Í Kína eru karlar fleiri en konur.

Árið 2020-eftir 7 ár-er talið að karlar verði 20 milljónum fleiri en konur. Sveitahéruðin verða yfirfull af öldruðum piparsveinum. Það er afar mikið misvægi í fjölda karla og kvenna sem skýrist af fjölskyldustefnu, menningarhefðum og ákvörðunum í fóstureyðingum. Hefðbundin fjölskylda vill eignast son frekar en dóttur. Hann mun viðhalda fjölskyldunni. Á hverjar 100 stúlkur sem fæðast þá fæðast 120 drengir. Í sumum héruðum er hlutfallið 100 á móti 150. Sum sveitaþorp eru kölluð piparsveinaþorpin. Á giftingarmarkaði er hörð samkeppni og sumir hafa enga möguleika. Örlög kvenna geta verið misjöfn. Þær eru stundum seldar af eigin fjölskyldu. Öðrum er rænt og seldar mansali í fjarlægu héraði. Þetta ástand hefur margvísleg áhrif. Sparnaður hefur vaxið gífurlega í Kína. Fjölskyldur safna til að geta keypt vænlega konu fyrir soninn. Félagslegur heyfanleiki gæti vaxið. Hjónabandið verður tæki konunnar til að færast upp í stéttakerfinu. Einmana og einhleypir karlar gætu skapað einhvers konar óróa og vandræði fyrir samfélagið.

Höfum við efni á Sinfóníuhljómsveit?

Höfum við efni á að setja 900 milljónir í slíka hljómsveit? Eða kannski 500 milljónir? Eða kannski ekkert?Spyrja má á almennari hátt: á hið opinbera að styrkja menningarstarfsemi og hversu mikið? Sömu krónunni verður ekki eytt tvisvar í útgjöldum hins opinbera. Sömu krónunni verður heldur ekki eytt í arðgreiðslur, einkaneyslu og samneyslu. Í hagfræði er talað um verðleikavörur en þá er átt við vörur og þjónustu sem talið er að auðgi samfélaið en þann ávinning er ekki alltaf hægt að mæla í verði. Rekstur sinfóníuhljómsveita er kostnaðarsamur og tónlistin höfðar ekki til allra. Í langflestum löndum styðja stjórnvöld slíka starfsemi með beinum fjárframlögum eða með öðrum hætti. Almennt séð auðgar menningarleg starfsemi samfélag manna. Jöfnuður varðandi aðgengi að menningu skiptir miklu máli. Stuðningur hins opinbera við menningarstarfsemi getur verið aðferð til að ná þessu markmiði. Nú geta einkafyrirtæki og auðmenn stutt menningarstarfsemi og gera það mjög víða. Menningargeirinn á Íslandi er stór á evrópskan mælikvarða. Rúmlega 3% vinnumarkaðarins eru innan geirans. Ef miðað er við miðborg Reykjavíkur búa 75% þjóðarinnar á svæði sem er innan við klukkutíma akstur. Slík samþjöppun byggðar er einstök. Það er því ljóst mikilvægt er að efla menningarstarfsemi utan höfuðborgarsvæðisins til að efla fjölbreytni og vinna gegn fábreytni í atvinnuháttum.

Verður Magnus Carlsen heimsmeistari í skák?

Magnus er 22 ára Norðmaður. Hann er með yfir 2800 Elostig og efstur á lista Fide-alþjóða skálsambandsins. Hann er með 2817 stig sem er meira en Garry Kasparov náði.  Á morgun hefst einvígið við Indverjan Anand. Magnus varð stórmeistari 13 ára gamall. Anand er 43 ára gamall. Það er næstum tvöfaldur aldur Magnusar. Magnus og Anand eru andstæðingar en ekki fjandmenn. Árið 2010 aðstoðaði Magnus Anand við undirbúning einvígis. Faðir Magnusar teflir skák og er virkur í skákfélagi. Þegar Magnus var níu ára gamall sigraði hann föður sinn. Þetta er ráðgáta. Suma hluti lærir Magnus á miklum hraða og leggur á minnið. Hann hefur óvenjulegt sjónminni. Ef hann hefur ekki áhuga á einhverju man hann ekkert segir systir hans. Magnus á fjölmörg áhugamál eins og sjá má á Facebook síðu hans. Hann leikur tennis, stundar fjallaklifur og hlustar á tónlist. Hann hefur verið í tískuauglýsingum með leikkonunni Liv Teyler. Minni Magnusar er ótrúlegt. Hann man og  getur rakið 1000 skákir. Í hverri skák þarf að reikna fram í timann og Magnus getur séð15-20 leika fram í tímann að jafnaði. Anand veit við hvað er að etja. Undanfarna mánuði hefur hann stundað líkamsrækt og aukið þrek og úthald. Einbeiting í marga klukkutíma krefst mikillar orku. NRK mun vera með beinar sjónvarpssendingar frá einvíginu. Á fjölmörgum heimasíðum verður einvígið einnig í beinni útsendingu.

Gyðingahatur í Evrópu.

Gerð var umfangsmikil rannsókn og í henni tóku þátt 6000 Gyðingar í 8 ríkjum ESB. Mest ber á Gyðingahatri í Þýskalandi. Þátttakendur komu frá Frakklandi, Ungverjalandi, Bretlandi, Svíþjóð, Þýskalandi, Ítalíu, Litháen og Belgiu. Talið er að 90% allra Gyðinga í Evrópu búi í þessum löndum. Spurningum var svarað á netinu og allir sem tóku þátt voru gyðingtrúar samkvæmt eigin upplýsingum. Rannsóknin beindist að því hvernig Gyðingar skynja hættu en ekki hvort þeir hefðu orðið fyrir árásum eða aðkasti. Tveir þriðju töldu andúð á Gyðingum vera vandamál í Evrópu og þrír fjórðu töldu að andúðin hefði vaxið á síðustu fimm árum. Helmingur óttaðist að verða fyrir munnlegum árásum. Þriðjungur óttaðist að verða fyrir líkamlegri árás. Helmingur óttaðist að barnabarn yrði fyrir árás ef það gæfi greinilega til kynna að það væri Gyðingur. Við rúman helming hafði verið fullyrt að Helförin hefði ekki átt sér stað eða að frásagnir væru stórlega ýktar.  Samkvæmt skýrslum lögreglunnar hefur brotum gegn gyðingum fækkað síðan árið 2009. Mikill meirihluti spurðra í könnuninni sagðist ekki hafa tilkynnt áreiti og árásir til lögreglu. Helmingur þýskra Gyðinga hafði fengið að heyra að Ísrealar kæmu fram við Palestínumenn eins og þýskir nasistar við Gyðinga. Mjög marg af því sem sagt er neikvætt um Gyðinga kemur fram á bloggsíðum, í athugasemdakerfum og á samfélagsmiðlum.

 


Framsýn gegn Seðlabankastjóra.

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar hefur ályktað gegn málflutningi SA og Seðlabankastjóra. Eins og kunnugt er hefur Starfsgreinasambandið lagt áherslu á hækkun lægstu launa um 20 þúsund á mánuði. Grunnlaun færu þá yfir 200 þúsund á mánuði. Seðlabankastjóri hefur talað fyrir því að umsamdar launahækkanir og launaskrið eftir samninga fari ekki hærra en verðbólguviðmið Seðlabanka. Rökin eru fremur einföld: það hefur átt sér stað framleiðniaukning( óljóst nákvæmlega hversu mikil), launakostnaður má aukast sem því nemur án vandamála og örfá prósentustig til viðbótar. Þá er allt í blómanum. Málflutningur SA er á svipuðum nótum. Framsýn er ósátt við þetta og hvetur bankastjórann og ótilgreinda forystumenn SA til að gefa laun sín umfram lágmarkslaun Starfgreinasambandsins til góðgerðamála fyrir jólin. Auk þess benda þeir á að ekki sé hægt að ná endum saman á lágmarkslaunum. Nú má vera að báðir hafi eitthvað til síns máls. Félagsleg staða mótar skoðanir manna og bankastjórinn er ágætt dæmi um það. Á menntaskólaárum og háskólaárum var hann í 4ða Alþjóðasambandinu (Trotskyistar), síðan lá leiðin um Alþýðubandalag, Samfylkingu, Seðlabankann, Alþjóða Greiðslubankann í Sviss og loks aftur í Seðlabankann. Skoðanir hans hafa mótast af félagslegri stöðu hverju sinni. Nú er það svo að margir forréttindahópar gefa mikið til góðgerðamála og þróunarmála. Bill Gates er sennilega þekktasta dæmið. Áskorun Framsýnar er skiljanleg en hún er tilgangslaus og á skjön við veruleikann. Við breytum ekki hlutfalli launatekna af þjóðartekjum með gjöfum einstakra manna. Með sama rétti má segja að áhyggjur bankastjórans af verðbólgunni séu á skjön við veruleikann. Ef við líkjum Íslandi við Kolbeinsey sem gæti horfið í öldurótinu gæti íslenskt hagkerfi horfið í ölduróti alþjóðlegs fjármálamarkaðar. Um ára skeið hafa vogunarsjóðir haft áhuga á Íslandi og ónefndur maður í ónefndum sjóði gengur undir nafninu Herra Ísland. Í bili reynir Kolbeinsey að verja sig með fjármagnshöftum en á eyunni sjálfri hafa menn áhyggjur af bólumyndun og verðbólgu. Dregur nú brátt til tíðinda.

Bloggfærslur 8. nóvember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband