Magnus Carlsen er heimsmeistari í skák; tímamót í skáksögunni.

Carlsen er 19. heimsmeistarinn í skák. Fyrstur varð W Steinitz og það var árið 1886. E Lasker var lengst allra heimsmeistari eða 27 ár. Heimsmeistararnir hafa komið frá Austurríki, Þýskalandi, Rússlandi, Sowétríkjunum, Kúbu, USA, Indlandi og Hollandi. Og nú Noregi. Verðlaunaféð í einvíginu núna var 1.89 milljónir evra. Magnus fær 60% eða 1.132 milljónir evra. Einvígið vakti mjög mikla athygli um allan heim. Samkvæmt upplýsingum FIDE-alþjóða skálsambandsins fylgdust milli 100 og 200 milljónir manna með skákunum. Horfa mátti á skákirnar á fjölmörgum síðum á netinu. Skákin nýtur þess að hún fellur afar vel að netmiðlum. Eftir einvígið sagði Carlsen að Anand hafi verið heimsmeistari í 10 ár og það hafi verið mikill heiður að keppa við hann. Með sigrinum hefur Carlsen tryggt sér sæti með mestu afreksmanna Norðmanna á sviði íþrótta. Aðeins Petter Northug og Marit Bjorgen eru vinsælli en hann meðal iþróttaáhugafólks. Carlsen er því innan um fólk sem stundar vetraríþróttir. Einvígið hefur vakið gífurlega athygli almennings í Noregi. Áhorf á útsendingar NRK og VG er mjög mikið. Norska skáksambandið er ekki aðili í DIF sem eru heildarsamtök íþróttafélaga í Noregi. Rognlien forseti íþróttasambandsins hefur á undanförnum árum lýst því yfir að skák sé ekki íþrótt. Líklegt verður að teljast að hann skipti fljótlega um skoðun(sic). Carlsen vonar að skákiðkun og félagsstarf í skákklúbbum muni eflast á næstu árum. Calrsen er með 2870 elostig. Slík stig eru mælikvarði á styrkleika skákmanna. Í fyrra var Jóhann Hjartarson með 2624 stig en hann var þá stigahæstur íslenskra skákmanna. Í nokkrum skákum gerði Anand alvarleg mistök. Hann sagði sjálfur að Carlsen hefði laðað mistökin fram. Það bendir til óöryggis og taugaspennu hjá Anand.

Af hverju er nýfrjálshyggjan ekki horfin?

Þrátt fyrir fjármálakrreppuna 2008 og margvíslegar afleiðingar hennar víkur nýfrjálshyggjan ekki af hinu pólitíska sviði. Hverjar skyldu skýringarnar vera? Kjarni nýfrjálshygjunnar er áhersla á samkeppnismarkað og að takmarka afskipti ríkisins. Þessar hugmyndir eru almenar og sértækar og auðvelt er að aðlaga þær breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu. Svið nýfrjálshyggu er fyrst og síðast áróður eða mælskulist en ekki útfærsla á velskilgreindum markmiðum. Það sem nýfrjálshyggjumenn gera er oft í algerri andstæðu við orðræðuna. Nýfrjálshyggjumenn halda fram einföldum hugmyndum og lausnum sem oftar en ekki er að finna hjá andstæðingum þeirra. Styrkur þeirra er hugmyndafræðileg kreppa eða veikleiki andstæðinganna. Það hefur hentað mörgum stjórnmálamönnum að taka upp hugmyndir nýfrjálshyggjunar og fella þær að markmiðum sínum. Hluti af hugmyndum nýfrjálshyggjunnar um peningamál og fjármál eru orðinn þáttur í  skipulagi fjárnálatofnana í ESB og niðurskurðarstefnu stjórnvalda. (LSE).

Meðalmánaðarlaun fólks í stjórn SA eru 3.2 milljónir.

Launin eru eðlilega nokkuð mismunandi. Þau eru frá 800 þusund á mánuði uppí 9.3 milljónir á mánuði. Þá er auðvelt að reikna að meðalárstekjur þessa hóps eru 38.4 milljónir. Nokkrir aðilar í þessum hóp eru stóreignafólk. Þessar tölur eru úr tekjublaði Frjálsar Verslunar og með þeim fyrirvara að þær séu réttar. Þetta er fólkið sem stendur á bak við óvenju ósvífna auglýsingaherferð sem hefur það að markmiði að hvetja almennt launafólk til að sætta sig við nánast óbreytt laun. Það er gert með því að setja fram afbakaða og skrumskælda mynd af samhengi verðbólgu og launahækkana. Ef hagfræðingar SA hafa verið með í ráðum er engin ástæða til að taka þá alvarlega hér eftir. Ef auglýsingastofa hefur fengið frjálsar hendur þá er það yfirlýsing SA um að sannleikurinn skipti engu máli.

Bloggfærslur 22. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband