Staða ríkisfjármála; áróður og veruleiki.

1. þáttur ; áróðurinn.

Þann 12. 6. héldu SDG og BB blaðamannafund í Þjóðmenningarhúsinu. Sögðu þeir dökkar horfur vera í ríkisfjármálum. SDG sagði ljóst að fjárlög ársins myndu ekki ganga eftir. Staða rikissjóðs væri verri og lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þeir félagar töldu sig vera að upplýsa fyrir blaðamönnum á fundinum og þar með þjóðinni hver væri raunveruleg staða ríkissjóða.

2. þáttur ; veruleikinn.

Ríkisendurskoðun sendir frá sér skýrslu um framkvæmd fjárlaga á fyrri helming ársins. Þar kemur fram að afkoma ríkissjóðs hafi verið betri en áætlað var. Rekstrarhalli var 16.7 milljarðar króna en hafði verið áætlaður 21 milljarður. Gjöld voru tæpum 8 milljörðum króna lægri en áætlað hafði verið og tekjur lítilllega hærri en áætlað hafði verið.

Niðurstaða; SDG og BB eru snillingar. 

 


Atvinnulýðræði á vinnustöðum.

Þingsályktunartillaga VG sem lögð var fram á Alþingi í dag er allrar athygliverð. Skipa á nefnd sem gera á tillögur um atvinnulýðræði hjá einkafyrirtækjum og fyrirtækjum í opinberri eigu. (Í plagginu er einnig nefnt atvinnulýðræði meðal nemenda í skólum en það verður látið liggja milli hluta.) Markmið atvinnulýðræðis er að auka áhrif starfsfólks á vinnustöðum. Orðalagið er afar óljóst og opið hvort sem það er viljandi eða ekki. Nefndin skal athuga að hve miklu leyti atvinnulýðræði verði komið á með lögum og að hve miklu leyti með samningum. Ekkert er minnst á stjórnun en margar hugmyndir í stjórnunarfræðum leggja áherslu á þátttöku og virkni starfsfólks. Í greinargerð eru raktar fyrri tillögur sem komið hafa fram á Alþingi um þetta efni. Þær hafa verið fjölmargar á undanförnum áratugum. Menn hafa m.a. litið til Svíþjóðar og Þýskalands sem fyrirmynda. Ætla mætti að hugmyndir um atvinnulýðræði féllu í góðan jarðveg hér á landi. Fyrirtæki er lítil-örfyrirtæki á alþjóðlegan mælikvarða-samskipti eru óformleg og einkennast af nálægð milli fólks. Hópurinn er meira en summa einstaklinganna stendur á einum stað og með atvinnulýðræði væri hægt að virkja sköpnarmátt hópsins. Eigandi fjármagnsins í einkafyrirtæki er jafnframt eigandi fyrirtækisins en án skipulags og starfsmanna verður engin verðmætasköpun. Mikilvægustu ákvarðanir snerta fjárfestingar og stefnumótun fyrirtækis. Það er því mikilvægt að starfsmenn hafi áhrif á þessum sviðum.

 

 


Af hverju er ekki verðhjöðnun á evrusvæðinu?

Þessi spurning var sett fram í grein í þýsku útgafu WSJ í lok júlí í sumar. Það er mjög margt í hagkerfum landanna sem bendir til þess að verðhjóðnun gæti orðið veruleiki en af hverju er hún ekki löngu komin. Samdráttur hefur orðið í landsframleiðslu Spánar, Portúgals, Ítalíu,  Írlands og Grikklands. Samdráttur í Grikklandi er langmestur eða 20%. Í öllum þessum löndum hefur verið verðbólga nema á Írlandi 2009 til 2010. Verðhjöðnun er það sem Seðlabankar allra landa óttast mest. Menn horfa til reynslu Japana á tíunda áratugnum. Evrópski Seðlabankinn getur ekki beitt sér með sama hætti og aðrir seðlabankar af stjórnmálalegum ástæðum. En hvað kemur þá í veg fyrir verðhjöðnun? Í mörgum löndum er halli á fjárlögum ríkisins og því er mætt með hækkandi sköttum. Hærri neysluskattar viðhalda verðbólgu. Raunlaun fara lækkandi og það gefur fyrirtækjum tækifæri til að hækka álagningu á vörum og þjónustu. Á Ítalíu minnkar einnig  framleiðni. Í júní voru verðhækkanir í ofangreindum löndum ákaflega litlar og aðeins á Spáni var meiri verðbólga en 2%. Draghi bankastjóri segir að markmiðið sé 2%. Of mikil verðbólga er jafn slæm og of lítil. Reynsla Japana sýni hins vegar að land sem lendi í verðhjöðnun sé mjög lengi að á sér uppúr henni.

Útgjöld félagsþjónustu sveitarfélaga 2012 sýna batamerki í hagkerfi.

Árið 2012 fengu 7736 heimili félagsaðstoð frá sveitarfélögum. Árið 2011 voru það 7715.  Aukning er 0.3% og það er mikil breyting frá því sem verið hefur undanfarin ár. Árin 2007 til 2011 var árleg fjölgun um 860 á ári. Heimilum sem nutu aðstoðar fjölgaði úr 4280 í 7715. Tæplega helmingur heimila var atvinnulaus og tveir þriðju eða 2270 einstaklingar án bótaréttar. Tæp 4% þjóðarinnar bjuggu a heimilum sem fengu fjárhagsaðstoð. 5.3% allra barna á Íslandi bjuggu á þessum heimilum. Það eru 4190 börn sem eru 17 ára og yngri. Einstæðar mæður með börn eru 27% þeirra heimila sem njóta fjárhagsaðsoðar. Einstæðir barnlausir karlar eru 43% þeirra heimila sem njóta fjárhagsaðstoðar. Vegin meðalgrunnfjárhæð til einstaklings 18 ára og eldri var 147350 á mánuði árið 2012. 

Snowden skrifar Merkel kanslara Þýskalands bréf.

Þingmaður Græningja H. C. Ströbele hitti Snowden  í Moskvu. Hann mun færa kanslaranum bréfið. Á þessri stundu er óvíst hvort Snowden getur borið vitni fyrir þingnefnd. Kerry utanríkisráðherra USA hefur viðurkennt að njósnastofnanir hafi gengið of langt. Emerson sendiherra USA í Þýskalandi segir að þýskir þingmenn ákveði það sjálfir hverja þeir hitti. Það sé að sjálfsögðu réttur þeirra. Snowden hefur lýst yfir áhuga á að taka þátt í að upplýsa hlerunarmálið í Þýskalandi. Það er hins vegar afar flókið að hann komi til Þýskalands og beri vitni. Ef Snowden fer frá Rússlandi missir hann sjálfkrafa leyfi sitt til að dvelja þar. Mögulegt er að hann beri vitni án þess að fara til Þýskalands en þá er málið komið á borð ríkjanna tveggja. Snowden situr því fastur í Moskvu. 

Ráðherrar á Saga Class: hvar er hagræðingarhópurinn?

Þing Norðurlandaráðs var haldið í Ósló og þangað flugu meðal annarra SDG ásamt aðstoðarmanni og menntamálaráðherra ásamt aðstoðarmanni. Allir á fyrsta farrými. Aðstoðarmanni menntamálaráðherra fannst ekkert fréttnæmt í þessu. Aðstoðarmaður SDG lagði það til málanna að ráðherran hefði gist á frekar(sic) ódýru hóteli í Ólsó. Hann sagði einngi að engin lína hefði verið lögð um þetta í ríkisstjórninni(sic). Ráðherrar síðustu ríkisstjórnar létu sér nægja að fljúga á Economy Comfort. Nú er það umdeilanlegt hversu miklir peningar eru í þessu eina tiltekna atriði fólgnir. Hagræðingarhópurinn hlýtur að hafa skoðað allar ferðir og heildarkostnað vegna ferða embættismanna, þingmanna, og ráðherra eða annarra sem ferðast á kostnað ríkisins. Þetta eru peningar skattborgara. Laun ráðherra og þingmanna eru líka peningar skattborgara. Nú er Alþingi verkefnalaust dag eftir dag. Dagskrá tæmist eftir 3 klukkustundir. Nefndir halda ekki fundi. Eru þingmenn og embættismenn að vinna vinnuna sína?

Bloggfærslur 1. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband