31.10.2013 | 23:00
Sjónvarpað úr réttarsal í Bretlandi.
Skref var stigið til aukins gegnsæis í bresku réttarkerfi í dag þegar sjónvarpað var beint frá Court of Appeal í London. Sjónvarpsstöðvar hafa barist fyrir þessu í rúman áratug. Í flestum tilvikum eru réttarhöld opin og nútímatækni gerir mögulegt að mikill fjöldi manna fylgist með. Strangar reglur gilda um útsendingu til að koma í veg fyrir að réttarhaldið verði fyrir truflun. Sjónvarpsvélin sýnir eingöngu lögmenn og dómara en aðra ekki. Ekki er sjónvarpað á rauntíma til að gefa dómara færi á að stöðva útsendingu ef hann ákveður svo. Sjónvarpssendingar úr réttarsal hafa verið leyfðar í Skotlandi frá árinu 1992 en þær eru takmarkaðar við ákveðna málaflokka.
31.10.2013 | 16:32
Snowden fær nýtt starf.
Anatoli Kutscherena lögfræðingur hefur tilkynnt að Snowden muni hefja störf hjá stóru rússnesku tölvufyrirtæki. Fyrirtækið heitir Vkontakte og er nokkurs konar rússnesk útgáfa af Facebook. Notendur munu vera meira en 100 milljónir. Lögfræðingur Snowden hefur margvísleg sambönd í Kreml. Hann bauð föður Snowden til Moskvu. Hópur uppljóstrara heimsótti Snowden í Moskvu fyrir tilstilli Anatoli. Snowden getur dvalið í Rússlandi í eitt ár en hvað tekur við er óljóst. Það er ljóst að Snowden gæti orðið lykilvitni í mörgum málum. Ef þýska þingið ákveður að rannsaka hlerun USA í Þýskalandi yrði að tryggja öryggi hans. Snowden er nefndur ýmsum nöfnum; föðurlandssvikari og sannur ættjarðarvinur. Og allt þar á milli.
31.10.2013 | 13:44
Stuttur fundur á Alþingi fimmtudaginn 31.10 2013.
Þingfundur hófst 10.30 og lauk 12.36. Þá var dagskrá tæmd. Umræður um störf þingsins fóru fram í upphafi fundar og í lok fundar. Í lok fundar var enn rætt um verkefnafæð og skort á frumvörpum frá ríkisstjórn eða meirihluta. Frumvörp og ályktanir hefðu komið frá einstökum þingmönnum. Lítið væri um nefndarfundi og væri nú kannski ráð að fjalla um þingmannamálin í nefndum. Einn þingmaður meirihluta tók þátt í þeim umræðum nefnilega Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Henni datt það hest í hug að það væri kannski rangt að bíða eftir frumkvæði og frumvörpum meirihluta, ráðherra og þeim sem samin eru af embættismönnum og nefndum. Þingmenn gætu tekið sig til og samið frumvörp sjálfið sagði Ragnheiður. Þingmannafrumvörpum hefur fækkað mikið undanfarin mörg ár. Örlög frumvarpa þingmanna stjórnarandstöðu á hverjum tíma hefur verið að daga uppi eða deyja í nefndum. Meirihlutinn hefur komið sínum málum fram í tímahraki og afgreiðsluhraða í lok þings hverju sinni. Hver er nú hugmynd Ragnheiðar? Eiga stjórnarandstöðuþingmenn að halda þinghaldi gangandi með því að leggja fram frumvörp? Guð hjálpi Alþingi.
31.10.2013 | 12:43
Bankar; sagan endalausa um spillingu, vanhæfi og glæpi.
Stórir erlendir bankar hafa verið ásakaðir um að hafa áhrif á gengi gjaldmiðla með óeðlilegum hætti. Rabobankinn hollenski borgaði háar sektir vegna óeðlillegra afskipta af liborvöxtum. 30 starfsmenn bankans í Utrecht, Tokyo og New York komu að þessu máli. Svissneski bankinn UBS, Deutsche Bank og Lloyds bank hafa allir lent í erfiðum málum. En nú bregður svo undarlega við að bankastjóri Bank of England, kanamaðurinn Carney, segir að einfalda þurfi lög og reglugerðir og gera fjármálastarfsemi skilvirkari og öflugri í London. Borgin á sér langa sögu sem fjármálamiðstöð og bankastjórinn vill greinilega efla hana. Martin Wolf sem er þekktur hér á landi brást ókvæða við: þetta mun breyta Bretlandi í Ísland 2007!! Það er neikvætt samband milli vaxtar í bankakerfi og vaxtar í öðrum greinum hagkerfisins. Bankarnir sjálfir fjárfesta lítið í þeim greinum sem skapa störf og auka framleiðni. Annar bankastjóri sem ekki virðist geta lært af reynslunni er Alan Greenspan. Hann trúir enn á skilvirkni hins frjálsa og óhefta( af reglugerðum) markaðar. Allir vissu að við vorum í bólu segir hann um ástandið fyrir fjármálakreppu en allir héldu að bólan myndi vara lengur og hann myndi gera allt eins aftur. Vandinn segir Greenspan eins og sanntrúaður frjálshyggjumaður eru mikil útgjöld hins opinbera í velferðarmál og félagsmál. Þessum peningum(!) er betur varið í atvinnusköpun og til aukinnar framleiðni.
31.10.2013 | 11:31
Sjálfstæðismenn vilja aukið gegnsæi hjá ríki og sveitarfélögum.
Nýtt frumvarp þriggja þingmanna Sjálfstæðisflokksins er allrar athygli vert. Þeir leggja til að ríki, sveitarfélögum og opinberum stofnunum verði gert skylt að birta alla reikninga fyrir kaup á vöru og þjónustu sem eru yfir 150 þúsund krónur. Markmið með þessu frumvarpi eru af ýmsum toga. Til lengri tíma séð á að opna bókhald ríkisins fyrir almenningi. Það á að vinna gegn spillingu hjá hinu opinbera og viðskiptavinum þess. Loks er það réttur skattgreiðenda að vita hvað gert er við skattfé sem greitt er með beinum eða óbeinum hætti. Í USA voru fyrir nokkrum árum sett hliðstæð lög og sett upp heimasíða þar sem margvíslegar upplýsingar eru aðgengilegar. --Hugsunin í frumvarpinu er rétt en hana þarf að útfæra á fleri svið. Um langt árabil voru olíufélögin með samráð um verð og magn framboðs sem öðru jöfnu leiðir til þess að neytendur borga mun meira en þeir gera ef eðlileg samkeppni væri á þessum markaði. Það er mikilvægur réttindi neytenda að gegnsæi sé í verðlagningu og verðmyndun. Þetta var þeirra peningur og þeir borguðu alltof mikið. Þetta er eitt dæmi en dæmin eru mörg þar sem fákeppni er á nánast öllum mörkuðum hér á landi sem þýðir tvennt. Neytendur borga of mikið og þeir geta ekki leitað neitt annað til að kaupa sambærilega vöru. Ef ekki er hægt að tryggja eðlilega verðmyndun verður ríkisvaldið að stjórna verðmyndun. --Það er gömul og ný saga að hið opinbera hefur verið notað sem mjólkurkú fyrir einkafyrirtæki og verktaka.Það er sérstaklega ánægjulegt að Sjálfstæðismenn vilji taka á þessu máli vegna þess að þeirra menn hafa oft og iðulega verið beggja vegna borðsins.
31.10.2013 | 09:55
Fjármálaráðuneyti USA gagnrýnir Þýskaland harðlega.
Embættismenn ráðuneytisins hafa ekki mikla tilfinningu fyrir tímasetningu. Nú hefur komið í ljós að á þaki bandaríska sendiráðsins í Berlín er nósnahreiður. Bak við gervilega aukaveggi er falinn njósnabúnaður. Sendiráðið er í þeim hluta Berlínar þar sem flestar stjórnstofnanir eru staðsettar. Ráðuneytið fjallar á torskilinn hátt um efnahagsstefnu margra ríkja. Kínversk stjórnvöld eru gagnrýnd fyrir að stýra gengi Yuansins. Genginu er haldið alltof lágt sega ráðuneytismenn og hafa sagt í mörg ár. En hvað um Þýskaland? Mikill afgangur í utanríkisverslun Þýskalands er íþyngjandi fyrir allt evrusvæðið segja embættismennirnir. Þetta skapar ójafnvægi á evrsvæðinu. Hjá öðrum löndum er viðskiptahalli og eftirspurn of mikil. Ójafnvægið í utanríkisviðskiptum er ein af helstu orsökum fjármálakreppunnar að mati embættismannanna. Embættismenn í þýska fjármálaráðuneytinu eru ekki sammála þessu. Hagvöxtur í Þýskalandi er drifinn áfram af mikilli eftirspurn innanlands. AGS og OECD hafi metið ástandið með jákvæðum hætti. Í augum embættismanna í USA eru óþekku strákarnir á alþjóðlegum fjármálamarkaði ; Kína, Japan, Suður-Korea og nú síðast Þýskaland.
Bloggfærslur 31. október 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar