3.12.2013 | 21:48
Geðsjúkdómar og afbrot.
Frá árinu 1983 til 2008 lögðust 7670 karlmenn inná geðdeild hér á landi. 815 höfðu afplánað dóm í fangelsi og 749 voru með fíknisjúkdóm. Erlendar ransóknir hafa sýnt að um 40% fanga glímir við geðraskanir og 10-15% glímir við alvarlegar geðraskanir. Í 15 grein almennra hegningarlaga segir að geðsjúkum mönnum skuli eigi refsað enda hafi þeir sjúkdómsins vegna verið ófærir um að stjórna gerðum sínum. Sakhæfi er lögfræðilegt hugtak og dómari úrskurðar um sakhæfi brotamanns. Sakhæfir brotamenn eru dæmdir til fangelsisvistar en ekki ósakhæfir. Ósakhæfir geðsjúkir íslenskir brotamenn hafa ýmist verið í fangeslum hér á landi eða sjúkrahúsum erlemdis eða á réttargeðdeild hér á landi. Á réttargeðdeild fær sjúklingur meðferð og dvelur að lágmarki tvö ár. Í fangelsum eiga fangar rétt á heilbrigðisþjónustu eins og aðrir. Samkvæmt mati opinberra aðila er geðheilbrigðisþjónustu ábótavant í fangelsum hér á landi. Meðal annarra hefur Evrópunefndin CPT bent á þetta en hún hefur fjórum sinnum gert úttekt á fangelsum landsins. Mjög erfiðlega hefur gengið að fá langtímainnlög á geðdeildum fyrir fanga. Það er togstreita milli geðsjúkrahúsa og deilda og Fangelsismálastofnunar. Það er ljóst að Fangelsismálastofnun hefur hvorki mannafla né úrræði til að sinna geðsjúkum föngum. Í nokkrum tilvikum hafa alvarlega geðsjúkir fangar verið vistaðir í einangrun í fangelsi.
3.12.2013 | 14:06
Lesskilningur, stærðfræði og náttúrufræði. PISA 2012.
Frammistaða íslenskra nemenda versnar verulega frá 2009. Munur milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis vex. Piltum fer mikið aftur í lesskilningi og stærðfræðilæsi. Mikill munur er á innfæddum og inflytjendum. Lítill munur er milli skóla. Viðhorf nemenda eru jákvæðari. --Þetta eru niðurstöður í örstuttu máli. Líklega kemur niðurstaðan ekki á óvart en hún veldur miklum vonbrigðum. Jafnfram er hún alvarleg áminning. PISA er alþjóðleg rannsókn. Í fyrra tóku 65 lönd þátt í rannsókninni. Í öllum löndum Evrópu er mikið um hana fjallað og mikið mark á henni tekið. Ísland er rétt fyrir neðan OECD meðaltal í læsi á stærðfræði. Ísland er langt fyrir neðan þetta meðaltal í læsi í náttúrufræði. Á 10 árum virðist læsi hafa farið aftur sem nemur hálfu skólaári. Staða nemenda á Íslandi er ekki einstök. Staða nemenda í Svíþjóð virðist t.d. nokkru verri. Unglingum virðist líða vel í skóla sem er gott en framtíð í skóla og á vinnumarkaði reynist þeim erfið sem er ekki vel læs. Munur á drengjum og stúlkum hvað læsi varðar er mikið áhyggjuefni svo og munur á höfuðborgarsvæði og landsbyggð. Vel menntað vinnuafl er mikilvægasta auðlind Íslands. Dagar orðagjálfurs á tyllidögum eru liðnir. Nú verða stjórnvöld og þjóðin að láta verkin tala. Það merkilega er að þetta ástand skrifast aðallega á reikning íslenskra fjölskyldna en auðvitað ekki eingöngu. Íslensk heimili eru mjög tæknivædd, tölvur, símar, leikjatölvur....listinn er langur. Netheimur og heimur tölvuleikja er annað heimili íslenskra unglinga. Tímanum eiga foreldrar og geta foreldrar stjórnað. Fjölmiðlar hvetja ekki til lesturs og það gera kvikmyndir og framhaldsþættir heldur ekki. Mynd-og hljóðefni hefur náð yfirtökum.
3.12.2013 | 09:50
Feiti tékkinn, glærusýningin, þrotabúin og veruleikinn.
Í júlí voru allar skuldir heimila 108% af landsframleiðslu. Að raunvirði höfðu skuldir lækkað um 3.2% fram á mitt þetta ár. Í árslok 2012 voru verðtryggðar skuldir heimila 87% af landsframleiðslu. Hrein eign heimila var í árslok 2o12 115% af landsframleiðslu. fasteignaverð hækkaði þetta ár. Á síðasta ári dró ur skuldavanda einstaklinga en mest hjá tveimur tekjuhæstu hópunum. Af einstaklingum með neikvætt eigið fé skulduðu tveir tekjuhæstu hóparnir 56% allra skulda. Tveir tekjulægstu hóparnir skulduði 26% fjárins. Örlítið brot tekjuhæstu hópanna er í greiðsluvandræðum. (Eru þetta helstu vinir Frosta Sigurjónssonar?)12% heildarútlána voru í vanskilum mitt þetta ár. Fjöldi einstaklinga á vanskilaskrá hækkar. í ágúst voru þeir 28099. 60% hefur verið á skránni í tvö ár eða lengur og 30% í fjögur ár eða lengur. Í ágúst höfðu 4820 einstaklingar sótt um greiðsluaðlögun. Staða heimilnna í heild hefur því farið batnandi fram á mitt þetta ár. ---Varðandi séreignasparnað og skattaafslátt er algerlega ljóst að sú aðgerð(ef af verður) mun gagnast hátekjufólki betur en lágtekjufólki. Sú aðgerð er ekki gerð til þess að auka ráðstöfunartekjur þeirra sem lægst hafa launin. Öll leiðrétting á verðtryggðum fasteignalánum er á kostnað ríkisins á næsta ári uþb 40 milljarðar. Hún er á ábyrgð ríkisins. Lagalegri óvissu um það hvort þrotabú séu andlag skattstofns verður eytt fyrir dómstólum. það mun taka tíma og útkoma óljós. Séreignapakkinn er fjármagnaður af launagreiðendum, launafólki og ríkinu í formi skattaafsláttar og tapaðra skatttekna. Feiti tékkinn mættti sem sagt ekki á glærusýninguna enda var þar ekkert talað um fjármögnun. Enda hefur feiti tékkinn alltaf verið brandari rétt eins og sms skilaboð utanríkisráðherra hjá vodafone. Þá eru það þrotabúin. þau verða örugglega gósenland lögfræðinganna en óljóst hvort fleiri komast að matarborðinu. Rétt er að vera sanngjarn. SDG og BB náðu um helgina frumkvæði í áróðursstríðinu kringum þetta mál. Við skulum ekki gera lítið úr því.
Bloggfærslur 3. desember 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar