14.11.2013 | 21:03
Írland yfirgefur öryggisnetið.
Í desember ætla Írar að hætta í samstarfi við Framkvæmdastjórn ESB, Evrópska Seðlabankann og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þeir vilja standa á eigin fótum. Þeir munu ekki taka frekari lán eða vinna samkvæmt áætlunum í samstarfi við þessa aðila. Enda Kenny forsætisráðherra tilkynnti að eftir 15.12 munu Írar ekki nýta sér lánalínur hjá Björgunarsjóði Evrópska Seðlabankans. Írski ríkissjóðurinn nýtur nú meira trausts á fjármálamörkuðum en þegar kreppan var hvað dýpst. Áhættuálag var þá 14% en er nú 3.5%. Allt virðist stefna í rétta átt. Landsframleiðslan fer vaxandi og halli á fjárlögum minnkar. Írar hefðu getað tekið lán uppá 10 milljarða evra en það hefði kostað 50 milljónir evra í vexti og gjöld. Ef þessi kostur hefði verið valinn þá var útilokað að halda því fram að allt stefndi í rétta átt. Ýmsir telja að núverandi stefna feli í sér óvissu og áhættu. Þeir telja gjaldeyrisvarasjóði of litla. Írska ríkið er skuldugt. Skuldir eru 120% miðað við landsframleiðslu. Írum finnst eðlilegt að ESM taki þátt í að létta skuldabyrðina. Írska ríkið hafi gengið í ábyrgð fyrir bankana og þar með stuðlað að stöðugleika á evrusvæðinu.
14.11.2013 | 16:48
Hagvöxtur í ESB 2000 til 2013.
Þegar hagvöxtur er metinn er eðlilegt að líta til lengri tímabils. Hagsveiflur eru af ýmsum toga. Oft er talað um 5 til sjö ára sveiflu. Einnig eru mun lengri sveiflur sem ákvarðast af miklum tækniframförum. Hagvöxtur verður vegna framleiðniaukningar og/eða vegna aukningar á vinnuafli og náttúruauðlindum. Nýlegt dæmi er makrílinn sem skiptir miklu fyrir þjóðarbúskapinn og atvinnuástandið....Ef litið er á tímabilið 2000 til 2013 var árlegur meðalvöxtur í ESB( 28 ríki) 1.2%. Á evrusvæðinu var árlegur meðalvöxtur 0.9%. Ef litið er til einstakra landa var vöxturinn 2.3% á Írlandi, í Svíþjóð 2.1%, í Finnlandi 1.5% og sama tala gildir fyrir England, í Þýskalandi var vöxturinn 1.1% og í Danmörku 0.6%. Árið 2000 var vöxtur á evrusvæðinu 3.8%, árið 2005 var hann 1.7% og 3% árið 2007. Og svo kom kreppan(sic). Samdráttur árið 2009 var 4.4%. Hagvöxtur -4.4%. Hér á landi varð samdráttur árið 2009 6.6%. Hagvöxtur-6.6%. Árið eftir var hagvöxtur-4.1%.(allar tölur frá OECD). Á Ítalíu og í Portugal var hagvöxtur á 13 ára tímabili núll, 0. Mestur hefur hagvöxtur orðið í Litháen eða að meðaltali 4.3% öll þessi ár.
14.11.2013 | 13:20
Skákæði í Noregi vegna heimsmeistaraeinvígis.
Norðmenn eru þekktir fyrir dálæti sitt á hægum útsendingum í sjónvarpi. Sjónvarpið fylgdist með siglingu ferju eftir langri strandlengju Noregs marga klukkutíma á dag. Lengsta viðtal í norska sjónvarpinu tók 30 klukkutíma. Nú fylgjast þúsundir Norðmanna með einvígi Carlsen og Anand sem fram fer á Indlandi. Norðmenn eru ákaflega stoltir af afreksmönnum sínum í íþróttum. Skærustu stjörnurnar eru í vetraríþróttum. 13 ára gamall var Carlsen stórmeistari og nú er hann í allra fremstu röð stórmeistara í heiminum. Nrk og Vg eru með beinar útsendinar. Stórmeistarar skýra skákirnar og áhorfendur geta komið með athugasemdir og tilgátur um næstu leiki. Í fjórðu skákinni voru 35000 notendur tengdir við beina útsendingu NRK. Norskur drengur sem kemst í fremstu röð er alltaf sigurvegari virðist vera viðhorfið. Í skólum og vinnustöðum hafa víða verið komið fyrir stórum skermum og þar er fylgst með af áhuga. Hjá þessari ríku olíuþjóð virðist vinna og nám hafa þokað fyrir skákáhuga amk í bili.
14.11.2013 | 12:01
Vöxtur kortaveltu fer fram erlendis en ekki innanlands.
Að raungildi jókst kortavelta Íslendinga erlendis um 8.5% frá okt. 2012 til okt 2013. Kortavelta innanlands jókst á sama mælikvarða um 1.5%. Á sama tíma aukast brottfarir Íslendinga um 6.4%. Raunaukning í allri kortaveltu er 2.4%. Það sem af er árinu hefur raunaukning í kortaveltu verið 5.2% en fjölgun brottfara 0.6%. Þetta þýðir auðljóslega að meðaleyðsla á hvern einstakling hefur aukist. Nú er ein brottför ekki sama og einn einstaklingur og kaup á vöru og þjónustu er innflutningur á vöru og þjónustu. Nú er kortavelta ekki sama og einkaneysla og nær ekki yfir nema hluta af henni. Þessar stærðir þurfa heldur ekki að þróast með sama hætti. Kortavelta Íslendinga erlendis er meiri en kortavelta útlendinga hér á landi. Munurinn er nálægt tveimur milljörðum. Ef svo fer fram sem horfir mun jafnvægi skapast hér innan tiltölulega skamms tíma.
14.11.2013 | 10:45
KPMG FS og tveir starfsmenn dæmdir í Hæstarétti.
Þessir aðilar voru dæmdir í Hæstarétti tl að greiða fyrrverandi eigenda Vinnulyftna hf 122 milljónir í skaðabætur. Kpmg var ekki talið hafa gætt hagsmuna eigendans en endurskoðunarfyrirtækið hafði milligöngu um söluna. ( Málið er númer 302 og má lesa um það á síðu Hæstaréttar). Fyrrverandi eigandi var sjálfur látinn bera þriðjung tjóns síns vegna þess að hafi ekki sýnt nægilega aðgæslu. Í viðtali við dv.is sagði fyrrverandi eigandi að hann væri sigurvegari í málinu. Um hefði verið að ræða svikamyllu sem hafði það markmið að féflétta hann. Hann taldi gott og réttlátt að hvítflibbabrotamenn væru einnig dæmdir og færu halloka gegn almenningi sem hann taldi sig greinilega vera hluta af. Það er ljóst að þessi dómur mun hafa allnokkru áhrif. Áritanir endurskoðenda sæta nú efnislegri endurskoðun Hæstaréttar er haft eftir lögmanni. (Hefur það ekki verið þannig hingað til?) Jón S Helgason framkvæmdastjóri KPMG segir að niðurstaða Hæstaréttar hafi komið okkur( væntanlega KPMG) á óvart. Margir sem standa í svipuðum viðskiptum munu nú hafa töluverðar áhyggjur af dómnum segirsegir hann ennfremur skv mbl.is. -Þetta eru undarleg ummæli. Dómurinn hefur fordæmisgildi og hann er leiðbeinandi fyrir alla slíka samninga. Áhyggjur eru óþarfar. Menn þurfa að lesa dóminn og draga réttar ályktanir. Og fara síðan að lögum.
Bloggfærslur 14. nóvember 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar