Líður tíminn hraðar hjá öldruðum?

Klukkutími í biðstofu læknis getur verið heil eilífð en þriggja vikna frí á Spáni líður á örskammri stundu. Með hækkandi aldri virðist tíminn líða hraðar eða þannig er skynjun fólks. Hver getur skýringin verið? Kannski byggist þetta á reikningi. Sérhvert tímabil er tengt við eiginn aldur. Eitt ár er einn þriðji af aldri þriggja ára barns en en 0.0125% af aldri áttræðs manns. Nú, þarf þetta ekki að vera svona. Mörgum finnst tíminn fara að líða hægar þegar þeir hætta að vinna og fara á eftirlaun. Oft breytist skynjunin þegar frá líður. Tíminn í biðstofu læknisins virtist heil eilífð en að kvöldi dags finnst manni að dagurinn hafi liðið ótrúlega fljótt. Rannsóknir á elliheimilum hafa leitt þetta fyrirbæri í ljós. Tíminn fram að hádegismat er óendanlega lengi að líða en um kvöldið virðist dagurinn mjög stuttur. Í minni mannsins er tíminn röð atburða og ef mikið hefur gerst virðist tíminn hafa verið langur. Þetta er þekkt úr ferðalögum fólks. Fyrstu dagar frísins í nýju landi virðast líða mjög hægt.  Þú þarft að meðtaka margvíslegar upplýsingar og læra á nýtt umhverfi. Síðustu dagana er umhverfið þekkt og orðið hversdagslegt. Þessa reynslu má yfirfæra á  ævi mannsins. Fyrsta ástin, fyrsti kossinn og fyrsta barnið. Síðan koma 30 ár í hjónabandi og vinna og frí og vinna og... með aldrinum minnkar hæfileikinn til að vera opinn fyrir heiminum og skynja nýja hluti. Meir og meir lifum við í viðjum vanans. En möguleikinn er að byrja uppá nýtt við nýjar aðstæður er til. (Spiegel).

Króatía með í EES-samstarfi.

Samningaviðræðum um þátttöku Króatíu hvað Noreg varðar er lokið. Noregur fær betra aðgengi á markað fyrir fisk og fiskafurðir en á móti kemur að Króatía fær fjárstuðning úr sjóðum sem EES ræður yfir. Upphæðin sem Króatía fær er 9.6 milljónir evra. Styrkina á m.a. að nota til að auðvelda viðskipti og samvinnu við Noreg. Þegar Króatía gekk í ESB féll fríverslunarsamningur EFTA og Króatíu niður. Noregur og ESB sömdu þá um aukinn tollfrjálsan kvóta á  unninni síld. Noregur hefur gert samninga um tímabundna aðlögun vegna innflutnings á vinnuafli. Næstu 7 ár verður mögulegt að takmarka fjölda Króata sem vinna í Noregi. Þennan samning þurfa þjóðþing Noregs, Íslands og Liechtenstein að samþykkja.

Krónan; flýtur á meðan ekki sekkur.

Gengi krónunnar hefur verið stöðugt undanfarna mánuði og eru það góð tíðindi. Fyrir ári lækkaði gengi krónunnar talsvert. Rekstrarumhverfi heimila og fyrirtækja er því stöðugra nú en fyrir ári. Krónan hefur verið að styrkjast   gagnvart vog helstu gjaldmiðla.Verðbólguvæntingar eru að minnka. Væntingar um verðbólgu á komandi misserum eru mikilvægar í komandi samningum. Væntingar eru nú komnar niður fyrir 4%. Undanfarna mánuði hafa viðskiptakjör versnað en á móti kemur að afborganir af erlendum lánum hafa verið tiltölulega litlar, tekjur af erlendum ferðamönnum miklar og magn sjávarafurða hefur vaxið. Seðlabankinn hefur fylgt inngripastefnu og verið virkari á gjaldeyrismarkaði. Við því er að búast að gengi krónunnar lækki á næsta ári vegna minni afgangs á viðskiptajöfnuði. Vegna haftanna verður lækkunin líklega á bilinu 1-2%.

Sádi Arabía kaupir vopn frá Þýskalandi fyrir 1.24 milljarða evra árið 2012.

Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt þessi umfangsmiklu vopnaviðskipti. Sádar eru nú orðnir stærsti kaupandi þýskra vopna. Nu í vikunni um ríkisstjórn Merkel ræða þessi mál. Víðtæk mannréttindabrot eru framin í Sádi Arabíu og það er stefna þýskra stjórnvalda að selja ekki vopn til landa þar sem rökstuddir grunur bendir til þess að vopnin séu notuð til að kúga minnihlutahópa. Mikil vopnakaup Sáda eru einkum til að tryggja landamæri og öryggi við landamæraeftirlit. 2010 voru flutt út vopn fyrir 2.12 milljarða evra en mun minna eða 1.29 milljarða evra árið 2011.  Árið 2012 fór 60% af vopnaútflutningi Þjóðverja til landa utan NATO og ESB. Vopn voru flutt út til Íraks, Singapúr,Suður-Kóreu og Sameinuðu furstadæmanna. Til þessara landa er flutt út mikið af byssum af margvíslegum gerðum. Framleiðsla og sala á vopnum eru viðskipti en vopn er ekki eins og hver önnur vara sem fullnægir mannlegum þörfum eins og húsgögn og föt. Menn drepa með vopnum og vopn eru notuð til að ógna og beita pólitískum þvingunum.

Bloggfærslur 20. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband