20.8.2013 | 18:35
Héraðsfréttablöð.
Héraðsfréttablöð gegna hvert um sig mikilvægu hlutverki fyrir nærsamfélagið. Fréttaflutningur miðast við að tiltölulega afmarkaðan hóp og staðbundinn að öðru jöfnu. Blöðin byggja afkomu sína á áskriftum og auglýsingum. Flestir landsmenn kannast sennilega við , Feyki, Austurgluggann, Bæjarins besta, Dagskrána, Fjarðarpóstinn, Fréttir, Jökul, Íbúiann, Skarp, Skessuhorn, Sunnlenska Fréttablaðið, Þeyr, Víkurfréttir , Vikudag, og Akureyri Vikublað. Nokkur þessara blaða halda úti vefmiðli. Vefurinn bb.is er t.d. mjög öflugur og er mikil áhersla lögð á hann. Sama má segja um Akureyri Vikublað. Flest blöðin glíma við nálægðarvandann. Það er erfitt að skrifa um viðkvæm mál ef viðkomandi búsettur í næstu götu. Vald auglýsenda getur orðið mikið , td. ef um stærstu fyrirtæki byggðarlagsins er að ræða. Íþróttir og menningarlíf eru fyrirferðarmikil í slíkum blöðum. Héraðsfréttablöð skipta miklu máli fyrir sjálfsmynd staðfélaganna. Þess vegna má búast við að þau eigi langt líf fyrir höndum.
20.8.2013 | 13:16
Frosti hættir í eftirlitinu. Tekur Hallur við?
Frosti Sigurjónsson stofnaði fésbókarsíðu fyrir fáum árum. Yfirskrift hennar var :" Eftirlit með hlutleysi Ruv. " Yfirskiftin var eitt af því fjölmarga sem var misheppnað á síðunni. Samkvæmt lögum og reglur á Ríkisútvarpið að vera óhlutdrægt og faglegt í fréttaflutningi. Hvergi minnst á hlutleysi. Í fréttareglum Ríkisútvarpsins er hvergi minnst á hlutleysi af góðum og gildum ástæðum. Í alþjóðastjórnmálum eru hlutlausu ríkin þekkt hugtak en þau tóku hvorki afstöðu með USA né Sovéríkjunum. Frosti skrifaði talsvert á síðuna í byrjun og einnig Vigdís Hauksdóttir að ógleymdum Halli Hallssyni. (Síðan tóku við alræmd nettröll)Á síðunni var fjallað um hlutleysi í mjög afmörkuðum skilningi. Fyrst var því lýst hvernig fréttastofa Ríkisútvarpsins fjallaði um ESB og andstæðinga þess. Það var síðan borið saman við það hvernig fréttastofan hefði átt að fjalla um málið að mati ritarans( sem að öðru jöfnu var mjög harður andstæðingur ESB). Ekki þarf mikla yfirlegu til að sjá að þessi aðferð er algjör della og vita gagnlaus. Hér er á engan hátt gerð áreiðanleg úttekt á störfum frétta stofunnar. Helst minnti siðan á einhvers konar hópefli þar sem hver þátttakandi átti að finna dæmi sem styrkti hópinn í sannfæringu sinni. Aldrei var vitnað í vísindalegar rannsóknir í fjölmiðlafræðum. Aldrei var reynt að leita skýringa á því mikla trausti sem fréttastofa Ríkisútvarpsins nýtur. Aldrei var Ríkisútvarpið borið saman við samsvarandi norrænar fréttastofur. Aldrei var vitnað í það sem fræðimenn hafa skrifað um Ríkisútvarpið. En nú er Frosti hættur og hver hefur betri skilning á váfuglinum mikla en Hallur Hallsson? Hinn eini sanni.
Vestnorræna ráði sem er samstarfsvettvangur þingmanna frá Íslandi , Færeyjum og Grænlandi hafa mótmælt hótunum og boðuðum refsiaðgerðum ESB. Ráðið hvetur Noreg til að styðja Færeyjar og Ísland sem reyndar verður að teljast mjög fróm ósk. Ráðið hvetur ríkisstjórn Grænlands til að opna hafnir fyrir færeyskum skipum. Um eitt er þessi deila afar sérkennileg. Það ríkis mikil óvinna um hvað verið er að deila. Mikil óvissa er um stærð makrílsstofnins. Sakvæmt rannsókn sem unnin var fyrir ráðherra sjávarútvegsráðherra Íslands 2012 er 23% lífmassans á íslensku svæði. Á fæðufölunartímabilinu dvelur makrílinn hér. Stærstur hluti lífmassans er í Noregshafi. Hafró í Bergen telur að stofninn sé stórlega vanmetinn. Ef það er rétt er hótanir og refsiaðgerðir ESB og Noregs byggðar á röngum líffræðilegum forsendum og afar hæpnum lagalegum grunni. Skotar og Írar eru mjög herskáir í þessu máli. Írski ráðherran segir að íslendingar og Færeyingar hafa haft uppi fáránlegar kröfur og aldrei sýnt runverulegan samningsvilja. Árið 2011 var heildarlífmassi metinn 2.7 milljónir tonna. Rannsóknarstofnunin í Bergen telur lífmassan allt að 10 milljón tonna. Í þessu ljósi er skynsamlegt fyrir alla að fara sér hægt með hótanir, refsiaðgerðir og gífuryrði. Slíkt getur hæglega reynst vera bjúgverpill.
Bloggfærslur 20. ágúst 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar