Hvaða karlar beita konur ofbeldi?

Karlar eru venjulegar gerendur í ofbeldisverkum og þess vegna verður að spyrja: hvað gerist í tilfinningalífi og sálarlífi ofbeldisfullra karla? hvaða þjóðfélagslegar aðstæður búa til ofbeldishneigða karla? Þriðjungur allra kvenna í heiminum-nálægt einn milljarður-verður fyrir ofbeldi einhvern tíma á æfinni. Ofbeldi karla gagnvart konum er nátengt þröngu viðmiði umm það hvað er að vera karl eða hvað er karlmennska. það er til þess ætlast að karlar séu fjárhagslega sjálfstæðir, að þeir verði eiginmenn og feður, að þeir séu aðal fyrirvinna fjölskyldunnar, að aðrir karlar líti á þá sem jafningja og að þeir séu höfuð fjölskyldunnar. Þessi viðmið eru breytileg frá einu landi til annars og karlar jafnt og konur halda þeim við. En stundum ná menn ekki að lifa í samræmi við væntingar og viðmið. Menn verða fátækir, verða atvinnulausir og eru félagslega útilokaðir. Og hvernig halda menn þá stöðu sinni innan fjölskyldunnar? Ofbeldi gagnvart eiginkonu er einföld og nærtæk lausn. Hún er auðveld bráð. Í rannsókn á Indlandi komi í ljós að þriðjungur karla skammaðist sín mikið ef þeir voru atvinnulausir eða tekjur þeirra mjög lágar. Karlar í þessum aðstæðum er líklegri en aðrir til að beita ofbeldi. Í lengri tíma litið merkir þetta að viðmið um karlmennsku verða að breytast. Til skemmri tíma merkir þetta að karlar verða að vera hluti af fjölskyldumeðferð til að uppræta ofbeldi. Ofbeldi gegn konum er skelfilegt á Indlandi eins og fréttir undanfarinna missera bera með sér.(The Times of India.).

Fyrirlítur kaþólska krikjan ríka fólkið?

Páfinn í Róm hefur sent frá sér rit á 180 blaðsíðum þar sem hann gagrýnir markaðskerfi og fjármálakerfi nútímans mjög harkalega. Ógnarstjórn markaðarins og það að stela auði frá fátæklingum jarðarinnar er harðlega gagnrýnt. Kenningar sem verja þetta kerfi eru rangar og fjandsamlegar manninum. Markaðurinn leiðir til mismununar og neyðar. Hann má alls ekki vera algerlega sjálfstæður og afskiptalaus. Skrif Franziskus páfa eru ekki trúarlegar kennisetningar en þær eru ekki einkaskoðanir hans sem persónu. Þær eru gundvallarrit Páfastóls um efnahagsmál. Í kristinni trú, sérstaklega kaþóslkir hefur auðsöfnun, Mammonsdýrkun, og einkaeign ávallt verið gagnrýni. Félagskenning kaþólsku kirkjunnar hefur ávalt verið gagnrýnin á kapitalískt markaðskerfi. Vald fjármagnsins er of mikið á kostnað vinnunnar. Skrif Páfans eru í þessum anda en þau eru óvenjulega eindregin. Páfinn vitnar í Johannes Chrysostomos en hann vað guðfræðingur á 4ðu öld og tekur margt orðfrétt frá honum.  Auðveldar er fyrir kameldýr að komast í gegnum nálarauga en ríkan mann að komast til himnaríkis. það er erfitt að mistúlka þessi orð. Utópian um kristilegan kommúnisma kemur víða fram í Nýja Testamentinu. Þetta er endurvarp þess sem verður í Himnaríki. Þessar hugmyndir hafa alltaf átt sér gagnrýnednur. Einn þeirra var þýski heimspekingurinn Nietzsche. Kristin kenning er þrælasiðferði. Hún er öfund gagnvart þeim sem náð hafa árangri og eiga rétt á að njóta ávaxta dugnaðar síns. Kristin trú var vampíra Rómarveldis, skrifað Nietzsche. Mótmælendatrú hefur allt önnur viðhorf. Hjá Kalvin er velgegni í þessum heimi merki um náð Guðs og þess að vera útvalinn til himnaríkisvistar. Páfinn hefur orðið fyrir áhrifum að Guðfræði frelsunar sem var mjög róttæk hreyfing presta  í Suður Ameriku. Páfinn var lengi biskup í Buenos Aires. Þar hafði hann mannlega neyð fyrir augum á hverjum degi. En kannski leggur páfinn of mikið uppúr dökku hliðum samtímans. Á undanförnum áratugum hafa kjör 700 milljóna manna batnað verulega. Mikill meirihluti þessa fólks býr í Kína. (faz.de).

Leiðrétting verðtryggðra lána; örstutt skýring.

Niðurfelling vegna forsendubrests verður 80 milljarðar. Fjármögnun er óviss en í versta falli lendir allt á ríkissjóði.  70 milljarðar; skattafsláttur vegna séreignasparnaðar. Fjármögnun ; ríkissjóður greiðir/verður af skatttekjum sem nemur 40 milljörðum. Lántakendur og launagreiðendur 30 milljarðar.  Niðurstaða: í versta falli mun ríkissjóður greiða 120 milljarða. Mikilvægur kostur tillagna er hámark á skuldaaniðurfærslu sem er 4 milljónir. Hver verða viðbrögð lántakenda? hver mun reikna út sitt lán, hvernig greiðslubyrðin lækkar og hver höðuðstóllinn verður. Hver er sjálfum sér næstir. Hverjir munu hagnast á næstunni? lögmannsstofur sem sinna þrotabúum bankanna oglagalegum vafaatriðum varðandi lán. Hverjir fá ekkert?þeir sem hafa ekki verðtryggðlán, leigjendur og þeir sem hafa tapað húsnæði sínu. Lokaniðurstaða: tilfærsla á fjármunum millii vasa sama einstaklings og frá einum einstaklingi til annars. 

Bloggfærslur 1. desember 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband