30.12.2013 | 21:05
Mun hagvöxtur í USA vaxa árið 2014?
Það ríkir bjartsýni hjá bönkum og fjármálastofnunum bæði í Evrópu og Ameríku. Á næsta ári mun hagvöxtur aukast. Deutsche Bank spáir 3% hagvexti í USA á næsta ári og 3.8% árið 2015. Og vampíran sjálf Goldman Sachs er sama sinnis. 2014 verður ár hagvaxtar, einkaneysla vex og fjárfestingar sömuleiðis. Á 3ja ársfjórðungi í ár var hagvöxtur 4.1%. Þetta var hæsta tala í rúm tvö ár. Á þessu tímabili jukust birgðir mjög mikið. Fyrirtæki hafa keypt mikið af vörum frá birgjum en óvíst er hvort raunveruleg eftirspurn er til staðar. Á 3ja ársfjórðungi minnkaði einkaneysla eða útgjöld neytenda. Frá því sumarið 2009 hefur landsframleiðsla aukist um 10%. Útgjöld neytenda skýra 65% af þessum vexti. Nýbyggingar skýra 9%. Birgðaaukning skýrir 19%. Ástandið á vinnumarkaði er viðkvæmt. Hlutfall atvinnuleysis minnkar en aðallega vegna minnkandi atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka fólks á aldrinum 16 til 24 hefur minnkað mikið. Skólarnir hafa það hlutverk að létta á vinnumarkaði. Margir þeirra sem eru í hlutastarfi hafa áhuga á fullu starfi en fá hvergi meiri vinnu. Í október urðu til 204000 ný störf en stærstur hluti þeirra eru láglaunastörf. 60% starfa sem hafa glatast í kreppunni síðan 2007 voru störf með meðallaunum en 58% nýrra starfa eru láglaunastörf. 25% vinnandi fólks í USA eru með 10 dollara eða minna á klukkutímann. Meðal raunlaun fara lækkandi. 5% á toppnum hafa hinsvegar hækkað laun sín um 8% síðan 2008. Hjá topp 20% hafa laun hækkað um 6%. Samkvæmt opinberum tölum lifa 15% bandaríkjamanna í fátækt. Allir mælikvarðar sýna að bilið milli ríkra og fátækra er að breikka. (framhald).
30.12.2013 | 10:52
Þýskaland 2014; horfur í efnahagsmálum eru góðar.
Það er ákaflega margt sem bendir til þess að uppsveifla geti orðið á næsta ári. Vextir eru lágir vegna þess að erlent sparifé streymir til landsins. Það er talið öruggt að geyma peninga í Þýskalandi. Erlendir peningamenn kaupa þýsk skuldabréf á nánast núll vöxtum. Framboð á peningum til fjárfestinga verður þess vegna mikið. Efnahagslega sterkt Þýskaland hefur sömu mynt og veikari ríki í Suður Evrópu. Ef evran veikist verður samkeppnisstaða Þýskalands enn betri. Spárnar eru góðar fréttir fyrir samsteypustjórn hægriflokkanna og jafnaðarmanna. Laun ættu að hækka og þá skatttekjur hins opinbera. Stjórnin hefur sett fram fjárfestingaráætlun uppá 23 milljarða evra á næstu árum. Í kreppulöndum Evrópu liggur leiði einnig uppá við. Írland og Spánn hafa lokið þátttöku óg samstarfi við Björgunarsjóð ESB. Portúgal gæti gert það með vorinu. Grikkland og Kýpur eru enn verst sett. Ennþá er atvinnuleysi mikið í Þýskalandi en markaðslögmálin eru miskunarlaus. Fyrirtæki geta valið um staðsetningu á framleiðslustöðvun. Launakostnaður skiptir miklu. En auðvitað getur allt farið á verri veg. Öfgaflokkar gætu náð völdum í Grikklandi. Í nótt var ráðist á heimili þýska sendiherrans í Grikklandi með kalaschnikow byssu.Utanríkisráðherrann hefur motmælt þessu og segir ekkert réttlæta slíkt. 1999 var einnig ráðist á heimili sendiherrans en þá með skriðdrekavörpu (?)(Panzerfaust). Kannski springur skuldabólan í Kína, kannski lendir franskt hagkerfi aftur í niðursveiflu; það er erfitt að spá.....OECD hefur spáð því að evrusvæðið muni vinna sig uppúr erfiðleikunum en spáin fyrir Þýskaland er sérstaklega góð.
30.12.2013 | 08:27
Lettland hluti af evrusvæðinu 1.1. 2014.
Lettland er 18. ríkið til að ganga í myntbandalagið.Lettar eru rúmar tvær milljónir og hagkerfi þeirra er 0.3 % af hagkerfi evrusvæðisins. Lettland er því smáríki en stærðin segir ekki alla söguna. Áður var Lettland á áhrifsvæði Sovétríkjanna og Rússland er og verður nágranni. Stórir og fyrirferðamiklir nágrannar geta verið erfiðir. Gjaldmiðilinn heitir enn lats og í mörg ár hefur hann verið beintengdur evrunni. Lettland gekk í ESB 2004 og Nató sama ár. Lettar brugðust við fjármálakreppunni 2008 með miklum niðurskurði og lækkun launa. Laun í opinbera geiranum voru lækkuð um 20%. Lettar hafa ekki farið þá leið að fella gengi latsins. Landið er ekki ríkt en það mun standa sig í samkeppni. það er reiðubúið aðganga í evrusvæðið. Vandinn er að evrusvæðið er ekki tilbúið fyrir Lettland. Sérstakt ráð stýrir Evrópska Seðlabankanum (EZB). 23 lönd eiga fulltrúa í ráðinu og hver fulltrúi hefur eitt atkvæði. Bankastjóri Seðlabanka Lettlands verður nú fulltrúi númer 24. Hann er tæplega fimmtugur hagfræðingur og menntaður í USA. Þjóðverjum líst vel á þetta. Nú verður hægt að styrkja Norðurbandalagið gegn Suðurbandalaginu í líkingum talað. Í ráðinu takast á ólíkir hagsmunir og EZB virðist vanbúinn að takast á við mikinn vanda evrusvæðisins. Bankakerfi ESB er ólíkt því bandaríska. FED hefur mikil völd og hann þarf ekki að deila því með mörgum öðrum bönkum. Í Lettlandi er atvinnuleysi 14% og samkvæmt upplýsingum Eurostat lifir 20% Letta í fátækt eða í hættu á að verða fátækur. Lettar eru 62% af íbúum landsins og Rússar 27%. Hvítrússar eru rúm 3%. 38% af íbúum landsins eru því af mismunandi minnihlutahópum.
Bloggfærslur 30. desember 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar