Nick Glegg; efnahagslegt sjálfsmorð að ganga úr ESB.

Nick Glegg tekur sterkt til orða og hvetur til almennrar samstöðu um þjóðarhagsmuni. Hann er ekki sammála Cameron um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild. Hann álítur það skammsýna pólitíska hugsun sem gæti haft slæmar afleiðingar. Glegg heldur því fram að utan ESB væri Bretland einangrað og áhrifalust í bakgarði alþjóðastjórnmála. Hann hefur skrifað bréf til 100 fyrirtækja, samtaka og verkalýðsfélaga og hvatt til þess að kostir ESB-aðildar séu gerðir meira áberandi í opinberri umræðu. Hann óttast að aðildarsinnar taki ekki nógu skjótt og kröftuglega við sér. Hann telur að einangrunarsinnar spinni upp goðsagnir sem eigi sér enga stoð í raunveruleikanum. Cameron hefur lofað almennri atkvæðagreiðslu um ESB-aðild 2017 ef Íhaldsflokkurinn vinnur sigur í næstu kosningum. Hugsun Cameron er ekki flókin. Hann er að reyna að fresta innri átökum í Íhaldsflokknum fram yfir kosningarnar 2015. Glegg segir að ekki sé hægt að ofmeta þann skaða sem útganga úr ESB myndi valda. Bretar yrðu að gera sérsamninga við alla viðskiptaaðila og yrðu ekki teknir alvarlega af Bandaríkjamönnum, Kínverjum eða Indverjum. Það má vera að Glegg taki nokkra áhættu með slíkum yfirlýsingum. Það er fjölmennur hópur sem vill endursemja um aðildarskilmála Bretlands.  Aðalritari TUC-verkalýðssamtakanna tekur undir með málflutningi Glegg. Það yrði hræðilegt fyrir fyrir fjárfestingar og sköpun starfa ef Bretland yfirgæfi ESB. Bandarískir stjórnmálamenn hafa alltaf verið jákvæðir fyrir samrunaþróuninni í ESB og vilja að Bretland sé hluti af henni. 

Einkenni ferðaþjónustu hér á landi.

Ferðaþónusta hefur farið ört vaxandi undanfarin ár. Með vaxandi mikilvægi eykst þörf á grunnrannsóknum og stefnumótun stjórnvalda. Nú ríkir frumkvöðlakraftur og allnokkur fjárfestingagleði í byggingu hótela og gististaða. Það er fyrst eftir seinni heimsstyrjöldina sem ferðaþjónusta í nútímaskilningi verður til. Til þessa liggja nokkrar ástæður; auknar ráðstöfunartekjur, aukinn frítími og greidd leyfi launafólks, aukið almennt menntunarstig, aukin alþjóðleg viðskipti og miklar framfarir í samgöngutækni. Í þróuðum samfélögum fer hlutfall eldri borgara hækkandi og þorri þeirra er við góða heilsu. Hann getur því leyft sér ferðalög. Fjölbreytt náttúra Íslands hefur afar mikið aðdráttarafl. Landið er í sköpun fyrir augum ferðamannsins. Menning landsins í fortíð og samtíð hafa einnig aðdráttarafl. Hálendi landsins, jöklar, eldfjöll, fossar , hreint vatn og hraunbreiður; allt þetta og fleira mótar ímynd landsins í huga ferðamannsins. Fjöldi erlendra ferðamanna hefur vaxið ört undanfarin ár og flest bendir til að hann muni halda áfram að aukast. Eftirspurn ferðaþjónustunnar er mjög árstíðabundinn og það er veikleiki. Raungengi krónunnar er mjög lágt og fátt bendir til að það muni hækka. Ferðaþjónustan hefur mikla möguleika en það er ekki sjálfgefið að hægt sé að nýta þá. Veldur hver á heldur. 

Kreppa í boði Teboðsins.

John Boehner er republikani og talsmaður Fulltrúadeildarinnar. Úr fjarlægð virðist hann stjórna kreppunni í bandarísku stjórnkerfi og stjórnmálum. Ríkisstjórnin er lömuð og nú nálgast ríkisgjaldþrot. Ríkisstarfsmenn eru sendir heim án launa -Government Shutdown. Boehner gæti ákveðið atkvæðagreiðslu í Fulltrúadeildinni. Þá myndu demókratar og hófsamir menn í hans eiginn flokki rjúfa pattstöðuna. 800000 ríkisstarfsmenn myndu koma til vinnu og þjóðgarðarnir opna. En þetta vill hann ekki. Hann vill Obamacare burt. Eftir 9 daga verður að hækka skuldaþak ríkisins en það álítur Boehner vera samningsatriði. Hann vill fá eitthvað í staðinn. Ráðist er á Boehner úr öllum áttum; stjórnmálamenn og skemmtikrafar taka höndum saman. En hann heldur tryggð við Tea Party. 

Robert Aliber um efnahagsstjórn fyrir Hrun.

Robert Aliber er mjög þekktur hagfræðingur og sérfræðingur í alþjóðafjármálum. Árið 2008  kom hann hingað til lands og sá og taldi mikinn fjölda byggingakrana. Greinilegt merki um bólu sem myndi springa! Á árunum fyrir Hrun var gengi krónunnar fljótandi. Það leiddi af sér að allt fór úr böndunum með nánast sjálfvrikum hætti. En það hefði ekki þurft að gerast ef myntin hefði verið tengd öðrum gjaldmiðli. Ef verð krónunnar fer stöðugt hækkand sem og verð á verðbréfum á hagnast erlendir fjárfestar á því að setja fjármagn inní hagkerfið. Seðlabankinn hefði einnig getað gripið til aðgerða sem hefðu haldið hækkunum krónunnar í skefjum. Það var ekki gert sem eru mistök að mati Aliber. Aliber er þeirrar skoðunar að vegna einhæfni útflutningsvara Íslands henti aðild að stærra myntbandalagi ekki.

Jens Stoltenberg um stjórn hægri flokkanna í Noregi.

Ríkisstjórnarflokkarnir hafa mótað aðra stefnu fyrir landið segir Stoltenberg. Sum stefnumál eru framhald af því sem fyrri ríkisstjórn gerði en annað ekki. Verkamannaflokkurinn er andvígur einkavæðingu skóla og skattalækkunum. Reynsla Svía er að gæði skólastarfs minnki og munur á nemendum aukist við einkavæðingu. Fyrirhugaðar breytingar á vinnumálalöggjöf munu veikja stöðu launafólks. Hægri flokkarnir lofa mörgu en útskýra ekki hvernig fjármögnun á að eiga sér stað. Stoltenberg minnir á að frá 2005 til 2012 hafi 350000 ný störf orðið til í Noregi. Það er greinilegt að hægri flokkarnir ætla ekki að leggja áherslu á umhverfis-og loftlagsmál. Þau eru ekki á forgangslista stjórnarinnar.(arbeiderpartiet.no)

Bloggfærslur 8. október 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband