Yfirgefa unglingar Facebook?

Svo virðist sem unglingar í USA séu að missa áhugann á Facebook. Facebook hefur næstum verið til alla ævi 13 ára unglinga. Hún er jafn hversdagsleg og McDonald og Nike. 23% unglinga nota nú bókina og hefur talan lækkað mikið allt þetta ár. Twitter er á svipuðu róli eða 26%. Instagram er á uppleið talan fyrir þann vef er 23%. En þeir sem nota aðra vefi eru 17% og sú tala hækkar stöðugt. Facebook er semsagt ekki lengur cool. Unglingar eiga að jafnaðu 300 vini á bókinni en 80 fylgjendur(nýyrði) á Twitter. Og gamanið felst í því að lesa það sem vinir eða fyrrverandi vinir skrifuðu á vegginn sinn. En hvað varð um kynslóðabilið og unglingamenninguna? Unglingar skapa sér eigið félagslegt svæði með málfari, tísku, viðhorfum , klæðnaði, tónlistarsmekk og áhugamálum. Með því skapa þeir fjarlægð frá foreldrum og öðlast meira sjálfstæði. Hefur Facebook nú breytt þessu öllu? 70% unglinga eru vinir foreldra sinna á bókinni. Það getur verið vandræðalegt fyrir ungling í framhaldsskóla að sjá að móðir hans hefur sett mynd af honum mjög ungum með pela á bókina. Unglingar segja frá ýmsu í félagslífi sinu sem er aðgengilegt fyrir foreldra. En á hvaða leið eru unglingarnir? Hingað meðal annars : snapchat, pheed, Piscart, tumblr og vine.

Hefur fangelsisvist foreldra áhrif á börn?

Í nýlegri danskri rannsókn kom í ljós að 6% barna sem fæddust milli 1980 og 1985 áttu foreldri sem setið hafði í fangelsi einu sinni eða oftar. Þessi börn eru líklegri til að fremja afbrot síðar á ævinni en þau börn sem ekki eiga foreldra sem hafa reynslu af fangelsisvist. Börnin voru einnig líklegri til að eiga í erfiðleikum í skólakerfinu. Börnin voru einnig líklegri til að fá dóm fyrir þjófnað á aldrinum 19 til 29 ára. Þetta á hins vegar aðeins við um lítinn hóp af öllum þeim börnum sem eiga dæmda foreldra. Af þessu leiðir að ef börnin standa á veikum grunni hvað varðar efnahag og félagstengsl þá hefur glæpahneigð foreldra áhrif. Ef báðir foreldrar eru dæmdir til fangavistar hefur það merkjanleg áhrif á börnin. Bloggara er ekki kunnugt um að þetta viðfangsefni hafi verið rannsakað hér á landi.

Kaupaukakerfi Arionbanka.

Brennt barn forðast eldinn segir máltækið. Umfangsmikið kaupaukakerfi hefur verið tekið upp í bankanum. Nær það til 100 starfsmanna og geta kaupaukar numið 25% af árslaunum. Bankinn telur að samkeppnisaðilar um starfsfólk hafi tekið upp slíkt kerfi(sic) og verði bankinn því að aðlaga sig. Svo virðist sem stjórnendur banka og fjármálastofnana hafi ákveðið að koma á launaskriði í fjármálageiranum. Ljóst er þó að það nær ekki til nema til stjórnenda og millistjórnenda. Það virðast vera peningar í bankakerfinu öfugt við mörg heimili landsins. Íslandsbanki greiddi 68 milljónir í kaupauka á síðasta ári en því miður(?) eingöngu til framkvæmdastjóra. Starfsmenn Landsbankans fengu í sumar hlutabréf en upphæðin var 4.7 milljarðar fyrir skatta. Ekki eru allir strafsmenn jafnir eða vinna jafn mikilvæg störf hjá Arion banka að mati stjórnenda. Þeir eru mikilvægastir sem hafa áhrif á tekjur og kostnað bankans í störfum sínum. Stjórnendur sjálfir greina á milli. Árið 2011 sendi Fme frá sér reglur um kaupaukakerfi fjármálafyrirtækja. Þær birtust í Stjórnartíðindum og eru undirritaðar af Gunnari Þ Andersen. Í 4. grein er tekið fram að kaupaukakerfi skuli miða að því(sic) að kaupaukar hvetji ekki til óhóflegrar(sic) áhættutöku. Áhættustýring, innri endurskoðun og regluvarsla eiga að fylgjast með framkvæmd kerfisins. Kaupaukar eru árangutengdir nema ráðningarkaupaukar en þeir eru leyfilegir við ráðningu starfsmanna á fyrsta ári. Sagan endurtekur sig. Fyrst sem harmleikur en síðan sem gamanleikur.

Bloggfærslur 2. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband