Seðlabanki Evrópu-EZB-lækkar stýrivexti í 0.25%.

Hlutabréfamarkaður tók tíðindum vel, gengi evrunnar lækkaði og Dax hækkaði verulega. Óvíst er hvort þetta kemur hreyfingu á efnahagslífið en verðbólga gæti aukist. Eitt óttast Þjóðverjar mest alls en það er að verðbólgan éti upp sparnaðinn. Reynslan af óaverðbólgu í Weimarlýðveldinu situr í þjóðarsálinni. Þá kom skuldakreppan og Seðlabankinn dældi ódýrum peningum út í hagkerfið. Verð á gulli og húsnæði byrjaði að hækka. Og nú setur Mario Draghi stýrivexti næstum á núll. En ákvörðunin er skiljanleg. Evrusvæðið þarf ekki að óttast verðbólgu heldur verðhjöðnun. Í október hækkaði verðlag um 0.7%. Þetta er lægsta gildi síðan 2009 og í kreppulöndum Suður-Evrópu var verðbólgan 0.5%. Í Japan er verðhjöðnun og hún hefur lamandi áhrif á allt hagkerfið. Ákvörðun Draghi sýnir að hættan á verðhjöðnun er tekin mjög alvarlega. En hún ein og sér leysir ekki vandann. 


Viðskiptaráð reiknar heilbrigðisvísitölu atvinnulífsins.

Nú er ekki alveg ljóst af hverju þessi orð úr læknisfræði eða lýðheilsufræðum eru notuð. Í hugmyndasögunni er það þekkt að samfélaginu er líkt við líkama. Stofnunum eða stéttum er þá líkt við líkamshluta. Slíkar kenningar hafa ætíð verið umdeildar af nokkuð augljósum ástæðum. Til að slá fram aulabrandara mætti líkja viðskiptaráði við heilann í mannslíkanum. Seint yrðu menn sáttir um það. Slíkar samlíkingar hafa einnig þann ókost að ef menn hafa skilgreint heilbrigði og eðlilega starfsemi þá hafa menn um leið skilgreint það sem er sjúklegt og skaðlegt. En hvað um það. Við gerum ráð fyrir að Viðskiptaráð sé að fjalla um hagræna þætti sem eru sögulegir og félagslegir þrátt fyrir að nota læknisfræðilegt orðafar. Vísitölunni er sem sagt ætlað að gefa yfirlit yfir þróun atvinnulífsins. Helstu drifkraftar hagvaxtar eru talin vera fjárfesting og aukin framleiðni. Vísitalan byggir á 6 þáttum: fjárfestingarumhverfi, framleiðslugetu, innra og ytra jafnvægi, opinber umsvif og gæði mannauðs. Og hvað segir nú vísitalan? hún hefur hækkað frá 2009 en hefur langt í frá náð sömu hæðum og hún var í 2003 til 2007. Hagsögulega er hér um tímamóta uppgötvun að ræða. Efnahagsstjórnunin frá 2003 til 2007 fær heilbrigðisvottorð!! Skuldasöfnun, viðskiptahalli, of sterk króna ; allt í sómanum! Ráðleggingar til stjórnvalda eru af gamalkunnum toga. Eitt er þó athyglisvert. Viðskiptaráð vill auka mikið fjárframlög til háskóla og rannsókna. Og hver er spáin? Hægur bati, 2.5% hagvöxtur næstu tvö árin.

Af hverju eru fjárfestingar einkafyrirtækja litlar?

Litlar fjárfestingar eru ekki bundnar við Ísland eins og ætla mætti ef síbylju áróður hægri flokkanna væri tekinn alvarlega. Skýringar á þessu fyrirbæri eru flóknar er hugmyndafræði hægri aflanna gefur eina og aðeins eina skýringu  sem sagt: of miklir skattar á fyrirtækin. Í umræðum breskra hagfræðinga er talað um fjárfestingarverkfall fyrirtækja. En í hvað fer hagnaður fyrirtækjanna? Arðgreiðsluhlutfall er með hæsta móti og fyrirtækin óráðstafað eigið fé vex.(Sérvandi íslenskra fyrirtækja eru ofurskyldir). Í Bretlandi var fjárfestingarhlutfall fyrirtækja átið 2007 2/3 af brúttóhagnaði en 2012 er hlutfallið 43%. Síðan 2008 hafa arðgreiðslur og óráðstafað eigin fé vaxið hröðum skrefum. 1970 voru skattar á fyrirtæki 40% en eru nú 20%. Skattalækkanir haldast í hendur við sífellt minni fjárfestinngu! En hver er skýringin? Hagnaðar hlutfallið eða arðsemi fjárfestinga fer stöðugt minnkandi. Fjármagn- fjármagn plús arður ; það er formúlan. Við þessar aðstæður standa raunlaun í stað og skuldir heimila vaxa. Það sem hefur gerst í Bretlandi hefur einnig gerst á evrusvæðinu og í USA. 

Jón Steinsson hagfræðingur og endalok fjölskyldunnar?

Í New York  Times Magazine er grein um Jón Steinsson og Emil Nagamura en þau eru bæði hagfræðingar og rísandi stjórnur við Columbia University. Þau hafa útivistað heimilsiverkum til til að auka þann tíma sem þau hafa fyrir sín og sín fræði. Áður fyrr var þetta kallað að ráða til sín þjónustufólk eins og sjá má í hinum ofurvinsælu þáttum um Downton Abbey en sögulegar aðstæður eru auðvitað mjög olíkar. Jón og Emil hafa kokk sem eldar 5 sinnum í viku. Flestir spara tíma með því að kaupa hálftilbúna rétti eða panta pizzu. Hollustan ætti að vera meiri hjá kokkinum. Þau hafa einnig heimilishjálp sem þrífur og þvær þvottinn. Þau réðu mann til að velja góðar fjölskyldumyndir. Þau réðu smið til að setja saman hin ofurflóknu Ikeahúsgögn. Með því að útvista heimilisstörfum er meiri tími fyrir Jón og Emil að vera með barninu þegar þau eru ekki í vinnunni. Í hagfræðinni hefur verið settfram kenning um hlutfallslega yfirburði. Við skulum segja að hún felist í því að einbeita sér að því sem þú ert góður í en láta aðra um hitt. Jón er góður í því að semja fræðigreinar en slakur í því að setja saman Ikeahillur. Hann velur því hið fyrrnefnda. Vandamál eru af ýmsum toga. Vandi Jóns og Emil virðist vera tíminn,þ.e. þau vilja auka eins og hægt er þann tíma sem þau hafa til að stunda fræðistörf. Þau vilja einnig auka þann tíma sem þau hafa með barninu.  Söguleg reynsla sýnir ýmsar leiðir : Jón væri einn að kenna og Emil heima með barnið. Bæði væru í hlutastörfum. Bæði hefðu sveigjanlegan vinnutíma. Emil væri að kenna en Jón heima með barnið. Fyrir nokkrum árattugum var mikið rætt um endalok fjölskyldunnar í félagsfræðinni. Nú væru stofnanir hins opinbera  og einnkaaðilar sem hefðu tekið við flestum hefðbundnum hlutverkum hennar. Dagmömmur, leikskólar, æskulýðsstarf krikjunnar, grunnskóli, íþróttafélög og þannig mætti lengi telja. Einnig vartalað um vélvæðingu heimilisstarfa. Nútímaheimilistæki spara gífurlegan tíma  og hgerðu ástamt öðru vaxandi atvinnuþáttöku kvenna mögulega. Eldavélar, þvottavélar, örbylgjuofnar, frystikistur, ryksugur og fleiri tæki hafa gjörbreytt heimilisstörfum.Verkefnaþurrð fjölskyldunnar væri staðreynd og myndi veikja hana. En fjölskyldan er lífseig og fram hafa komið ný mynstur eða tegundir af fjölskyldum. 

Bloggfærslur 7. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband