Hanna Birna: nauðungarsölur verða ekki stöðvaðar.

Innanríkisráðherra hefur nú tilkynnt að nauðungarsölur verði ekki stöðvaðar. Það gerir hún í samráði við lögfræðinga ráðuneytisins. Þeir telja að réttur fjármálastofnana sé varinn af stjórnarskrá. Fyrir kosningar hafði Hanna Birna uppi stór og mikil orð um óréttlætið sem í nauðungarsölum fælust. Þessi orð reynast vera innantómt blaður. Marklaust blaður til að vinna augnablikssigur á flokksfundi. Nú hefur veruleikinn tekið við. Köld lögmál fjármagnsins ráðast. Hagsmunasamtök heimilanna og fjölmargir aðrir hafa lengi barist fyrir því að nauðungarsölur verði stöðvaðar. Sú barátta hefur ekki enn borið árangur. Framsóknarflokkurinn vann mikinn kosningasigur vegna stórfenglegra loforða um að leiðrétta verðtryggð lán  og bæta stöðu skuldugra heimila. Hvar eru nú efndir? Sjálfstæðisflokkurinn lofaði einnig miklu. Flokkar sem svíkja helstu kosningaloforð hafa gert sig sjálfa umboðslausa. Eignamissi fylgir skömm og uppgjöf. Eignamissir hefur félagslegar og tilfinningalegar afleiðingar fyrir þá sem fyrir verða. 

Lagaumhverfi innflytjenda á Íslandi.

Fyrstu lög um útlendinga eru frá 1920 og hétu þau lög um eftirlit með útlendingum. Lögin fjölluðu um heimild til komu og dvalar og heimild til brottvísunar. Með lögunum var lögð áhersla á að glæpamenn kæmust ekki inní landið svo og þeir sem ekki gætu framfleytt sér.  Ný lög voru sett 1936 og fólu þau í sér ítarleg ákvæði um eftirlit með útlendingum. Í þessum lögum eru sérstök ákvæði um skyldur þeirra sem hýsa erlenda gesti. Árið 1954 gerir  Ísland sérstakt samkokulag við hin Norðurlöndin um þá skipan mála sem enn er í gildi. 1965 eru sett ný lög um eftirlit með útlendingum. Í þeim er ákvæði um réttarstöðu flóttamanna.  Árið 2001 var ákvæðinu breytt vegna Dyflinnarsamningsins. Í lögunum 1965 er fellt brott það ákvæði að vísa megi útlendingi úr landi ef hann þyggur opinbera framfærslu. Breytingar eru gerðar á lögunum 1993 í tengslum við aðild Íslands að EES. 2001 eru gerðar lagabreytingar vegna aðildar Íslands að Schengen samstarfinu. Sérstakt eftirlit er fellt niður innan svæðisins. 33 ríki eru í Schengen samstarfinu. Hluti af samstarfinu átti að vera gagnkvæm skipti á upplýsingum til að berjast gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi. Ný lög um útlendinga taka gildi 2003 og þá verður til heildstæð löggjöf um málefnið. Þessi lög innihalda þó ekki ákvæði um aðlögun útlendinga að íslensku samfélagi. --Dvalarleyfi þurfa þeir sem koma frá löndum utan EES og hyggjast stunda hér vinnu eða stunda atvinnustarfsemi. Dvalarleyfi eru margs konar en þau eru á verksviði Útlendingastofnunar. Eftir að hafa dvalið hér í fjögur ár eer hægt að sækja um búsetuleyfi. Fjölmörg lög snerta útlendinga. Nefna má ákvæði í lögum um rétt sjúklinga sem fjalla um túlkaþjónustu. Reglugerð var sett um atvinnuréttindi útlendinga 2005. Á grundvelli þeirrar reglugerðar var notuð mjög ströng túlkun sem snerti útlendinga frá löndum utan EES. Almennt er það svo að framkvæmdavaldið hefur mun ríkari valdheimildir gagnvart útlendingum en íslenskum ríkisborgurum. 

Er atvinnuleysi í raun 12%?

Samningar eru framundan og flest verkalýðsfélög hafa áhuga á skammtímasamningum vegna ótryggs ástands og óvissu um þróunina. Söngur SA er velþekktur og ávallt hinn sami. Hógværar kröfur og litlar hækkanir til að hleypa verðbólgu ekki af stað. Allir tapa á því ! Jú, einmitt! Stýrir launaþróun ein verðbólgunni. Hvað um blessaða krónuna sem stundum flýtur en er nú í höftum. Verðbólga komst í 18% 2008 vegna hruns krónunnar en ekki vegna stórhækkaðra launa. Aukinn launakostnaður merkir ekki sjálfkrafa hækkun á verði seldrar vöru og þjónustu. Það fer eftir samkeppnisstigi á markaði. Þeir sem hafa rétt til atvinnuleysisbóta og nýta þann rétt eru nú 5%. Nokkur fjöldi hefur misst þann rétt. Atvinnuþátttaka er með minnsta móti nú þannig að nokkur fjöldi sem myndi vinna í eðlilegu árferði kýs að sitja heima. Þúsundir hafa yfirgefið landið í leit að vinnu. Þjóðarsáttin var sögulega merkileg. Allir aðilar komu að því borði. Álíka gæti gerst ef allir aðilar nota næsta hálfa árið vel. Gengi krónunnar er mikilvæg stærð í tekjum og útgjöldum fyrirtækja og útgjöldum og kaupmætti almennings. Langtíma samningar hljóta að byggja á fráhvarfi frá fljótandi gengi og tengingu krónunnar við annan gjaldmiðið eða myntkörfu.

Valdamesta kona alþjóðlegra fjármála.

Obama hefur skipað Janet Yellen nýjan Seðlabankastjóra USA.  Í fyrsta skipti í sögunni stjórnar kona valdamesta seðlabanka heims. Yellen sem er 67 ára gömul vill skapa meira gegnsæi. Peningamál eiga að vera öllum skiljanleg. Eiginmaður hennar er G Ackerlof og hefur unnið til Nóbelsverðlauna í hagfræði. Undanfarna áratugi hafa þau skrifað fjölmargar bækur saman og stundað rannsóknir saman. Þau hæfa hvert öðru og eru sammála um stefnur í þjóðhagfræði! Larry Summers var fyrsta val Obama en hann þótti pólitískt umdeildur. Ben Bernanke fráfarandi bankastjóri tilkynnti í síðustu viku að bankinn myndi halda vöxtum lágum og auka peningamagn. Áhrif ákvarðana Seðlabanka USA ná víða á mörkuðum. Meira gegnsæi merki m.a. meira upplýsingastreymi. Yellen hafði áhrif á það að nú heldur Seðlabankinn blaðamannafundi fjórum sinnum á ári. Yellen vill horfa á mannlegu hliðina. Tölur eru ekki bara tölur heldur tákna þær menneskjur og mannleg örlög. Fjölmargir hafa fangað skipun Yellen í embætti. Meðal þeirra eru Nancy Pelosi og Paul Krugman. Getur kona stjórnað Seðlabankanum á skilvirkan hátt spyr Krugman. Spurningin ætti að vera óþörf.

Bloggfærslur 9. október 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband