Scarlett Johansson og klámið.

Leikkonan vakti athygli nýlega þegar hún sagði í viðtali við þekkt tímarit að hægt sé að njóta kláms eins og alls annars. Það gæti verið gott bæði fyrir bæði karla og konur en yrði að vera í hófi. Um þetta hafa menn deilt lengi. Árið 2011 birtist grein í tímaritinu Scientific America eftir M W Moyer. Þar kemur fram að nauðgunartíðni og tíðni kynferðisáreitni hafi ekki verið lægri síðan á sjöunda áratugnum í USA. Í Japan, Kína og Danmörku má greina sömu þróun. Í USA er greinilegt samband milli aðgengis að klámi á netinu og tíðni nauðgana. Eftir því sem aðgengið er meira er tíðnin lægri. Nú er um fylgni að ræða en ekki orsakasamband. Nákvæmlega hverjar orsakir eru getum við ekki fullyrt. Sú tilgáta að klám hvetji til nauðgana virðist við fyrstu sýn ekki sennileg. Gæti það verið að klámið minnkaði löngun til að nauðga? Rannóknir á sjöunda og áttunda áratugnum virtust benda til þess að dæmdir nauðgarar hefðu byrjað seinna að horfa á klám en aðrir hópar. 1992 ritaði breskur geðlæknir R Greeen bók um reynslu sína af meðferð dæmdra nauðgara. Hann hélt því fram að klám virtist styðja það að nauðgunarfantasíur yrðu það en ekki annað.(M W Moyer : The sunny side of smut)

A Greenspan: aðeins pólitísk eining getur bjargað evrunni.

Greenspan er þeirrar skoðunar að félagskerfi ríkja ESB verði að líkjast meir hvert öðru. Annars muni evrusvæðið ekki eiga sér framtíð. Hann álítur aðra fjármálakreppu vera mögulega. Gott og blessað: þessar skoðanir eru hvorki frumlegar né nýjar en hvað sem því líður hefur þýska blaðið Welt langt viðtal við bankastjórann sem fyrrum hafði mikil völd. Greenspan er að skrifa nýja bók. Hann vill skýra fjármálakreppuna með óskynsamlegri(irrational)hegðun manna sem eiga viðskipti á fjármálamörkuðum.En hefur mannsmynd hagfræðinnar beðið hnekki? Hvað um hinn hagræna mann? Í meginatriðum er maðurinn skynsamur og hagrænn segir Greenspan. Upplýsingin , eignarrétturinn og tilkoma kapitalismans hafa leitt til gífurlegra framfara og skapað auðlegð nútímans. Líkön Seðlabanka USA gátu ekki sagt fyrir um fjármálakreppuna , viðurkennir Greenspan. Það brást. Við gerðum ekki ráð fyrir óskynsamlegu hagrænu atferli manna. Annars eru hagfræðingar ekki spámenn í biblíulegum skilningi segir Greenspan. Það er hins vegar nauðsynlegt að koma í veg fyrir með lögum að bankarnir taki of mikla áhættu. Í dag verður að skylda bankana til að eiga amk 20% eigið fé. Evrusvæðið verður að vera politisk eining(samband,politische Union) annað hvort öll ríkin eða kjarnaríkin. Sameiginlegt efnahags- og myntsvæði getur ekki haft mismunandi félagskerfi(velferðarkerfi). Þýski seðlabankinn (Bundesbank) hefur lánað seðlabönkum annarra ríkja 570 milljarða evra. Peningakerfið er ekki í jafnvægi. Nú ert þú orðinn 87 ára gamall ,segir blaðamaðurinn. Mér finnst ég vera mjög ungur segir Greenspan; alls ekki eldri en 85 ára..(Die Welt)

Putin og Snowden. Njósnari og njósnari.

Báðir eru þeir hrifnir af bardagaíþróttum. Annar stundar júdó en hinn kung fu. 23 ára gamlir byrjuðu þeir að vinna fyrir leyniþjónustu lands síns. Annar er forseti en hinn er uppljóstrari og hetja á tímum rafrænna upplýsinga. Gamall KGB njósnari getur metið aðstæður rétt. Uppljóstrarinn er afar mikilvægur og hann þarf ekki að óttast langan arm CIA. USA á í vök að verjast. Þeir geta engan veginn komið fram sem forystuland háleitra gilda eins og lýðræðis og mannréttinda. Snowden veldur nokkrum erfiðleikum í samskiptum Rússlands og USA. Hann er eins og heit kartafla. Það er alveg ljóst hvað Putin hefði viljað gera ef rússneskur njósnari hefði leikið svipaðan leik. Enginn samningur er um framsal njósnara milli Rússlands og USA. USA hafa beitt mikilli hörku. Þeir neyddu flugvél Evo Morales til að lenda sem var mikil niðurlæging. Putin skilur Snowden alls ekki. Putin er alinn upp í fátækt í Leningrad en í störfum sínum fyrir leyniþjónustuna komast hann til æðstu metorða. Putin var m.a. yfirmaður rússnesku leyniþjónustunnar í Austur-Þýskalandi og talar þýsku reiprennandi. Hann skilur ekki hugsjónamenn eins og Snowden sem eyðileggja glæstan starfsferil. Snowden er það ljóst að rússneska leyniþjónustan FSB reynir að nota upplýsingar hans og notfæra sér hann. Snowden kemur á hentugum tíma fyrir Putin. Vinsældir hans hafa dalað vegna margra mála. Réttarhöldin yfir Pussy Riot, valdbeiting gegn samkynhneigðum og einnig umhverfissinnum.

Gjafapakkar til ríka fólksins í Noregi.

Ríkisstjórn Ernu Solberg ætlar að lækka eignaskatt og afnema erfðafjárskatt. Hundrað ríkustu menn Noregs fá 87 milljónir í skattaaslátt. Hægri flokkurinn og Framfaraflokkurinn gefa vinum sínum gjafir. Cancia fyrirtækið studdi flokkana með 1.5 milljón króna framlagi í kosningabaráttunni. Þessi fjárfesting ætlar að skila arði. Eftir breytingar á sköttum mun fyrirtækið greiða 1.26 milljón krónur minna í skatta. Skattar munu lækka um 3.57 milljarða og það kemur tekjuháum og auðugun hópum einkum til góða. Auk þess ætlar ríkisstjórnin að lækka almenna tekjuskattinn um 1% og munu skatttekjur lækka um 10.54 milljarða. Það er verið að dreifa þjóðartekjum á nýjan hátt með nýjum áherslum. Hjá NHO-samtökum atvinnurekenda eru menn í sjöunda himni. Þetta er í samræmi við það sem atvinnulífið(sic) hefur lengi beðið um. þar á bæ sjá menn fram á auknar fjárfestingar sem munu skapa hagvöxt og fleiri störf(sic). Aukin eignaraðild Norðmanna að fyrirtækjum sem eru með rekstur í Noregi mun einnig koma. 

Bloggfærslur 10. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband