Klúður ríkisstjórnarinnar í Evrópumálum.

Stjórnarflokkarnir hegða sér undarlega í Evrópumálum. Á landsfundum flokkanna var því lýst yfir og samþykkt í ályktunum að hagsmunum Íslands væri best borgið utan ESB en í nánu samstarfi við þjóðir Evrópu og innan EES-samnings. Utanríkisráðherra tilkynnti í Brussel að Ísland myndi gera hlé að viðræðum og gera úttekt á stöðu mála og taka ákvörðun í framhaldi á því. Þar sem aðildarviðræður eru ekki í gangi fær Ísland ekki svonefnda IPA styrki. Þessi staðreynd varð forsætisráðherra tilefni til mjög undarlegra ummæla um eðli styrkjana. Nú hefur utanríkisráðherra lýst því yfir að hann sæi ekki fyrir sér að þjóðaratkvæða verði haldin um ESB viðræður. Forsætisráðherra virðist telja að aðstæður verði að vera heppilegar fyrir slíka atkvæðagreiðslu. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um málið og það órætt milli flokkana. Í ályktun landsfundar Framsóknar um málið segir að ekki verði lengra gengið í aðildarviðræðum nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Það var og! Sem sagt: eftir hlé á viðræðum kemur atkvæðagreiðsla. Skýrara getur það ekki verið. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins ályktaði að aðildarviðræðum yrði hætt og ekki teknar upp aftur nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er alveg ljóst! Það er ekki talað um að slíta viðræðum. Það er ekki talað um að flokkurinn vilji að Alþingi dragi umsókn til baka. Framsókn ályktar hvergi um að Alþingi dragi umsókn til baka og slíti viðræðum. Af hverju er svona erfitt að móta skýra stefnu? Eru flokkarnir innbyrðis ósammála. Er ósætti innan flokkana? Er utanríkisráðherra að takast á við verkefni sem hann ræður ekki við?

Færeyingar stefna ESB.

ESB hefur tekið ákvörðun um að beita Færeyinga refsiaðgerðum vegna aukningar þeirra á síldarkvóta. Danir voru á móti ákvörðuninni en lentu í minnihluta. Refsiaðgerðir í slíkum deilum eru mjög tvíbent vopn og eru á skjön við fjölmörg alþjóðalög og sáttmála. Rök ESB og t.d. Norðmanna er að ef allir tækju Færeyinga sér til fyrirmyndar yrði síldarstofninum eytt á skömmum tíma. Nefnd á vegum Hafréttatsáttmála SÞ mun nú taka stefnu Færeyinga fyrir. Danir munu nú mæta framkvæmdarstjórn ESB fyrir gerðardómnum. Færeyingar hafa hingað til veitt 5% af sameiginlegum síldarstofni en hafa nú ákveðið að veiða 17%. Augljóst er að það kemur sér illa fyrir skoskar útgerðir. Hingað til hefur ESB veitt 7% og ísland 15%. Norðmenn hafa veitt 61% og Rússar 13%. Breytt hitastig og fæðuframboð hefur breytt gengd margra fiskitegunda. Fiskifræðin er ekki nákvæm vísindi þegar kemur að því að ákveð stofnstærð og veiðistofn. Meginreglan er sú að um flökkustofna og deilistofna hafa þjóðir gert samninga. Eðli málsins er það ekki einfalt vegna óvissu um stærð stofna og hagsmunatogstreitu. Íslenska ríkisstjórnin hefur mótmælt hótunum ESB og talið þær í andstöðu við alþjóða samninga og EES samninginn. Í þessari deilu virðast Færeyingar og Íslendingar standa einir. Samtök sjómanna í Danmörku og Noregi styðja refsiaðgerðir ESB. Í hagsmunaátökum eru engir vinir og frændþjóðir eingöngu bandamenn og andstæðingar.

Kosningar í Noregi. Eru úrslitin ráðin?

Kosningar eru í Noregi þann 9da september. Á kjörskrá eru 3.6 milljónir. 13 listar bjóða fram í öllum fylkjum en átta listar í færri. Á Stórþingið eru kosnir 169 þingmenn.Stjórn þriggja flokka undir forystu Jens Stoltenberg hefur verið við völd frá 2005. Í kosningunum 2009 hélt hún velli þrátt fyrir að fá færri atkvæði en stjórnararandstaðan. Í rúmt ár hafa skoðanakannanir verið mjög stöðugar og sýnt miklar breytingar. Stjórnarflokkarnir eru allir að tapa fylgi og einn borgaralegur lokkur Höyre vinnur mjög mikið á. Aðrir hægri flokkar tapa hins vegar. Samkvæmt könnunum mun Ap fá 28%, Sp 4.6%, og Sv 3.9%.  Samtals munu stjórnarflokkarnir fá 36.5%. Höyre er ekki langt frá því að tvöfalda fylgi sitt og er nú spáð 31.6% og verður þar með stærsti flokkurinn.Frp dalar í fylgi er er spáð 13.6% Krf er einnig spáð minna fylgi eða 5.2%. V er spáð 5.2%. Borgaralegu flokkarnir fá því samkvæmt spám 58.2%. Óvíst er um samstarf þessara flokka verði þetta útslitin. Framboðslistar eru 21 og þar kennir margra og ólíkra grasa. Nefna má Folkelisten mot oljeboring i Lofoten, Vesteralen og Senja. Listinn býður fram í Norland fylki og gerir það í fyrsta skipti. Nokkrir framboðslistar berjast fyrir einu máli. Nefna má Sjúkrahús í Alta sem býður fram í Finnmerkurfylki.

Bloggfærslur 17. ágúst 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband