Lady Gaga rekur Troy Carter umboðsmann sinn.

Nokkrum dögum fyrir útgáfu nýrrar plötu er umboðsmaðurinn rekinn. Carter hefur verið umboðsmaður Stefani Germanotta-Lady Gaga- síðan árið 2007. Þá var fyrsta plata hennar ekki komin út. Ávallt hefur verið talið að Carter eigi mikinn þátt í því að gera tónlistarkonuna að megastjörnu. Ástæður brottreksturs eru ekki ljósar. Mismunandi áherslur í tónlistarsköpun? Tilfinningaleg og persónuleg fjarlægð? Sífellt er verið að segja upp umboðsmönnum en núna eru aðstæður óvenjulegar. Mikilvæg útgáfa stendur fyrir dyrum. Siðasta albúm Lady Gaga kom út 2011. Það var: Born this way og seldist í meira en 2 milljón eintökum í USA. Markaðssetningin var kraftmikil og fagmannleg. Lady Gaga á í stöðugum samskiptum við aðdáendur sína á Twitter en þeir eru 40 milljónir talsins. Hún nýtir samfélagsmiðla á mjög virkan hátt. En hún á sína slæmu daga. Framkoma hennar á verðlaunaafhendingu You Tube varð tilefni háðs og gagnrýni. Carter er auðugur maður og er m.a. umboðsmaður John Legend og Lindsey Sterling. Hann er fjárfestir og hefur  hagsmuni víða að gæta.

39 þúsund Íslendingar undir lágtekjumörkum eða í hættu á félagslegri einangrun.

Samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunar eru þetta 12.7% landsmanna. Til að falla í þennan hóp þurfa menn að hafa eitt eða fleiri af eftirtöldu ; tekjur undir lágtekjumörkum, verulegur skortur á efnislegum gæðum og atvinnuþátttaka er mjög lítil eða minna en 20% af stöðu. Á síðasta ári var lágtekjuhlutfallið 7.9% sem er lágt hlutfall. Á "góðærisárunum" var hlutfallið 10%. Lágtekjumörk(60% af miðgildi) fyrir einstakling eru 156 þúsund á mánuði. Fyrir tvo fullorðna með börn yngri en 14 ára er talan 328 þúsund á mánuði. 6.6% landsmanna bjuggu á heimilum þar sem vinnuhlutfall var mjög lágt. 2.3% bjuggu við verulegan skort á efnislegum gæðum(2011). Samanborið við Evrópuþjóðir kemur Ísland vel út. Kannski er sú staðreynd einhverjum huggun eða ástæða ánægju með góðan árangur. Það breytir hins vegar ákaflega litlu fyrir 39 þúsund Íslendinga.

Vogunarsjóðurinn SAC dæmdur. Konungurinn er fallinn.

Tvö milljarða dollara verður sjóður Steve Cohens að greiða í skaðabætur. Það er vegna svika og blekkinga sem stundaðar hafa verið árum saman. Risapartýið í Wall Street er búið amk í bili. Nýlega var selt listaverk eftir Andy Warhol fyrir amk 20 milljónir dollara hjá Sotheby. Þagað er yfir seljanda en allir vita hver hann er. Hann var fram að þessu einn af helstu fjármálahákörlum USA. Vogunarsjóðurinn viðurkennir að hafa stundað innherjaviðskipti og peningaþvætti. Samningar náðust um borgun uppá 1.8 milljarð dollara. Og nú verður Cohen að borga sektir úr mjög djúpum vasa. Enginn skildi ímynda sér að hann sé of stór fyrir réttvísinda og réttarkerfið. Er það lærdómrinn? Fjárfestingarbankinn Drexel Burnham Lambert borgaði sekt sem nam 650 milljónum dollara. Cohen skapaði nýja fyritækjameenningu sem ýtti undir viðskipti handa laga og reglna. Nú hafa meir en 70 bankastjórar og forstjórar vogunarsjóða verið dæmdir í USA. En Cohen lifir sínu lífi áfram. Hann fer á íþróttakappleiki til að horfa á og situr í fremstu röð.

Reiði og réttindi fanga á Litla Hrauni.

Formaður hagsmunasamtaka fanga er reiður vegna stjórnunarhátta í fangelsinu. Hann segir reiðina almenna. Hverjar eru ástæður? Íþróttahúsi hafi verið lokað án skýringa. Nú vitum við ekki hvort þetta er rétt þar sem enginn annar var til frá sagnar þegar blaðamaður MBL vann frétt um málið. Annað var að ruðst hafi verið inní gestaherbergi þar par var í ástaratlotum. Þetta kemur spánskt fyrir sjónir. Við komu á Litla Hraun fá fangar bækling með upplýsingum  um fangelsið. Þessi bæklingur er að sjálfsögðu aðgengilegur á netinu. Þar er talað um heimsóknir, hvenær þær fari fram, um leyfi og svo framvegis. Hvergi er minnst á aðstöðu til að stunda kynlíf ;) Fangaverðir hafa rétt til að leita á öllum sem koma í heimsókn en mér skilst að það sé einnig umkvörtunarefni. Formaðurinn virðist vera að hafa í hótunum. Það gæti eitthvað alvarlegt gerst ef ástandið lagast ekki. Hann nefnir einn merkilegan hlut. Hann telur af langri reynslu og mikilli þekkingu á fangelsum að endurkomutíðni fari hækkandi. Ef rétt er þá er það mikið umhugsunarefni.

Ársreikningur Sjálfstæðisflokksins 2012.

Á vef Ríkisendurskoðunar má sjá útdrátt úr ársreikningi flokksins. Þar er margt fróðlegt. Framlög lögaðila til flokksins voru 17.5 milljónir sem er mun meira en framlög til allra annarra flokka samanlagt.(xB 7.4, xS 2.2, x VG 0.3). Gott er að eiga góða vini og margir eru rausnarlegir: Auðbjörg ehf,Brim hf, Gjögur hf, HB Grandi hf, Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf, Ísfélag Vestmannaeyja hf og Vinnslustöðin hf, svo nokkrir séu nefndir. Óháður endurskoðandi gerir athugasemd sem er athyglisverð. Hann ritar;stjórnendur hafa reynt að greina félög í ríkiseigu og félög sem eru tengd. Erfitt reynist að að sannreyna hvort það hefur tekist með tæmandi hætti.  Sem sagt: er ekki hægt að sannreyna að farið sé að lögum?

Svört atvinnustarfsemi í ferðaþjónustu.

Áætlað er að 1500(!) herbergi á höfuðborgarsvæðinu séu leigð erlendum ferðamönnum ólöglega. Á landinu öllu eru þau talin vera 1800. Þessar tölur eru varlega áætlaðar út frá erlendum vefsíðum. 3000 herbergi eru í löglegum rekstri í Reykjavík og sýnir hlutfall þessara talna umfang svartrar starfsemi. Svört atvinnustarfsemi virðist vera að vaxa þrátt fyrir að ýmislegt hefur verið gert. Það er alveg ljóst að skattyfirvöld verða að beita sér af miklu meiri krafti en hingað til. Til þess þurfa þau m.a. eindreginn pólitískan stuðning. Ólögleg atvinnustarfssemi veldur miklum skaða. Hún skekkir samkeppnisstöðu. Starfsfólk verður réttlaust og starfsöryggi ekkert. Hún hefur neikvæð áhrif á skattasiðferði og á siðferði almennt. Það eru fáir sem græða og þeir græða á kostnað allra hinna. Um umtalsverðar upphæðir er að ræða. Samkvæmt tölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar sem birtar voru í lok október var greiddi hver erlendur ferðamaður 89000 með greiðslukortum í september. Stæðsti einstakiliður er gistiþjónusta en kortavelta á gististöðum var 1.6 milljarður þennan umrædda mánuð. Það er 26% aukning frá sama mánuði í fyrra. Þessar tölur hafa sínar takmarkanir. Ef greitt er fyrir ólöglega gistingu t.d. í gegnum paypal  kemur greiðslan ekki fram í þessum tölur. Hægur vandi er fyrir skattyfirvöld að hafa samstarf við greiðslufyrirtækin.

Bloggfærslur 5. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband