14.8.2013 | 22:41
14.8. 1945. Lok síðari heimsstyrjaldar.
Uppgjöf Japana í síðari heimsstyrjöld. Á þessum degi var tilkynnt um skilyrðislausa uppgjöf Japana. Herráð Japans fór að ráðum keisarans Hirohito og gafst skilyrðislaust upp þann 10. 8. Þann 6.8. hafði kjarnorkusprengju verið varpað á Hirosima og þann 9.8 var sprengju varpað á Nagasaki. 150 þúsund dóu í þessum sprengingum. Enn ríkir spenna milli Kína og Japans vegna grimmdarverka Japana í Kína.
14.8.2013 | 20:32
Hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar.
Erindisbréf hópsins er undirritað í byrjun júli. þar er farið almennum orðum um markmið og tilgang hópsins. Fara á yfir stóra útgjaldaliði ríkissjóðs og athuga kerfisbreytingar sem leiði til meiri framleiðni og betri nýtingar fjármuna. Tekið er sérstaklega fram að ekki skuli vera flatur niðurskurður allra verkefna. Það er reyndar undarlegt þar sem ekkert hafði verið minnst á niðurskurð í því sem á undan kom. Sumar setningar hljóma afar undarlega eins og að fara eigi heildstætt yfir verkefni ríkisins og meta þörfina til framtíðar! Er hópnum kannski ætlað að setja fram kenningu í stjórnmálaheimspeki um hlutverk ríkisins? Hópurinn skal hafa víðtækt samráð við embættismenn og sérfræðinga. Auk þess hefur verið á vef forsætisráðherra verið sett upp svæði þar sem almenningur getur komið með hugmyndir. Nefndin skal síðan leggja fram tillögur sem verður hluti af fjárlagavinnu næsta árs. Verkefnið er risavaxið og þess vegna hefði mátt ætla að sérstaklega hefði verið vandað til mannvals í nefndina. Á vef Alþingis má lesa eftirfarandi: Ásmundur Einar er búfræðingur og með b-s- í almennum búvísindum. Hann er sauðfjárbóndi og hefur rekið verslun með ónefnd tól til landbúnaðarstarfa. Hvergi er minnst á stjórnsýslu og stjórnun þar. Vigdís Hauksdóttir er lögfræðingur. Hún hefur unnið sem garðyrkjumaður og blómaskreytir. Ekki er þar heldur að finna stjórnsýslu og stjórnun. Guðlaugur Þór er með b-a próf í stjórnmálafræði. Hann hefur verið framkvæmdastjóri og forstöðumaður. Auk þess var hann ráðherra. Guðlaugur Þór stendur því mun betur að vígi en þau tvö fyrstnefndu. Unnur Brá er lögfræðingur. Hún hefur verið fulltrúi sýslumanns og sveitarstjóri. Segja má að hún standi best að vígi þar sem hún hefur lengsta beina reynslu af opinberri stjórnsýslu. Eitt er menntun og reynsla en annað er pólitísk stefna. Nú hefur einn í hópnum komið með glannalegar og klaufalegar yfirlýsingar. Hinir þrír hafa lítið tjáð sig. Við skulum segja að framtíðin sé óráðin og allar tillögur ómótaðar.
14.8.2013 | 13:48
Traust á fréttastofu Ríkisútvarpsins.
Á árunum 2009 til 2012 gerði MMR kannanir á trausti almennings til sjónvarps-prent-og netfréttamiðla. Í þessum könnunum kom fram afgerandi sérstaða fréttastofu Ruv. Í könnun í desember 2012 kom í ljós að rúm 75% báru mikið traust til fréttastofu ruv en 8% lítið traust. Kannanir fyrri ára sýndu svipaðar niðurstöður. Ruv hafði yfirburði yfir alla aðra miðla. Mér vitanlega hefur sambærileg könnun ekki verið gerð á þessu ári en í ljósi umræðu dagsins væri það mjög æskilegt. Nánast frá stofnun hefur ruv starfað eftir skrifuðum fréttareglum. Markmiðið er að halda frið um stofnunina og búa til þjóðarútvarp í almenningsþágu. Áhersla hefur verið lögð á form og óhlutdrægni í framsetningu ásamt fagmennsku. Því miður hafa ekki miklar rannsóknir verið gerðar á Ríkisútvarpinu. það hindrar málefnalega og skynsamlega umræðu að nokkru leyti gefur lýðskrumurum og þeim sem eru á móti ríkisrekstri aukið svigrúm. Fréttaflutningur ruv er ekki hafinn yfir gagnrýni en hún verður að byggjast á áreiðanlegri vitneskju. Ég þekki rannsókn á fréttaflutningi ruv á írakstríðinu en hann var greinilega bjagaður og hliðhollur USA.
14.8.2013 | 12:50
Einkaneysla á miðju ári 2013.
Rannsóknarsetur verslunarinnar birti nýlega mælingar á smásöluvísitölu. þar kemur í ljós að velta hefur aukist um 4% á föstu verðlagi eða 7.6% á breytilegu verðlagi frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 3.4% á sama tíma. Magnaukning í heild er 4%. Sala á áfengi jókst um 7.7% föstu verðlagi og árstíðaleiðrétt um 4.3%. Skóverslun jókst um 12.7% á föstu verðlagi en velta húsgagna um 3.3%. Stóru tölurnar eru í farsímum og tölvum. Sala farsíma jókst um 44% og tölvusala um 16%. Snjallsímar eru nú að koma á markaðinn. Athygli vekur að sala á stórum raftækjum(hvíttækjum)hefur aukist mikið. Erlendir ferðamenn greiddu 15 milljarða með greiðslukortum í júlí. Þesar greiðslur er 23% af kortaveltu heimila. (Upplýsingar frá SVÞ)
14.8.2013 | 10:43
Evruvæðið á uppleið.
Hagvöxtur á svæðinu er nú 0.3% og nú eru það fjölmennu ríkin, Þýskaland og Frakkland sem gefa tóninn. Frakkland virðist vera að komast út úr erfiðu samdráttarskeiði. Árstíðarleiðrétt var hagvöxtur í Þýskalandi á öðrum ársfjórðungi um 0.7%. Neysla heimila, hins opinbera og byggingarframkvmdir bera hagvöxtinn áfram. Þessar fréttir koma sér afar vel fyrir Hollande forsrta Frakklands. Atvinnuleysi er 11% í Frakklandi. Útflutningur vex og neysla tekur við sér í aukinni sölu nýrra bíla. Franskir ráðamenn eru hóflega bjartsýnir á framhaldið. Þrátt fyrir þessar fréttir hafa orðið litlar breytingar á hlutabréfamörkuðum. Í Hollandi heldur samdráttur áfram en þar beita stjórnvöld hörðum aðhaldsaðgerðum og niðurskurði.
14.8.2013 | 09:51
Staða vinnumarkaðar á miðju ári 2013.
Í nýjum Hagtíðindum Hagstofunnar er fjallað um laun, tekjur og vinnumarkað. 188300 eru á vinnumarkaði en þar af 12900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnulausir eru 6.8% og starfandi hefur fjölgað um 3300 á einu ári. Á höfuðborgarsvæðinu er atvinnuleysi 8% en 4.8% utan þess. 2000 hafa verið atvinnulausir lengur en eitt ár. Það er ánægjuleg þróun að langtímaatvinnulausum fækkar. meðalvinnustundafjöldi hjá fólki í fullu starfi var 43.5 klukkustundir í viku en 23.4 hjá fólki í hlutastarfi. Atvinnuþátttaka karla er heldur meiri en kvenna. 92% starfandi fólks voru að jafnaði við vinnu eða155400. Helstu ástæður fjarvista voru fæðingarorlof, veikindi og breytingar á vinnuskipulagi. 78% starfandi voru í fullu starfi en 28% í hlutastarfi. Atvinnuleysi er mest hjá ungu fólki, þe á aldrinum 16-24 eða 16.2%.( Hagtíðindi , Hagstofu Íslands.)
Bloggfærslur 14. ágúst 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar