Kínverji kaupir Claude et Palome eftir Picasso fyrir 28.2 milljónir dollara.

Wang Jianlin er ríkasti maður Kína. Hann keypti myndina í New York í gær á  uppboði hjá Christie. Boðin voru upp mörg verðmæt listaverk eftir m.a. Paul Klee,  Joan Miro og Gerhard Richter. Málverk eftir þessa listamenn voru reyndar ekki seld.  Myndir á uppboðinu voru úr safni Jan Krugier. Krugier lifði af dvöl í útrýmingarbúðum nasista og gerðist listaverkasali í Genf. Hann lést 2008. Wang er númer 84 á lista Bloomberg yfir auðugustu menn jarðar. Hann er stofnandi og stjórnarformaður Dalian Wanda sem er kínverskt risafyrirtæki. Það fæst við byggingu atvinnuhúsnæðis rekur verslunarkeðju, starfar í ferðaþjónustu, rekur hótel og skemmtistaði. Kaup Wangs á þessu listaverki er dæmigert fyrir kínverska auðmenn. Í Kína blómstrar mikill markaður með listmuni og menningarverðmæti. Þar er lögð mikil rækt við fornan menningararf. 

47 milljónir fátæklinga í USA.

Talan er sú sama og í fyrra en aðgerðir stjórnvalda virðast hafa bætt stöðu barna og gamals fólks. Hlutfallið er fast í 15%. Opinberar tölur miða eingöngu við tekjur. Aðrir mælikvarðar á fátækt taka tillit til fleiri þátta. Þá er tekið tillit til mismunandi framfærslukostnaðar eftir svæðum og bótum frá hinu opinbera. Án hins opinbera velferðarkerfis væru fátæklingarnir milljónum fleirri. Af öllum ríkjum jarðarinnar er mestur auður í USA. Pólitísk átök eiga sér stað um framlög ríkisins til að milda áhrif fátæktar. Ríkið gerir ýmislegt : matarmiðar, niðurgreiðsla máltíða í skólum og húsnæðisbætur svo dæmi séu nefnd. Greiðslur til gamals fólks og fatlaðra skipta miklu máli. Án þeirra væri hlutfall allra fátækra 25%.  En nú er verið að ákveða niðurskurð í fjárframlögum til velferðarmála og tekist á um það í þingdeildum. 23283 dollarar á ári fyrir tvo fullorðna með tvö börn er skilgreint fátæktrarviðmið. Talan er breytileg og fer eftir því hvort fjölskyldan leigir eða býr í eigin húsnæði. Það fer einnig eftir því hvar hún býr. Talan er á bilinu 21400 til 25784 dollarar.

Viðskiptakjörin hafa versnað frá Hruni.

Viðskiptakjör mæla hvað fæst af innfluttri vöru og þjónustu fyrir útflutta vöru og þjónustu. Viðskiptakjör eru sett fram sem vísitala sem  miðuð er við grunnár.  Raungengi hins vegar sýnir hlutfall innlends kostnaðar á móti erlendum mælt í sömu mynt. Viðskiptakjör þjóðarinnar hafa rýrnað um 15% frá árinu 2007 og eru nú 7% undir meðaltali frá seinni heimsstyrjöld. Þetta leiðir til þess að íslenskur útflutningur tapar hlutdeild í alþjóðlegum útflutningi. Afgangur á viðskiptum við útlönd verður minni en ella og staða krónunnar veikist. Þjóðartekjur verða lægri en ella og innlend eftirspurn minni. Innlent tekjustig lækkar í hlutfalli við helstu viðskiptalönd.

Viðskiptakjör eru hlutfall inn-og útflutningsverðs og Ísland hefur í meginatriðum lítil áhrif á þessa verðmyndun. Rýrnun viðskiptakjara 2008 til 2009 var aðallega vegna alþjóðlegrar efnahagslægðar og lækkunar á verði sjávarafurða en einnig að nokkru vegna lækkunar álverðs. 2010 til 2012 hækkaði hins vegar verð á sjávarafurðum. Seðlabankinn spáir áframahldandi rýrnun viðskiptakjara.


Carlsen gegn Anand. Heimsmeistaraeinvígið hefst á laugardag.

Þetta einvígi er mjög sögulegt að mörgu leyti. Í fyrsta skipti í skáksögunni hefur Norðmaður (og Norðurlandabúi) góða möguleika á að verða heimsmeistari. Magnus Carlsen hefur unnið nánast allt sem hægt er að vinna í skákheiminum og hann er efstur á ELO-lista Fide-alþjóðaskáksambandsins. Carlsen var undrabarn í skák og með vinnusemi og elju hefur hann náð á toppin. Faðir hans er skákáhugamaður og fylgir honum á öll mót. Systur hans og móðir tefla einnig. Hann hefur þjálfara og mann sem sér um markaðssetningu. Carlsen hefur m.a. þjálfað undir leiðsögn Kasparovs sem nú beitir mikilli orku sinni gegn Putkin forseta og hefur nýverið sótt um dvalar- og ríkisborgararétt í Lettlandi. Anand er Indverji og 21 ári eldri en Carlsen. Sá tími er samsagt liðinn að Rússar einoki heimsmeistaratitilinn og keppnina um hann. Ef að líkum lætur munu kínverskir stórmeistarar blanda sér í baráttuna á næstu árum.  Anand mun verja titil sinn í Chennai á Indlandi. Þeir tefla á hóteli sem heitir Hyatt Regency Chennai. Allar nánari upplýsingar er hægt að sjá á heimasíðu mótsins : chennai2013.fide.com Þar verður hægt að fylgjast með skákum og skákskýringum. Það verður einnig hægt að fjölmörgum öðrum skáksíðun , s.s. chessbace.com ,, chessdom.com,,,,

Heima-og frítímasslys barna á Íslandi.

Þessum slysum hefur fjölgað undanfarinn áratug en mest hjá yngsta og elsta aldueshópnum. Slysum á 1000 íbúa hefur fjölgað úr 38 í 44 á árunum á árabilinu 2003 til 2012. Hjá börnum yngri en 5 ára hefur orðið mikil aukning og hefur slysum fjölgað úr 67 í 83 á 1000 íbúa. Meðal drengja hefur fjölgunin orðið 20 slys á þessu tímabili , úr 72 í 92. Slys á stúlkum hafa einnig aukist en tala þeirra er nokkru lægri en drengja. Slysatiðni aldraðra hefur aukist umtalsvert einkum hjá öldruðum konum. Árið 2012 voru heima -og frítímaslys 16606 eða 44,2% allra skráðra slysa. Umferðarslys voru 7423 og vinnuslys 5287. Þetta eru langfjölmennustu slysaflokkar. En íþróttaslys fylgja fast á efir með 3813. Í Slysaskrá Íslands má finna margvíslega tölfræði um slys. En hvað um skýringar? Eftir hrun vex tíðni vex tíðni heima-og frítímaskysa mikið. Dauðaslysum í frítíma fjölgaði á árunum fyrir hrun. Áður fyrr voru dauðaslys barna mest í sundlaugum en er  nú í landbúnaðarslysum og frítímaslysum. Vekefnin eru mjög víða. Árlega slasast um 100 börn þegar þau detta úr innkaupakörfum. Á árabilini 2001 til 2011 vor skáð 558 trampólínslys. 

Bloggfærslur 6. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband