Obama vissi ekkert.
Í samtali við Merkel kanslara sagði Obama forseti á miðvikudag að hann hefði ekki vitað um að sími Merkel væri hleraður. Ef hann hefði vitað af þessu hefði hann stöðvað hlerunina. Forsetanum þykir málið afar leitt og hafi beðist afsökunar. Í næstu viku mun sendinefnd frá þýsku ríkisstjórninni fara til Washington til að upplýsa málið og gera "No Spy" samkomulag. Það er ljóst að þetta mál hefur truflað samband Þýskalands og USA.
26.10.2013 | 08:39
Kynferðisbrot og refsingar.
Það er almenn skoðun að kynferðisbrot séu alvarlegir glæpir og að refsingar séu of vægar. Á árunum 1977 til 1996 var refsing fyrir nauðgun eitt til tvö ár. Beiting ofbeldis réði refsihæð. Á tímbilinu 1997 til 2002 virðast refsingar ekki þyngjast. Refsingar fyrir nauðgun og alvarleg kynferðisafbrot gegn börnum eru fjögur til sex ár. Ástæður refsiákvörðunar er að mestu bundin í lög. Nefna má aldur þolenda, þjáningar, líkamsáverkar, hætta sem fylgdi verknaði, brotaferill bortamanns, hversu einbeittur brotavilji var, tilgangur brotsins og hegðun eftir brot. Nokkrar ástæður eru ekki festar í lög. Nefna má tjón sem verður af völdum verknaðar s.s. starfsmissi, réttindamissi eða ástvinamissi. Hrottafengið gróft ofbeldi kallar á hærri refsingu sem og ef þolendur eru mjög ungir. Ef um trúnaðarsamband hefur verið að ræða milli brotamanns og þolenda þyngir það refsingu. Ungur aldur gerenda hefur vegið til mildunar refsingar. Kynferðisofbeldi gegn börnum vekur ákaflega sterk tilfinningaviðbrögð hjá fólki sem er eðlilegt. Nú eru birtar myndir á netinu af mönnum sem hlotið hafa dóm (nidingar.wordpress.com). Þar eru einnig tenglar í dómana. Nú hefur Barnastofa lagalega heimild til að fá upplýsingar úr sakaskrá einstaklinga. Eftirlit með dæmdum afbrotamönnum sem álitnir eru hættulegir hlýtur eðli málsins samkvæmt að vera á hendi opinberra aðila.
Bloggfærslur 26. október 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar