13.11.2013 | 21:09
Öfgaflokkar til hægri mynda bandalag.
Le Pen og von Wilders ætla að vinna saman á Evrópuþinginu eftir næstu kosningar. Nýstofnuð samtök þeirra heita Evrópska frelsisfylkingin. Á Evrópuþinginu munu þau mynda Fraktion og markmiðið er að berjast gegn ESB. Þau reyna stöðugt að greina sig frá öfgafullum skoðunum en þeirra eigin orðræða er hættulega nærri þeim. Wilders sem er leiðtogi PVV í Hollandi hyggst nú berjast gegn skrýmslinu í Brussel( hans orðalag). Le Pen leiðtogi Front national talar um að tímamót hafi orðið. Fleiri flokkar munu bætast í samtökin og mynda sterkt afl á Evrópuþinginu. Við viljum fá lýðræðið aftur segir hún. Innan ESB erum við í þrældómi. Frakkland á að ganga úr ESB og ráða sínum málum sem fullvalda ríki. Wilders lætur nú hagfræðinga reikna út hvað það muni kosta Holland að ganga úr ESB. Á fjöldafundum flokks hans hafa nýfasistar birst með slagorð og mótmælasspjöld. Fyrst kemur eigin þjóð stóð þar meðal annars. Marie Le Pen leit á útrýmingarbúðir þýskra nasista sem aukaatriði í sögunni en dóttirin segist ekki hafa erft allar skoðanir föður síns. Enn er óljóst hverjir muni ganga í samtökin. Nigel Farage leiðtogi UKIP virðist ekki mjög áhugasamur.(Spiegel).
13.11.2013 | 20:00
Refsingar við smygli á fíkniefnum í nokkrum löndum.
Refsingar eru breytilegar eftir aðstæðum og mjög ólíkar frá einu landi til annars. Það skiptir máli hversu mikið magnið er og hversu hættulegt efnið er. Það skiptir einnig máli hvort viðkomandi er félagi í skipulögðum glæpasamtökum og hvort hann hefur hlotið refsingu áður. Í Austurríki getur refsing verið allt að 5 árum. Í Belgíu er refsing 3 mánuðir til 5 ár. Í Króatíu er refsing 3 til 15 ár. Í Danmörku er refsing allt að 2 árum ef um lítið magn er að ræða.Ef um er að ræða mikið magn af veikari efnum getur refsing verið allt að 10 árum. Ef um hörð efni er að ræða, eins og heróín og kókaín getur refsing orðið allt að 16 ár. Í Frakklandi getur refsing orðið mest 10 ár. Sektir geta orðið afar háar. Í Noregi er 3 til 15 ára fangelsi fyrir smygl á verulegu magni fíkniefna. (emcdda).
13.11.2013 | 17:52
Hver ráðherra hefur 5 aðstoðarmenn og allur hópurinn eru þingmenn.
Upp er komin merkileg stað á Alþingi. Þingmaður sem eingöngu er háður samvisku sinni og hefur það hlutverk að setja lög og móta stefnu í landsmálum er nú orðinn aðstoðarmaður ráðherra. Forseti Alþingis hefur lagt blelssun sína yfir málið og telur það af hinu góða. Í lögum um stjórnarráð Íslands frá 2011 stendur í 22. grein : ráðherrum er heimilt að ráða aðstoðarmenn. Aðstoðarmenn skulu á hverjum tíma ekki vera fleiri en tveir. Heimilt er hins vegar að ráða þrjá til viðbótar samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar ef þörf er talin á. Í lögunum er tekið fram að aðstoðarmaður starfi ekki lengur en ráðherra sjálfur(sic). Aðstoðarmaðurinn heyrir beint undir ráðherrann.-Nota bene-. Ákvörðun kjararáðs ræður starfskjörum aðstoðarmanns. Hér eru miklir hagræðingarmöguleikar. Hvernig væri ef allir ráðherrar réðu eingöngu þingmenn sem aðstoðarmenn? Mikill launakostnaður myndi sparast. Að visu ber að viðurkenna að skilin milli löggjafarvalds og framkvæmdavalds yrðu ákaflega óljós. Í langa herrans tíð bjó íslenska þjóðin við það að skilin milli framkvæmdavalds og dómsvalds voru enga vegin ljós. Sýslumenn voru yfirmenn lögreglunnar en um leið dómarar. Dómarar á Íslandi eru skipaðir af ráðherrum, þ.e. af pólitísku valdi. Er ekki rétt að hafa samræmi í vitleysunni?
Bloggfærslur 13. nóvember 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar