6.10.2013 | 15:48
Ástand þorskstofnsins og þingmaðurinn Jón Gunnarsson.
Formaður atvinnuveganefndar vill auka þorskkvótann á þessu fiskveiðiári. Stofninn þolir þetta að mati þingmannsins og hann sér fram á 10 til 12 milljarða aukningu í útflutningstekjum. Nú fer verð á þorskafurðum lækkandi á helstu mörkuðum okkar vegna mikils framboðs af Barentsþorski. Þingmaðurinn telur þorskstofninn vera í sögulegu hámarki sem hljóta að teljast nokkrar fréttir fyrir fiskifræðinga. Í júní birti Hafró skýrslu um nytjastofna sjávar 2012/2013 og aflahorfur 2013/2014. Viðmiðunarstofninn á þessu ári er metinn 1170 þúsund tonn og hrygningarstofninn 480 þúsund tonn. Viðmiðunarstofninn núna er stærri en hann hefur verið undanfarna þrjá áratugi. Hafró segir að þar sem nýliðun á undangengnum áratug hafi verið undir meðallagi sé stækkun stofnsins afleiðing minni sóknar. Miðað við núverandi aflareglu má búast við að aflinn vaxi í 250 þúsund á komandi árum. Ef nýliðun á næstu árum verður betri en á undanförnum árum má búast við meiri afla. (Nú eru fiskifræðingar Hafró ekki heilagar kýr hafnar yfir gagnrýni.) Það er því ýmislegt við málflutning Jóns (Skammtíma Jóns) að athuga. Þorskstofninn er ekki í sögulegu hámarki. Raunveruleg veiði hefur jafnan verið meiri en ráðlögð veiði. Aukning veiða á ótraustum grunni mun þýða minni veiði og minni tekjur í framtíðinni.
6.10.2013 | 11:46
Dýragarðsbörnin gleymast ekki.
Christiane F fæddist 1962 í Hamborg. 1978 skrifuðu tveir blaðamenn við tímaritið Stern bók um unga eiturlyfjaneytendur í Berlín. Bókin varð þekkt í allri Evrópu og kvikmynd var gerð eftir henni. Christiana hefur reynt fyrir sér sem leikkona og söngvari. Hún eignaðist son en missti forræði yfir honum. Hún byrjaði að nota eiturlyf 12 ára og var háð heróíni 14 ár. Hún seldi sig á svæðinu kringum aðaljárnbrautastöð Berlínar. Hún hefur lifað viðburðarríku lífi. Hún er andhetja og tákn heillar kynslóðar. Hún lifði og hrærðist í pönksenu Hamborgar og undirheimum Berlínar. En hún var þekkt og hitti stjörnur eins og Bowie, Cave og Ninu Hagen. Í dag er hún í methadon-meðferð. Hún hefur skrifað bók sem heitir Annað líf mitt. Bókin er skrifuð með A Vukovic. Christiane hefur stofnað sjóð sem styrkja á börn sem eiga foreldra sem eru háðir eiturlyfjum. Í Þýskalandi er áætlað að tvær og hálf milljón barna eigi foreldra sem neyta eiturlyfja.(Annað eða bæði). Opinber heimasíða Christiane er : christiane-f.com.
6.10.2013 | 11:14
Ríkisstjórnin gegn velferð?
Stundum er niðurskurður hjá hinu opiinbera, fyrirtækjum og heimilum óhjákvæmilegur. Þetta er þegar þjóðarbúið verður fyrir miklum áföllum. Áður fyrr vöru fiskafurðir nánast eini útflutningur íslenskra fyrirtækja. Ekkert ál og lítil ferðamennska. Ef aflabrestur varð þarf ekki að útskýra afleiðingar. Hrun bankanna, hrun krónunnar og fjöldagjaldþrot er að sjálfsögðu mikið áfall. En áföll bitna ekki jafnt á öllum, sumir græða jafnvel og í öllum erfiðelikum felast möguleikar og lausnir. Hvað væri hægt að segja um mann sem neitar vinnu og tekjumöguleikum þrátt fyrir bága stöðu? Hvað er hægt að segja um ríkisvald sem neitar sjálfu sér um skatttekjur og tekjur af gjöldum þrátt fyrir bága stöðu? Þetta er núverandi ríkisstjórn að gera. Síðastliðið sumar rýrði hún tekjustofna sína um 12 milljarða króna með lækkun veiðigjalds og með því að hækka ekki vsk. á ferðaþjónustu. Þetta var þvert á ráðleggingar sérfræðinga og hagfræðinga. Var eingöngu tekið mark á háværum köllum sérhagsmunaaðila? Ríkisstjórnin ákvað einnig að framlengja ekki auðlegðarskatti. Fyrir þessu eru engin hagfræðileg eða lagaleg rök. Eftir hverju var farið? Hluti hópsins eru við aldur og mikið af eignum bundin en litlar tekjur; var það ástæðan. Af hverju er þá ekki sama umhyggja sýnd öðrum? Tapaðar skatttekjur eru á bilinu 10 milljarðar. Sátt og samstaða eru vinsæl orð og notuð við hátíðleg tækifæri. Samstaða verður ekki nema tekið sé tillit til lífskjara og velferðar alls almennings. Ríkisstjórnin virðist ekki vera á þeirri leið.
Bloggfærslur 6. október 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar