Framhaldsskólinn og velferð kennara.

Framhaldsskólinn hefur verið til umræðu undanfarið. Einkum er það vegna brottfalls úr skólunum sem margir telja mjög mikið miðað við nálæg lönd. Tölfræðin í þessu máli er vandmeðfarin. Nú er rætt um að stytta nám í framhaldsskólum í þrjú ár. Talsmenn þessa sjá meiri árangur og skilvirkni í starfi með styttra námi. Undarlega lítil umræða hefur verið um kennarana sem bera þó uppi starf skólanna. Nú vill svo til að framhaldsskólinn hefur lítið verið rannsakaður mun minna en grunnskólinn. Nokkrar rannsóknir hafa þó verið gerðar og ein var um starfsánægju kennara. Í ljós kom að mikill meirihluti kennara taldi líkamlega, andlega og félagslega heilsu sína vera góða. Miklum meirihluta líkaði einnig vel við stjórnunarstíl skólastjórnenda. Langflestir töldu starfsandann góðan. 10% sögðust hafa verið áreittir á vinnustað. Um fjórðungur var ánægður með laun. Erfiðleikar í starfi voru einkum andlegir en ekki líkamlegir eða félagslegir. Mikill meirihluti vann vinnutengd  verkefni heima. Tæpur helmingur fann fyrir álagi í kennslustundum. Niðurstaðan er sú að starfsánægja kennara er ein af forsendum árangursríks skólastarfs. (Netla 2010)

Bloggfærslur 15. ágúst 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband