31.7.2013 | 21:44
Kreppa í Kína?
Hagvöxtur í Kína hefur verið undraverður en breyting virðist verða á seinni hluta árs 2010. Þá stöðvast hinn mikli vöxtur og í ár verður hann líklega 7.8%. Það er mikil breyting frá því sem áður var. Á vinnumarkaði í Kína eru nú uþb 800 milljónir manna. 35% vinnuaflsins er í landbúnaði sem er mjög hátt hlutfall miðað við þróuð iðnríki. Árið 2010 var Kína mesta útflutningsríki heims. Kínverska hagkerfið er næst stærst á eftir því bandaríska. Erlend fyrirtæki hafa fjárfest mikið í Kína vegna lágs launakostnaðar. Með aukinni hagsæld hafa laun hækkað og erlendu fyrirtækin leita annarra fjárfestingarmöguleika í löndum eins og Vietnam. Talið er að 15% Kínverja lifi í fátækt en í landinu er mikill fjöldi milljarðamæringa. þeir hafa í auknum mæli verið að flytja fjármuni sína frá Kína. Það gæti bent til ótryggs ástands. Tekjuskipting er ákaflega ójöfn. Efsti tekjuhópurinn hefur meir en sextíufaldar tekjur þess hóps sem minnstar hefur. Tölur ber að taka með varúð. Þeir sem gegna valdastöðum þiggja háar upphæðir í mútur. Valdakjarni flokksins verður nú að takast á við margvísleg vandamál. Spilling er mjög víðtæk. Neysla innanlands hefur lengst af ekki verið í samræmi við þjóðarframleiðslu. Víðtækar umbóta er þörf.
31.7.2013 | 16:55
Ný hugmynd að viðskiptabanka?
Ingólfur Ingólfsson fjármálaráðgjafi og einn aðstandenda Sparifélagsins ætlaði eitt sinn að stofna Sparibankann. Úr því hefur ekki orðið en nú hefur hann og félagar áhuga á að kaupa hlut í sparisjóði og hefur sparisjóður Norðfjarðar meðal annars verið nefndur. Innlendir og erlendir aðilar koma að fjármögnun þessa verkefnis. Helstu markmið er að auka samkeppni og koma fram með nýja hugmynd að banka. Ekki hefur komið fram hver sú hugmynd er. Er hugmyndin sú að lána eingöngu til grænna eða umhverfisvænna verkefna? Eingöngu til kvenna? Eingöngu til sprotafyrirtækja? Á að veita einstaklingum fjármálaráðgjöf samkvæmt ströngustu kröfum? Eða gera lánasamninga þannig að áhætta, t.d. verðbólguáhætta deilist á lántakendur og lánveitendur? Spyr sá sem ekki veit.
31.7.2013 | 15:06
Hagvöxtur í Bandaríkjunum.
31.7.2013 | 11:36
Skipulögð glæpasamtök á Íslandi.
Greiningardeild Ríkislögreglustjóra telur það hafið yfir allan efa að slík samtök séu starfandi hér á landi.Þessir hópar eru (flestir) af erlendum rótum. Þeir stunda framleiðslu á fíkniefnum, dreifingu og sölu. Mansal, rán , gripdeildir og fjárkúgun eru einnig á listanum. Líkur eru taldir á að þessir hópar muni eflast á næstu árum. Skipulag innlendra afbrotahópa virðist lausara í reipunum og þeir sameinast tímabundið um ákveðin verkefni. Það liggur fyrir að íslenskir afbrotamenn taka þátt í fíkniefnadreifingu á erlendum vettvandi. Nú er um tugur Íslendinga í fangelsum víða í Evrópu. Eftir Hrun hafa orðið verulegar breytingar á fíkniefnamarkaði hér á lands. Innlend framleiðsla kannabis fullnægir eftirspurn. Innflutningur á amfetamíni og skyldum örvandi efnum hefur aukist eftir hrun. Eftirspurn virðist mikil og stöðug. Allt bendir til þess að steranotkun fari hratt vaxandi hér á landi. Erlendir glæpahópar eru líklegir til að stunda mansal. Frægt er mál sem kom upp 2010 þegar 5 erlendir glæpamenn voru dæmdir til fangelsisvistar fyrir mansal. Áhætta á mansali er ekki bundin við erlenda glæpahópa. Ljóst er að í hópi hælisleitenda eru einhverjir sem hafa tengst glæpastarfsemi. Í málefnum vélhjólagengja hefur lögreglan náð verulegum árangri. Greiningardeildin metur hryðjuverkaógn ekki mikla hér á landi.
Glæpir eru alvarlegt samfélagsvandamál. Há tíðni glæpa bendir til siðrofs og upplausnar. Siðrof skapast oft ef þjóðfélagsþróun er mjög ör og ekki er ljóst hvaða reglur og siðaboð eru í gildi. Undanfarinn áratug hefur þróun íslensks samfélags einkennst af miklum umbrotum. Slík umbrot reyna á samheldni samfélagsins. Glæpir eru ein birtingarmynd alvarlegs siðrofs.
31.7.2013 | 10:25
Velta í ferðaþjónustu vex og vex.
31.7.2013 | 09:23
Stafar samfélaginu ógn af efnahagsafbrotun?
Bloggfærslur 31. júlí 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar