Umbætur í Kína. Markaður og vald flokksins.

Í fjóra daga hefur miðstjórn Kínverska kommúnistaflokksins þingað en niðurstaðan er fremur óljós. Í ályktun er mikið rætt um markað en kjarni málsins er að tryggja völd flokksins. Í miðstjórninni eru 205 æðstu embættismenn flokksins og 171 frambjóðendur. Þeir vilja nýtt og skilvirkara skattakerfi, nútímalegt fjármálakerfi og fleiri fríverslunarsvæði. Hagkerfi Kína er sósíalismi með kínverskum einkennum stendur þar. Opinber eign er ráðandi en styðja ber frumkvæði og nýsköpun. Mikilvægt er að tryggja forystu flokksins en jafnframt á að skapa sósíalískt réttarkerfi. Stofna á nefnd sem sér um innra öryggi ríkisins.Gæti það merkt að kínversk útgáfa af KGB verði til? Kína á við margvísleg vandamál að stríða:1)bankakerfið; flokkur og ríki ákveða vexti og á hverju svæði fyrir, sig hver fær lán. 2)gengi gjaldmiðilsins Yuan fer ekki eftir framboði og eftirspurn. Það eru forystumenn flokksins sem ákvarða gengið. 3)farandverkamenn eru 300 milljónir og þeir eru annars flokks borgarar. 4)ríkisfyrirrtækin. Flokksmenn stjóra 110 risastórum fyrirtækjasamsteypum. Aðrir komast einfaldlega ekki að. Það er óljóst hvernig tekst að leysa úr þessum ógnarstóru vandamálum. Okkar vegna og Kínverja vegna skulum við vera bjartsýn.


Föst sambönd, skyndikynni og kynlíf á háskólasvæðum.

Samkvæmt óformlegri könnun sem gerð var á student.is höfðu 15% svarenda stundað kynlíf á háskólasvæðinu. 70 manns tóku þátt í könnuninni og hún er ekki vísindaleg í venjulegri merkingu. Úrtakið mun ekki hafa verið rétt valið og engin leið er að meta áreiðanleika svaranna. Hvað um það. Víða í heiminum eru stundaðar rannsóknir á kynlífi stúdenta. Í nýlegum bandarískum rannsóknum hefur komið í ljós að föst sambönd eru mun hagstæðari fyrir konur en skyndikynni hvað fullnægingu varðar. Þrátt fyrir jafnræði á skyndikynnamarkaðinum milli karla og kvenna hefur það ekki breyst að karlar eru líklegri til að fá fullnægingu en konur. Í rannsókn sem gerð var á stúdentum við Indianaháskólann kom í ljós að konur í föstum samböndum voru helmingi líklegri til að fá fullnægingu en þær sem höfðu marga maka á skyndikynnamarkaði. Í annarri rannsókn tóku 24000 stúdentar þátt og tók hún fimm ár. Í þeirri rannsókn kom í ljós að 40% kvenna höfðu fengið fullnægingu í síðustu skyndikynnum en hins vegar 80% karla. Af þeim konum sem voru í föstu sambandi fengu 75% fullnægingu í síðustu samförum.  Um fjórðungur kvenna fær fullnægingu eingöngu við sjálfsfróun. Sérhver lífsstíll hefur sína kosti og galla. Allir hafa frjálst val. (well.blogg.nytimes.com)

Þjóðernishyggja fyrir og eftir hrun.

Þjóðernisumræða hefur alltaf verið hluti af stjórnmálaumræðunni. Eftir hrun hefur hún verið mjög áberandi. Öll stjórnmálaumræða fer fram með því að nota tákn en þau geta haft mikið tilfinningalegt gildi. Þjóðernishyggja er mikilvæg í pólitískum og menningarlegum skilningi. Hún veitir einstaklingi þá tilfinningu og vissu að hann tilheyri pólitísku kerfi. Mikilvægt í þessu ferli er að búnar eru til táknmyndir sem hafa það hlutverk að sameina þjóðina. Sem dæmi um opinber tákn má nefna fána, skjaldarmerki og þjóðsönginn. Óopinber tákn eru t.d. íslensk náttúra, ósnortin og hrein, íslenski hesturinn, skáld, rithöfundar og listamenn sem skapað hafa mikil menningarverðmæti. Nefna má einstök dæmi :Fjallkonan sem er tákn þjóðarinnar, tungumálið er tæki menningarinnar en um leið eitt sterkasta tákn þjóðernishyggju, víkingar og víkingatíminn, þjóðbúningurinn og mörg fleiri tákn mætti nefna. Íþróttalið geta bæði verið tákn fyrir þjóðina hæfileika hennar og getu en einnig veita þau tækifæri til samsömunar. Bæði opinber og óopinber tákn eru notuð í auglýsingum og kosningaáróðri. Þá eru þau tengd við ákveðna vöru eða málstað. Þjóðernisyggjan tengist ákveðnum atburðum eða samkomun. 17. júní ber þar auðvitað hæst. Evróvision keppnin verður til það að þjóðernishyggja eða -kennd kemur í ljós og eins konar þjóðhátíðarstemming verður til. Margir telja þorrablót og þorramat sérstaklega þjóðleg fyrirbæri. Þorrablótin eru reyndar ágætt dæmi um það sem er nefnt tilbúin hefð. Eftir hrun má sjá ýmis merki þess að þjóðernishyggja hafi elfst sem er reyndar eðlileg þróun. Hún er skiljanleg út frá tilfinningum.

Fjárhagsstaða sveitarfélaga 2012.

Fjármál sveitarfélaganna markast af hruni bankakerfisins eða fjármálakerfisins í heild  sinni. Þróun nokkurra vísitala árin 2007 til 2012 skýrir málið. Á þessu tímabili hækkaði gengisvísitalan um 86% og vísitla neysluverðs um 51%. Heildartekjur sveitarfélaganna uxu á sama tíma um 28.6%. Rauntekjur hafa því lækkað. Á sama tíma jukust rekstrargjöld um 36.4%. Laun og launateng gjöld sem hlutfall af heildartekjumm hefur hækkað. Á tímabilinu hefur framlegð sem hlutfall af heildartekjum lækkað úr 15% í 9%. Skuldir og skuldbindingar hafa vaxið um 55% á tímabilinu. Nettóskuldir hafa vaxið úr 54% í 99%. 

39 sveitarfélög stóðust ekki  fjárhagsleg viðmið sveitastjórnarlaga. Skuldahlurtfall má ekki vera hærra en 150%. Við þær aðstæður fara 15% tekna í afborganir. Nefna má Stykkishólmsbær þar sem skuldahlutfallið er 150%, Ísafjarðarbær með 175%, Kópavogsbær með 244%, Sandgerðisbær með 388% og Norðurþing 245%. Skuldahlutfall Reykjanes bæjar er 257%. Öllsamstaðan skuldar 37.5 milljarða.  Sérstakar aðgerðir og samningar voru gerðir við eftirfarandi sveitarfélög: Svalbarðshrepp, Vesturbyggð,Sandgerðisbæ, Skaftárhrepp og  Grundafjarðarbæ. Í stærsta sveitarfélagi landsins; Reykjavík voru íbúar 119764 árið 2012. Skuldahlutfall var 83% og netto 54%.Heildartekjur á íbúa voru 610 þúsund krónur en heildarskuldir 508 þúsund krónur. Garðabær er draumasveitafélag tímaritsins Vísbendingar árið 2013. Síðan koma Seltjarnatnes, Snæfellsbær og Hornafjörður. Á botni listans er Álftanes og Kópavogur. Í þessum samanburði er Reykjavík í 31. sæti. Almennt séð er þróunin jákvæð í fjármálum sveitarfélaga.

 


Bloggfærslur 12. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband