12.8.2013 | 21:16
Fátækt í Noregi.
Í Noregi er tekjudreifing tiltölulega jöfn og fátækir tiltölulega fáir. Lífskjör eru almennt mjög góð, laun há og verð á vöru og þjónustu hátt. Árið 2010 voru 4.5% undir fátæktarmörkum miðað við skilgreiningu OECD. Í hópi fátækra er helst að finna einstæðar mæður(feður), fjölskyldur með mjög mörg börn, innflytjendur og bótaþega. Einkum er um að ræða innflytjendur frá Asíu, Suður-Ameriku, Austur-Evrópu og Afríku. Þeir sem hafa lágar tekjur í þrjú ár samfellt eru einnig áberandi í hópi fátækra. Árið 2011 fengu 118 þúsund einstaklingar félagslega aðstoð. Þeir sem fá félagslega aðstoð búa oft við skerta vinnugetu og slæma heilsu. 5% barna lifa í fjölskyldum sem eru fyrir neðan skilgreind fátæktrarmörk. 40% barna eru úr fjölskyldum innlytjenda. Hlutfall barna frá Írak og Sómalíu er mjög hátt. Fátækt gengur í arf milli kynslóða og sama gildir um félagslega aðstoð. KVP er menntunar- og vinnumarkaðsverkefni á vegum stjórnvalda til að aðstoða einstaklinga við að brjótast úr fátækt.(Skýrsla um fátækt og lífskjör í Noregi- 2012. NAV).
12.8.2013 | 17:51
Er Ísland tifandi tímasprengja?
Cyrus Sanati er sjálfstæður blaðamaður sem ritar um efnahagsmál í mörg helstu blöð Bandaríkjanna. Nefna má New York Times, Fortune og WSJ. Hann hefur nú ritað grein um Ísland sem er allrar athygli verð. Kjarni máls hans virðist vera að á Íslandi hafi orðið hrun eftir að landinu hafi verið stjórnað sem vogunarsjóð fyrir hrunið. AGS hafi komið til bjargar en hin raunverulegu vandamál hafi ekki verið leyst heldur fryst eða sett í biðstöðu. Fyrr eða síðar verði íslensk stjórnvöld að horfast í auga við veruleikann.Gjaldeyrishöftin komi í veg fyrir að krónan hrynji endanlega saman og afturgöngu-bönkum er haldið á lífi með því að fresta uppgjöri við kröfuhafa. Fyrir hrun tóku íslenskir háar summur að láni erlendis og að sögn Sanati með því að lofa lánveitendum hærri vaxtagreiðslum en hægt var að fá heima fyrir. (Sanati virðist alhæfa út frá icesave-reikningum)Bankarnir gátu síðan endurlánað á hærri vöxtum en lánin enduðu sem tíföld þjóðarframleiðsla og þessi spilaborg hlaut að hrynja fyrr eða síðar. Eftir Hrun lánar AGS Íslandi upphæð sem nemur þriðjung landsframleiðslu en er út af fyrir sig lítil í augum milljónaþjóða. Og nú virðist allt ganga. Lágt gengi krónu, ferðaþjónusta og sjávarútvegur virðast vera að bjarga landinu. Meir að segja sérfræðingar AGS eru ánægðir. En segir Sanati þetta er gervilausn. Gjaldeyrishöftin brengla myndina. Innlent og erlent fjármagn er lokað inni. bankarnir stunda ekki eðlilega lánastarfsemi. Þeir reikna og umreikna gamlar skuldir. Neysla og fjárfesting hefur minnkað um 20% frá því fyrir hrun. Þjóðarframleiðsla er 10% minni en fyrir hrun. Ísland hefur ekki marga góða kosti. Ef gjaldeyrishöftum verður ekki aflétt mun hagkerfið halda áfram að minnka. Ef höftunum er aflétt mun verð eigna lækka og fjármagn fara úr landinu. Eiga erlendir aðilar að hefja fjárfestingar við slíkar aðstæður, spyr Sanati. Íslensku bankarnir eru líkir bönkum á Spáni. Þeir fjármögnuðu fasteignabólur sem sprungu og neyðast fyrr eða síðar til að afskrifa mikið af lánum. Vogunarsjóðir kaupa og selja kröfur og lánasöfn og nú er við þessa aðila að eiga. Fjárfestar munu fylgjast náið með því sem ríkisstjórn Íslands gerir á næstunni. Ísland sýnir vanda stærri þjóða í hnotskurn.
12.8.2013 | 13:33
Er evrusvæðið að braggast?
Á síðasta ársfjórðungi hófst hagvöxtur á evrusvæðinu eftir langa niðursveiflu. Verg landsframleiðsla 17 ríkja á svæðinu óx um 0.2 %. Í Þýskalandi er vöxturinn áætlaður 0.75% endanlega mun Hagstofa ESB staðfesta tölurnar 14. ágúst. Batnandi ástand í USA hefur jákvæð áhrif. Alemnnt séð er ástandið að batna en nokkur ríki í Suður Evrópu eiga í miklum vanda. Draghi bankastjóri Seðlabanka Evrópu segir að um tilhneigingu til bata sé að ræða. Stýrivextir bankans hafa aldrei verið lægri og þeim verður ekki breytt í bráð. Samdráttur varð á Spáni um 0.1% á 2. ársfjórðungi og atvinnuleysi ungs fólks er 56%. Væntingarvísitalan hækkaði sem og iðnframleiðslan á öllu svæðinu. Aecco vinnumiðlunin sú stærsta sem fæst við ráðningar til skamms tíma sýndi fram á aukinn hagnað á öðrum ársfjórðungi. Þýska hagkerfið vex og vöxturinn er drifinn áfram af einkaneyslu og iðnframleiðslu. Ástandið á fjármálamörkuðum svæðisins hefur verið tiltölulega rólegt það sem af er ársins. Í 5 ár samflellt hefur gríska hagkerfið dregist saman. Leið evrusvæðisins úr lægðinni er háð bata í Bretlandi, USA og Kína. Vöxtur í USA er nú meiri en 1% og gæti orðið það á evrusvæðinu 2014. En þá þurfa að koma til auknar lánveitingar banka til fyrirtækja á evrusvæðinu og eukin einkaneysla.
12.8.2013 | 11:25
Norðurslóðir. Kínverskt flutningaskip fer norðaustur leiðina.
Frá Dalian til Rotterdam mun leiðin taka 35 daga í stað 48 ef farið er um Suez-skurðinn. Skipið heitir Yong Sheng og er í eigu skipafélagsins Cosco. Það skiptir miklu máli ef ferðin styttist um allt að 15 daga. Þetta sýnir mikilvægi leiðarinnar og Kínverjar hafa alltaf lagt mikla áherslu á hagsmuni ríkisins á Norðurslóðum. Nú er leiðin eingöngu opin yfir sumarmánuðina en á því kann að verða breyting á næstu árum og áratugum. Enn sem komið er er ekki um val að ræða á skipaleiðum. Meir en 99% allra flutninga mun fara um Suez-skurðinn. Það er mjög dýrt að halda norðaustur leiðini opinn með ísbrjótum en þróunun virðist samt vera sú að ferðum skipa mun fara fjölgandi.
12.8.2013 | 10:12
Hvaða verkefni voru styrkt með IPA styrkjum?
Á 139. löggjafarþingi lagði þingmaðurinn Birgir Ámannsson fram fyrirspurn til utanríkisráðherra og spurði nokkurra spurninga. Hann spurði ma hvaða verkefni hefði fengið styrk. Svarið var fróðlegt. Hagstofan hafði fengið styrki til að senda starfsmenn á fundi í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi til að kynna sér fjárhagsuppgjör. Mannréttindastofnun HÍ fékk styrk til að halda ráðstefnu um mannréttindamál innan ESB. Samtök Garðyrkjubænda semdu menn í vinnuferð til Finnlands til að afla sér upplýsinga um garðyrkju í ESB. Iðnaðarráðuneytið óskaði eftir vinnufundi til að kynnd sér regluverk ESB varðandi olíubirgðir. FME óskaði eftir vinnufundum um gerð áhættulíkana og umupplýsingatækni sem myndasst nýtast á þessu sviði. Samninghópur um sjávarútvegsmál óksaði eftir vinnufundi um skipaskrár. Þessi upptalning er ekki tæmandi en öll eru verkefnin hluti af landsáætlun Íslands. Eins og greinilega kemur í ljós nýtast öll þessi verkefni í EES samstarfinu. Ummæli forsætisráðherra um ipa styrkina og verkefnin eru rangfærslur og settar fram í pólitískum tilgangi. Forsætisráðherra er núna eins og áður að slá póltískar keilur með því að höfða til andúðar gegn erlendum skammstöfunum. Þannig haga lýðskrumarar sér.
Bloggfærslur 12. ágúst 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar