Stjórnmálin á tímum Twitter og Facebook.

Kosningar verða á Englandi 2015. M Dugher er þingmaður breska Verkamannaflokksins. Hann á að stýra kosningabaráttunni fyrir flokk sinn,þ.e. þeim hluta sem snýr að fjölmiðlum. Almenningur er leiður á stjórnmálum og þess vegna skiptir öllu hvernig við kynnum áherslur okkar fyrir kjósendum. Hann vill taka bandaríska Demókrata til fyrirmyndir og hvernig þeir unnu sigur í kosningum 2008 þegar Obama varð forseti. Á tímum netsins skipta peningar ekki eins miklu máli og áður. Þar með hefur Íhaldsflokkurinn tapað helsta óaðili sínu. Félagar í Verkamannaflokknum eru 193000 en í Íhaldsflokknum eru þeir 134000 og fer fækkandi. Yfirburðir Verkamannaflokksins hafa alltaf falist í miklum fjölda virkra félaga. Ný heimasíða Verkamannaflokksins hefur þegar hlotið lof frá mönnum sem störfuðu með Obama 2008. Með því að nýta sér Twitter og Facebook hafa nálægt eitt þúsundir flokksmanna dreift upplýsingum í milljónatali um vefinn. Hefðbundnir yfirburðir Íhaldsflokksins hafa einnig falist í prentmiðlum. Vægi slíkra miðla fer hins vegar hratt minnkandi. Tækni er eitt en pólitískar röksemdir og sannfærandi málflutningur er það sem skiptir máli. (The Independent).

Kína : tvö börn möguleg en með skilyrðum.

Í 30 ár hefur gilt ströng regla; hjón mega aðeins eiga eitt barn. Nú hefur þessu verið breytt. Hjón geta eignast tvö börn ef annað foreldrið er einkabarn. Nefnd sem sér um lýðheilsu og fjölskylduáætlanir hefur tilkynnt að staðbundin yfirvöld muni ákveða hvenær og með hvaða hætti þessari ákvörðun verði framfylgt. Taka verður tillit til aðstæðna á hverju svæði fyrir sig. Guandong í Suður Kína verður líklega fyrsta héraðið til að framkvæma hin nýju lög. Nefndin telur ótta við of mikinn fjölda fæðinga vera ástæðulausan. Það er búist við því að heildarfjöldi Kínverja verði töluvert fyrir neðan 1.43 milljarður árið 2020. Búist er við að fæðingum fjölgi mikið í stuttan tíma en að fjöldi fæðinga verði 13.79 milljónir sem er svipað og árið 2000. Kannanir benda til þess að 10 milljón eigi rétt á að eignast sitt annað barn en um 60% hafi áhuga á því. Þessi hjón þurfa að senda inn umsókn. Ef þau koma ekki frá sama héraði nægir að senda inn umsókn til annars héraðsins. Nefndin varar við að refsing liggur viða að brjóta lög og reglur. (cctv.com)

Anthony Giddens: ESB getur sigrast á kreppunni og verður að gera það.

Giddens er einn þekktasti félagsfræðingur heims. Hann hefur ritað fjölmargar fræðibækur og greinar. Margar bóka hans eru notaðar sem kennslubækur í háskólum í Evrópu og USA. Giddens gerir greinarmun á ESB 1, ESB 2, og pappírs Evrópu. ESB1 er aðferð Monnet og þannig eiga hlutirnir að ganga fyrir sig. Framkvæmdanefndin er miðlæg og hefur stefnumótandi áhrif. Ef kreppuástand skapast dugar þessi aðferð ekki. Þá gerist það að sterk ríki taka sig saman og mynda óformlegt bandalag. Þannig myndast skuggastjórm sem hefur áhrif á og tekur mikilvægustu ákvarðarnir. Framkvæmdanefndin hefur komið með margvísleg háleit markmið eins og Evrópa 2020 en slíkar markmiðssetningar eru ekki í samræmi við aðferðafræði Monnet. Giddens gerir greinarmun á formlegu fullveldi og raunverulegu fullveldi. Í stjórnarskrá ríkja er formlegu fullveldi lýst. Raunverulegt fullveldi felst í því að hafa áhrif á öll málefni ríkisins í heimi sem einkennist af alþjóðavæðingu og hröðum breytingum. Giddens er þeirrar skoðunar að aðildarríki ESB hafi aukið við fullveldi sitt við inngöngu. Pólitískur ríkja eflist við það að þau verða hluti af stærri heild. Nú standa yfir viðræður um fríverslunarsamning milli USA og ESB. Ef Bretland stæði utan við ESB væru áhrif þeirra á þetta ferli ákaflega takmörkuð. Sameiginleg mynt-evran- gerir löndin mjög háð hvert öðru og þannig verða örlög þeirra samtvinnuð. Í Evrópu hefur netið og umræðan þar mikil áhrif á þróunina. Netið leiðir til meiri umræðu milli menningarsvæða en hefur einnig áhrif á fjölmenningarsamfélög Evrópu. (LSE).

Króatía. Nokkrar staðreyndir.

Króatía lýsti yfir sjálfstæði gagnvart Júgóslavíu 1991 en við tóku ár miskunnarlausa og harðra átaka. 2009 gekk landið í Nato og 2013 í ESB. Króatar eru tæp 90% af íbúum landsins en Serbar 5% og aðrir 5%.  88% íbúa eru rómversk-kaþólskir. Íbúar eru 4.5 milljónir. 27% íbúa eru undir 25 ára aldri. 60% íbúa búa í þéttbýli og stærsta borgin heitir Zagreb.Konur sem fæðast nú  geta vænst þess að lifa í 80 ár og karlar í rúm 72. Barnadauði er 5.96 á 1000 lifandi fædd börn. Í Króatíu miðast kosningaréttur við 18 ár en 16 ef viðkomandi er í fullu starfi. Á vinnumarkaði eru 1.7 milljón manna og 69% vinna í þjónustugreinum, 29% í iðnaði og 2% í landbúnaði. Rúmlega 20% íbúa eru fyrir neðan fátæktarmörk. Brúttó landsframleiðsla á mann var 10294 evrur árið 2012. Í landinu eru 1.5 milljón heimila og meðalfjöldi í heimili 2.8. (CIA)

Bloggfærslur 17. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband