27.11.2013 | 20:50
Traust til stofnana og fjölmiðla.
Traust á milli manna er grundvallaratriði í samskiptum manna og uppbyggingu samfélaga. Um það hafa verið ritaðar lærðar bækur. Það er ljóst að gagnkvæmt traust auðveldar samskipti og gerir þau einfaldari. Lítið traust kallar á mikið eftirlit og einföld samskipti verða mjög flókin. Á dögum kalda stríðsins sögðu menn : traust er gott en eftirlit er betra. Þetta var auðvitað rétt á tímum spennu, tortryggni, vígbúnaðarkapphlaups og víðtækra njósna. Traust er mikilvægt hér á landi sérstaklega á örlagatímum þegar afdrífaríkar ákvarðanir eru teknar. MMR gerir reglulega kannanir á trausti almennings til mikilvægra stofnana samfélagsins. Til Alþingis bera bera 16.4% frekar eða mjög mikið traust. 49% frekar eða mjög lítið. Þetta ætti að vera mörgum mikið umhugsunarefni. Til Ríkisútvarpsins bera 52.3% frekar eða mjög mikið traust. Þetta ætti að vera öllum þingmönnum mikið umhugsunarefni. Nú er stjórnskipan landsins þannig að Alþingi fer með frjárveitingarvaldið. Alþingi hefur vald til að leggja á skatta og gjöld. Ef fjölmiðlar eiga að vera óháðir og geta sinnt skyldum sínum við almenning verða þeir að vera óháðir einkahagsmunum sem hafa arðsemi fjármagns að leiðarljósi. Það er mikið í húfi.
27.11.2013 | 16:24
Norðurlönd og umheimurinn; tölfræðilegur samanburður.
Á Norðurlöndum búa 26 milljónir manna, í ESB 486 milljónir, í Japan 128 milljónir og í USA 309 milljónir. Landsframleiðsla á mann er hæst í USA en næsthæst á Norðurlöndum. Lífslíkur eru hæstar í Japan en næsthæstar á Norðurlöndum. Atvinnuleysi er minnst í Japan en næstminnst á Norðurlöndum. En hvaðan koma innflytjendur til Norðurlandanna? 17% koma frá öðrum Norðurlöndum. 21% koma frá Asíu. 15% frá Póllandi, Lettlandi og Litháen. 23% frá öðrum löndum evrópska efnahagssvæðisins. 7% frá öðrum löndum Evrópu. Frá Afríku koma 8% og 6% frá Ameriku. Til hvaða landa flytja Norðurlandabúar? 31% flytja til annarra Norðurlanda. 23% til annarra landa innan evrópska efnahagssvæðisins. 12% til Asíu og 10% til Ameriku. 2% til Afriku. Á sjöunda áratugnum voru það langmest Norðurlandabúar sem fluttu til Norðurlanda en nú koma flestir innflytjendur frá öðrum löndum Evrópu. Þeir sem leita hælis á Norðurlöndum hafa verið á milli 45000 og 60000 á undanförnum árum. Í fyrra fengu 12576 hæli í Svíþjóð, í Danmörku voru það 2464 og 50 hér á landi. Hagkerfi Norðurlanda eru lítil , opin og útflutningsmiðuð. (Norræn tölfræði árbók 2013).
27.11.2013 | 11:38
Írland; eftir fasteignabólu standa 230000 hús auð.......
Einkenni fasteignamarkaðar á Írlandi er gífurlegt offramboð á íbúðum og fasteignum. Verktakabransinn á Írlandi fékk að leika lausum hala í nokkur ár og þetta er afraksturinn. Fjöldagjaldþrot fyrirtækja, fjöldaatvinnuleysi og tugþúsundir hafa yfirgefið landið í leit að vinnu. Hluti húsanna eru ófrágengin og heilu hverfin eru eins og draugaborgir. Í mörgum tilvikum er ekkert annað að gera en jafna húsin við jörðu. Uppsveifluárin á Írlandi voru á 10. áratug síðustu landar. Þá var Írland nefnt keltneski tígurinn. Hluti af uppsveiflunni var gífurleg þensla í byggingarbransanum. Um það bil 5000 einstaklingar eru nú heimilislausir á Írlandi. Helmingur þeirra er í Dyflinni. Ekki er til opinbert fjármagn til að tryggja þeim varanlegt húsnæði. Bólan sprakk og það mun taka meir en áratug að byggja upp á ný og bjarga því sem bjargað verður úr rústunum. (CCTV).
27.11.2013 | 10:24
Stjórnarmyndun í Þýskalandi.
Hægri flokkarnir-CDU/CSU- og Jafnaðarmannaflokkurinn-SPD- hafa myndað ríkisstjórn. Stjórnarsáttmálinn er tæpar 200 blaðsíður og þar er farið yfir helstu málaflokka. Ekki er vitað hver ráðherraskipan verður. Um hana verður tilkynnt þegar og ef félagar í SPD samþykkja ríkisstjornarþáttöku. Þó er vitað að Jafnaðarmenn munu hafa sex ráðherra en hægri flokkarnir átta ráðherra. Stjórnin hyggst gera verulegar umbætur í lífeyrismálum en án þess að hækka skatta. Eftir 2015 á ekki að taka frekari lán. Fram til ársins 2017 á að auka útgjöld og fjárfestingar um 23 milljarða evra. Börn sem fæðast í Þýskalandi en eiga erlenda foreldra fá nú tvöfaldan ríkisborgararétt. Frá og með 2015 verða lágmarkslaun á klukkustund 8.50 evrur um allt Þýskaland. Fram til 2017 er hægt að gera undantekningar. Stjórnvöld vilja í auknum mæli nýta græna orku. Dagana 6. til 12. desember munu 475000 félagar í SDP kjósa um ríkisstjórnarþátttöku flokksins. Kosningar eru gildar ef þátttaka er amk 20% eða tæplega 95000 kjósendur. Ef þetta gengur ekki eftir verður haldinn aukalandsfundur og 14. desember liggur ákvörðun fyrir. Allt bendir til þess að 17. desember verði Merkel kosin kanslari á Sambandsþinginu-Bundestag.
Bloggfærslur 27. nóvember 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar