19.11. 2013 er alþjóðlegur dagur klósettsins.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvað að þriðjudagurinn 19. nóvember 2013 yrði alþjóðlegur dagur klósettsins. Tveir og hálfur milljarður manna hafa ekki aðgang að hreinu og öruggu klósetti. Meirihluti þessa fólks býr í Afríku sunnan Sahara og í Asíu. Einfalt klósett myndi þýða skref í átt að heilbrigðara lífi,meira frelsi og meira jafnræði milli karla og kvenna. Það myndi bæta stöðu kvenna mikið. Sjúkdómar orsakast af slæmu hreinlæti og þeir hafa áhrif líf og lífskjör fólks sérstaklega barna. Það er beint samband á milli skorts á hreinlæti og fátæktar. Bætt hreinlæti var hluti af hraðri þróun þjóðfélaga í Evrópu og Ameríku til nútíma þjóðfelags. Hreinlætið hélst í hendur við bætta heilsu og auknar lífslíkur. Að hafa aðgang að hreinu vatni og búa við hreinlæti er hluti af mannréttindum.(worldtoiletday.org)

Sósíalismi í Seattle og milljarðamæringurinn Steve Forbes.

Kashama Sawant er bandarísk kona af indverskum ættum. Hún er tölvunarfræðingur og hagfræðingur. Hún var nýlega kosin í borgarstjórn Seattle borgar. Hún er mjög vinstri sinnuð og hefur verið virk í aðgerðum á vinstri væng. Kosning hennar fór fyrir brjóstið á Steve Forbes en hann studdi Mitt Romney með miklum fjárframlögum en hafði ekki árangur sem skyldi. Í Forbes tímaritinu er nú skyndilega gerð árás á Sawant. Hagfræði eru ekki raunveruleg vísindi stendur þar heldur hindurvitni eða töfraþulur galdramanns. Eitt má þó hagfræðin eiga. Hún bendir á augljósa staðreynd ; það er óbreytanlegt mannlegt að hver hugsi um eigin hag eða eigingirni er mönnum í blóð borin. En þetta hafa vinstrisinnar eins og Sawant aldrei skilið. En hvað kennir reynslan okkur? Ræður eigingirnin alltaf? Þegar fólk leggur líf sitt í hættu fyrir annað fólk eða fórnar lífi sínu fyrir aðra? Þegar fólk vinnur launalaust hjálparstarf? Hinn eigingjarni einstaklingur á frjálsum markaði er sögulega nýtt fyrirbæri. Er eðli hans yfirsögulegt og sammannlegt? það væri undarleg rökleysa að halda því fram. Ayn Rand hefur haft mikil áhrif með heimspeki sinni um græðgi og sjálfselsku mannsins. Teboðið hefur orðið fyrir áhrifum af heimspeki hennar og einnig Alan Greenspan sem segir að ekkert geti komið í staðinn fyrir markað aftengdan reglum. Það munu koma bólur og kreppur en hjá því verður ekki komist segir bankastjórinn fyrrverandi. En hvernig hefur Greenspan og félögum hans gengið að spá. WSJ gerð athugun á spádómum bankamanna, m.a. Ben Bernacke. Hlutfall réttra spádóma hjá honum var 29%. Og af hverju skapaði Guð hagfræðinga? Það var greiði við veðurfræðinga;)

Fíkniefnahneyksli í breskum banka.

Breskir bankar leggja rækt við dapurlega ímynd sína. Á myndbandsupptöku sést fyrrum yfirmaður eftirlits í The Cooperative Bank vera að kaupa dóp. Það var einmitt þessi banki sem var talinn öðrum fremri í siðferði. Hneykslismálin hafa verið  fjölbreytt og mörg í breskum bönkum á undanförnum árum. Milljarðar punda hafa tapast vegna áhættuviðskipta og ríkissjóður hefur neyðst til að hlaupa undir bagga. Bankar hafa verið rannsakaðir vegna markaðsmisnotkunar og mikil mannaskipti hafa verið í æðstu stöðum. Mail on Sunday, sem ku vera áreiðanlegt blað, birti fréttir af fíkniefnakaupunum með myndum og vísun í myndbandsupptöku. Þar sést Paul Flowers með þrjú hundruð pund í seðlum að tala við mann sem er líklega að selja efni s.s kókaín. Auk þess birti blaðið sms skilaboð þar sem sami maður ræðir fíkniefnakaup og neyslu. Flowers er 63 ára gamall og prestur í Meþódistakirkju.  Erfiðleikar bankans hafa haft áhrif á móðurfélagið Co-operative Group Ldt. Flowers hefur verið prestur í 40 ár en vegna dauðsfalls í fjölskyldunni og annarra erfiðleika leitaði hann náðir deyfandi áhrifa fíkniefna. 1.6 milljarða punda kostaði það að bjarga bankanum sem upphaflega hafði það að markmiði að bæta samfélagið. Glannaleg lán í fasteignaviðskiptum og útrásar/útþenslu órar komu bankanum á kaldan klaka. Bandarískur vogunarsjóður á nú stóran hlut í stofnun sem einu sinni var samvinnubanki. Á breskum fjármálamarkaði er fákeppni og stórir bankar ráða ríkjum; Lloyds Banking Group, The Royal Bank of Schotland Group, Barclays og HSBC Holding. Stjórnvöld hafa því reynt að efla smærri banka til að auka samkeppni. Hingað til hafa stjórnmálamenn viljað styðja við samvinnubankann en kannski verður það ekki mikið lengur.

England; vannæring á krepputímum.

Fjöldi tilvika skráðum á enskum sjúkrahúsum hefur tvöfaldast á fimm árum. Kreppan kemu harðast niður á þeim sem fátækastir eru bæði einstaklingum og fjölskyldum. Norman Lamb , ráðherra heilbrigðismála segir að skráð vannærinartilvik á sjúkrahúsum hafi verið 3661 árið 2008 en 5499 árið 2012. Verð á matvælum og almennum framfærslukostnaði hefur hækkað mjög mikið eftir matargjafir hjálparsamtaka hafa stóraukist. Í dreifbýli virðist ástandið vera alvarlegast. Sjúkrahús í Somerset greindu 215 tilvik um vannæringu. Nú eru tilvik ekki sama og persónur þannig að persónur eru líklega færri. Orkuverð hefur hækkað og skattar hafa hækkað. Allt verður til að rýra kjör fólks.Aðrir sjúkdómar hafa gert vart við sig , m.a. þeir sem stafa af vítamínsskorti. Hjálparstofnanir hafa árum saman varað við því að þetta ástand gæti skapast. Það er fátækt eldra fólk sem verst er statt. Samkvæmt Oxfam fengu 26000 manns matargjafir árið 2008 og 2013 eru það fleiri en 350000. Fólk leitar til hjálparstofnana eftir að hafa verið matarlaust í marga daga.

Bloggfærslur 18. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband