München; Picasso innan um niðursuðudósir.

Þetta er skelfilegt. Sérvitringur virðist hafa safnað verkum frægra málara áratugum saman og falið þau í íbúð sinni. Hvað verður um verkin er óljóst. Heimatilbúin húsgögn og rotnandi matur. Í þessu umhverfi eru verk eftir Picasso, Chagall, Nolde, Mattise og Splitweg. Verkin eru metin á milljónir evra. Listaverkafjársjóður finnst í óásjálegri íbúð. Þetta gæti verið byrjun á sakamálasögu og kannski verður það reyndin. Hinn grunaði er áttræður og 2010 fundu tollverðir í Sviss 9000 evrur í seðlum í tösku hans. Þetta leiddi til þess að dómari gaf leyfi til að leita í íbúð mannsins. Í íbúðinni var neglt fyrir alla glugga. Hún var full af gömlum matælum sem höfðu runnið út fyrir áratugum sum hver. Faðir hins grunaða var þekktur listaverkasali á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld. Þegar nasistar komust til valda missti hann stöðu sína sem yfirmaður safns í Hamborg. Hann var af gyðingaættum. Hann fékk hins vegar það hlutverk að kaupa "úrkynjaða" list sem svo var nefnd af nasistum. Hann hafði margvísleg sambönd og keypti málverk á smánarlega lágu verði. Hann gat komið myndunum undan eftir stríðið en þá sagði hann yfirvöldum að myndirnar hefðu eyðilagst í loftárásum. Í tvö ár hafa málverkin verið í geymslu tollyfirvalda og listfræðingar hafa rannsakað þau. Enn hvílir leynd yfir málinu og margt á eftir að koma í ljós.

 


AGS vill minni útflutning Þjóðverja.

Nýlega hafði fjármálaráðherra USA gagnrýnt hversu öflugur útflutningur Þjóðverja er og nú fylgir AGS í kjölfarið. Sjóðurinn vill að Þjóðverjar tilgreini ákveðið hámark sem ekki má fara yfir. David Lipton næstæðsti maður sjóðsins kom þessari skoðun á framfæri við þýska fjármálaráðuneytið. Afar mikill afgangur er á viðskiptajöfnuði Þýskalands og hann skapar ójafnvægi sem hefur neikvæð áhrif á allt evrusvæðið. Á síðasta ári  var afgangurinn á viðskiptajöfnuði meir að segja meiri en í Kína. Á þessu ári bendir allt til þess að afgangurinn verði 200 milljarðar evra. Á fyrri hluta ársins var talan orðin 96 milljarðar sem er 7.2% af vergri landsframleiðslu. Það sem kemur á óvart er hversu hörð og óvægin ummæli bandarískra ráðamanna eru. Þar hefur greinilega orðið breyting frá því sem áður var. Nú er USA ekki fyrirmyndarbarnið í stjórn efnahagsmála. Um það vitna best harðar deilur um skuldaþak ríkisins sem sköpuðu mikla óvissu jafnt innanlands sem utan. Samtök þýskra atvinnurekenda hafa brugðist harkalega við gagnrýni bandarískra ráðamanna: styrkur þýskalands er forsenda í Evrópu. Mikið er flutt út af vðrum vegna þess að þær eru góðar og ódýrar. Málflutningur USA er taktík vegna samninga um fríverslun. Ekki eru allir sammála þessu. IMK sem er hagfræðistofnun tengd verkalýðshreyfingunni segir að að mestu leyti fari afgangurinn sem lánsfjármagn frá Þýskalandi. 

Fær Snowden hæli í Þýskalandi?

Vaxandi áhugi er á því að veita Snowden hæli í Þýskalandi. Þekktir blaðamenn, leikarar, skemmtikraftar og stjórnmálamenn-fyrrverandi og núverandi-lýsa þeirri skoðun sinni að Snowden sé velkominn til Þýskalands. Heiner Geisler fyrrum aðalritari CDU (flokks Merkel kanslara) er í þessum hópi. Honum þykir leitt að sambandið við USA hafi versnað en Snowden hafi gert vestrænum ríkjum mikinn greiða og nú se kominn tími til að endurgjalda greiðann. Margir áhrifamenn í SPD-jafnaðarmannaflokknum- hafa einnig lýst þessari skoðun. Snowden afritaði gögn hjá NSA-Þjóðaröryggisstofnun USA- og fór með þau úr land. Hann hefur tímabundinn dvalarrétt í Rússlandi. Sá sem segir sannleikann fremur engan glæp segir Snowden. Hann er reiðubúinn að bera vitni fyrir rannsóknarnefnd þýska þingsins en tryggja verður öryggi hans. Merkel er í klemmu; á hún að hætta á að gera sambandið við USA enn erfiðara en áður?

Kirkjugarðurinn óttast dauðann.

Kirkjugarðurinn í Hamburg Ohlsdorf hefur áhyggjur af viðskiptavinum. Þeim fer fækkandi. Eitt sinn skal hver deyja en Þjóðverjum fækkar og margir kjósa bálför. Reglugerð um grafir segir að lengd skuli vera 213 cm, breidd 83 cm og dýpt 170 cm.Kirkjgarðurinn er 391 hektari eða níu sinnum stærri en Vatikanið. Þar hvíla ein og hálf miljón látinna. 300 starfsmenn eru í krikjugarðinum og hver greftrun  rekur aðra eins og um færibandavinnu væri að ræða. Hér hvíla frægir menn og konur. Leikararnir Hans Alberts og Gustaf Grundgens. Hér hvílir klámstjarnan Sexy Cora en hún dó i brjóstastækkunaraðgerð. Látnum er raðað niður eftir þjóðerni á svæðum kirkjugarðsins. Kínverjar eru á bp 68 og Svisslendingar á L 14-15. En nú fækkar viðskiptavinum og það gætu orðið endalok garðsins. Ef hann á að lifa áfram þarfnast hann dauðra. Rómverska kaþólska kirkjan lagði blessun sína yfir bálfarir 1963 og síðan þá hefur fjöldi þeirra vaxið stöðugt. Dauðinn er vara á markaði og þar ríkir samkeppni. Einkareknar bálfararstofur eru víða í Hamborg og nokkrar á iðnaðarsvæðum.  Það er hægt að láta brenna lík í Póllandi en koma öskunni fyrir í Þýskalandi. Kaupmáttur og verðskyn ráða ferðinni. Dauðinn er tabú. Menn deyja ekki. Menn fara. En þeir skilja eftir sig minnismerki. 

Bloggfærslur 3. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband