15.12.2013 | 21:58
Voru þrælar grafargjafir á víkingatímanum?
Á eyjunni Flakstad við strönd Noregs hafa farið fram fornleifarannsóknir. Í nokkrum grafanna sem rannsakaðar hafa verið hafa fundist beinagrindur þræla sem hafa verið hálshöggnir og settir í gröfina sem gjafir. Elise Naumann við Háskólann í Ósló hefur stýrt rannsóknum. Nýlega birtist ritgerð eftir hóp vísindamanna í tímaritinu Journal of Archeological Science. Rannsóknir á beinum benda til þess að þrælarnir hafi verið hálshöggnir fyrir greftrun höfðinga síns og eigenda og síðan fylgt honum í gröfina. Þetta segir mikla sögu um mismunandi réttarstöðu fólks á víkingatímanum(800-1050). Grafirnar fundust snemma á níunda áratugnum og á svæðinu hafa fundist margvíslegir munir,s.s. hnífar. Í ljós hefur m.a. komið að matarræði höfðingja hefur verið allt annað en þræla. Hinir valdamiklu og auðugu átu meira kjöt og dýraarurðir en þrælar.
15.12.2013 | 18:06
Frans páfi er ekki marxisti en ......
Í löngu viðtali við ítalska blaðið La Stampa ræðir páfinn um jólahald kristinna manna, hungur í heiminum, þjáningar barna og umbætur innan krikjunnar. Jólin er þegar Guð og mennirnir mætast. Það ríkir sameining, samvera og friður. Jólin boða von og blíðleika. Mennirnir óttast að sýna hver öðrum blíðleika en það eiga þeir ekki að gera. Í Jesúbarninu verður almáttugur Guð að varnarlausu barni. Það er leyndardómur. Saklaus börn geta veikst og dáið. Hvers vegna? Páfinn vitnar í rithöfundinn Dostoevskij sem spurði af hverju þjást börn. Páfinn segist spyrja Guð..Mörg börn í heiminum þjást af hungri. Mennirnir sýna skilningsleysi og afskiptaleysi. Blaðamaðurinn spyr um Hirðisbréfið og gagnrýni öfgahægri (ultraconservative)manna í USA. Páfinn segir að marxísk hugmyndafræði sé röng en segir hann á lífsleiðinni hef ég kynnst mörgum marxistum sem voru góðir menn. Ég er ekki móðgaður segir Páfi. Hirðisbréfið er í fullkomnu samræmi við þjóðfélagskenningu kirkjunnar. þar er allt að finna. Það var minnst á brauðmylsnukenninguna. Hún felur í sér segir Páfi að þegar glasið er fullt muni flæða úr því og hinir fátæku njóta þess. En nákvæmlega þetta gerist ekki. Glasið stækkar og hinir fátæku fá ekki neitt, segir Frans páfi. Þetta felst í þjóðfélagskenningu krikjunnar.
15.12.2013 | 14:30
Stórútgerðin malar gull og greiðir of lítil veiðigjöld.
Ekki er hægt að draga aðra ályktun á Hagtíðindum Hagstofunnar sem fjalla um veiðar og vinnslu 2012. Hreinn hagnaður nam 57.2 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið 22.6 milljarður samkvæmt árgreiðsluaðferð. Sé miðað við hefðbundið uppgjör er hagnaður 46.6 milljarðar. Í fiskveiðum var EBITDA 25% af heildartekjum og í fiskvinnslu 17.2%. Verð sjávarafurða hækkaði í íslenskum krónum um 7.2% en á móti kom að olíukostnaður hækkaði um14.7%. Útflutningsverðmæti óx og magn einnig. Veiðigjald sem er bókfært sem rekstrarkostnaður hækka'i úr 4.5 milljörðum í 12.2 milljarða. EBITDA uppsjávarveiðiskipa var 29.4% af tekjum. Aflinn 2012 var 48% meiri en 2011. Heildareignir sjávarútvegsins voru 535 milljarðar í lok árs 2012. Eigið fé voru 106 milljarðar. Eiginfjárhlutfall er 19.9%. Eins og kunnugt er lækkuðu ríkisstjórnarflokkarnir veiðigjald á botnfiskútgerðir með þeirri sérkennilegu skýringu að það myndi styrkja sérstaklega litlar og meðalstórar útgerðir. Ef sú var ætlunin voru og eru till einföld ráð til þess. Í sögulegu samhengi er raungengi krónunnar afar lágt. Sjávarútvegur er grein þar sem miklar sveiflur eru. Sem dæmi má nefna að eiginfjárhlutfall var á bilinu 24%-29% á árunum fyrir hrun. 2008 er hlutfallið -12%. Þetta sýnir vel hversu rekstrarskilyrði sjávarútvegsins hafa verið hagstæð undanfarin ár. Stórfyrirtæki í sjávarútvegi eru eins og önnur stórfyrirtæki. þau fjárfesta í greinum og fyrirtækjum sem þau hafa viðskipti við. Dæmi um slíkt er olíufélag eða fyrirtæki sem þjónusta sjávarútveginn. Til að tryggja vinsamlega pólitíska umfjöllun fjárfesta stórfyrirtæki gjarnan í fjölmiðlum.
15.12.2013 | 11:25
Eftir Al Thani dóminn: tveir lögmenn misstu vitið skamma stund....
Dómurinn í Al Thani málinu vakti og vekur eðlilega sterk viðbrögð. Sérkennilegust af öllum voru viðbrögð Brynjars Níelssonar. Þann 12.12. lýsir hann því yfir að hann muni ekki taka að sér störf í banka og alls ekki hér á landi. Er helst að skilja á mjög stuttri grein að bankamenn hér á landi lifi í lagalausu umhverfi eða sviði.Lögmaðurinn varpar fram tilgátum; ákærendur og dómarar hér á landi eru gáfaðri en í öðrum löndum. Einnig telur hann mögulegt að hin evrópska efnahagslöggjöf sé rangt þýdd á íslensku. Halelújá...... 13.12 skrifar Sigurður G Guðjónsson östutta grein í Pressuna og segir að kjarni Al Thani málsins hafi verið sá að sjeikinn sjálfur hafi tapað í viðskiptunum. Yes.... 14.12 hefur lögmaðurinn náð áttum og ræðst á Moggann. Hann rifjar upp þekkt afrek DO. En einnig minnist hann á Óskar( bróðir Jakobs)Magnússon og birtir syndalista; útrásarvíkingur í TM, skattundaskot og sérmeðferð þess vegna. Lögmaðurinn virðist telja að stjórnmálamenn sleppi við samskonar brot og bankamenn eru dæmdir fyrir. Ekki er þó ljóst hvort á að sleppa báðum eða refsa báðum.
15.12.2013 | 10:26
Ursula von der Leyen verður varnarmálaráðherra Þýskalands.
Í fyrsta skipti verður kona ráðherra varnarmála í Þýskalandi. það vekur forvitni bæði hermanna og almennings. von der Leyen er ákaflega vinsæll stjórnmálamaður og hún er í CDU. Hún hefur nú tryggt stöðu sína sem krónprinsessan í flokknum. Merkel ætlar sér ekki að vera kanslari að eilífu og nú getur Ursula æft sig fyrir hlutverkið. Varnarmálaráðuneytið og herinn eru ekki lömb að leika sér við.Verkefnið hefur reynst mörgum stjórnmálamönnum erfitt. Ursula er móðir sjö barna; fimm dætra og tveggja sona. Hún er fædd 8.10. 1958. Baráttumál henar hafa verið af ýmsum toga en flest tengd fjölskyldumálum. Heimasíða hennar er www.ursula-von-der-leyen.de
15.12.2013 | 09:05
Eftir útrásina kemur hótelrekstur í Stykkishólmi.
Í júli í fyrra komu fréttir um það að Heiðar Már væri virkur í íslensku atvinnulífi. Hann væri stjórnarformaður félagsins Gistiver ehf og prókúruhafi þess. Fékagið rekur 2 gistiheimili og nýlega var hafinn rekstur í hinu sögufræga Egilshúsi í Stykkishólmi. Salan á Egilshúsi olli nokkrum deilum í bæjarstjórn og töldu fulltrúar D-lista ekki rétt að málinu staðið .Aðrir töldu að vegna mikils viðhaldskostnaðar væri husið baggi á bæjarsjóði. Egilshús var byggt 1865 og er næstelsta húsið í Stykkishólmi. Húsið byggði á sínum tíma Egill Egilsson en hann var bróðir Bebedikts Gröndal skálds. Móðir Sigurðar Már Gréta Sigurðardóttir eru hótelstjóri. Lárus Hannesson forseti bæjarstjórnar í Stykkishólmi og Gréta eru systkinabörn en það virtist ekki tefja fyrir ákvarðanatöku í sölu Egilshúss. Fyrir mörgum árum var Gréta, móðir Heiðars Már dæmd fyrir fjárdrátt í héraðsdómi. Kaupþing keypti gólagjafir af félaginu Gjafaveri sem var í eigu móður Heiðars Már. Samkvæmt fréttum mun Heiðar Már nú flytja inn til landsins 500 milljónir í gegnum fjárfestingarleið Seðlabankans. Hann eins og aðrir sem nota þess leið munu fá krónur með góðum afslætti. Heiðar Már hefur þótt vinnusamur og hlédrægur. Hann er fljóthuga og áttar sig strax á viðskiptatækifærum.
Bloggfærslur 15. desember 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar