4.10.2013 | 11:22
Guðlaugur Þór og ríkasta fólkið.
Guðlaugur Þór hefur ekki hlotið þann frama ínnan Sjálfstæðisflokksins sem hann hefur lengið stefnt að. Ekki er ljóst hvað veldur. Guðlaugur Þór er fylginn sér og vinnusamur. Hann hefur lag á að virkja fólk og fá það til starfa. Hann hefur á sínum snærum allöflugar kosningavélar eins og komið hefur í ljós alloft. Hann er einnig fjáröflunarmaður nokkur fyrir sjálfan sig og flokkinn sællar minningar. En Guðlaugur Þór er maður margra og ólíkra skoðana. Hann hefur mismunandi skoðanir eftir tímabilum á samamáli. Fer það eftir stöðu hans hverju sinni hvaða skoðun hann heldur fram. Í VB í dag er Guðlaugur þeirrar skoðunar að vinstri stjórnin hafi veitt ríkasta fólkinu 44 milljarða skattaafslátt. Lög um skattlagningu fjármálafyrirtækja voru afgreidd frá Alþingi 2010. Þar var grein um undanþágu vegna fjármálafyrirtækja í slitameðferð. Engar athugasemdir komu fram í nefndaráliti og frumvarpið var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Greidd voru atkvæði með nafnakalli og Guðlaugur Þór sagði já. Árið 2010 sagði Guðlaugur Þór já. Það er nú gleymt og í dag er hann Hrói Höttur.
Bloggfærslur 4. október 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar