21.8.2013 | 13:40
Verðbólga og atvinna að mati Seðlabankans.
Verðbólga var 3.3% á öðrum ársfjórðungi 2013. Kostnaður vegna almennrar þjónustu og húsnæðis fór vaxandi. Hækkun á markaðsverði húsnæðis er þó eingöngu bundin við höfuðborgarsvæðið. Ársverðbólga mældist 3. 8% í júlí. Verðbólguálagið sem er vaxtamunur verðtryggðra og óverðtryggðra skuldabréfa er einnig 3.8%. Verðbólguvæntingar fara örlítið vaxandi. Heimilin vænta 5% verðbólgu næstu 2 árin er fyrirtækin 4% verðbólgu. Talsverð óvissa er i spám. það eru helmingslíkur á að verðbólgan verði á bilinu 2.5 til 4% eftir eitt ár. Heildarvinnustundafjöldi fer vaxandi. Heildarvinnustundum fjölgar mest hjá þeim sem eru í fullu starfi. Atvinnuþáttaka fer hækkandi. Vinnuaflseftirspurn hjá fyrirtækjum landsins virðist almennt fara vaxandi. Mest breyting hefur orðið hjá fyrirtækjum í byggingarstarfsemi. Fjórða ársfjórðunginn í röð flytja fleiri til landsins en frá landinu. Á síðasta ársfjórðungi voru íslenskir ríkisborgarar helmingur aukningar. Að teknu tilliti til árstíðar er atvinnuleysi 5.5% samkvæmt markaðskönnun Hagstofunnar. Á árunum 2009-2010 hafði flutningur úr landi talsverð áhrif á atvinnuleysið. Launavísitala Hagstofunnar hækkaði um 16% frá byrjun árs 2011 til fyrsta ársfjórðungs 2013. (Peningamál , 2013 , 3 )
21.8.2013 | 12:25
Mat Seðlabankans á þróun og horfum í efnahagsmálum.
Ný Peningamál eru komin út. Þar má lesa yfirlýsingu Peningamálanefndar um óbreytta stýrivexti. Mat bankans er forvitnilegt og stutt margvíslegum tölfræðilegum gögnum. Hagvaxtarhorfur næstu 2 ár eru nú 3% ( miklu skiptir að ekki verður af stækkun álverksmiðjunnar í Straumsvík)og líklega mun verðbólga aukast seinni hluta þessa árs. Ástandið á vinnumarkaði heldur áfram að batna, starfandi fjölgar og vinnutími lengist. Talið er að viðskiptakjör þjóðarbúsins muni rýrna um 3% á þessu ári. Þetta merkir að kaupmáttur þjóðarbúsins er að minnka. Á einu ári hefur raungengið lækkað um 5% en er mjög lágt í sögulegu samhengi.Útflutningur á vöru og þjónustu mun aukast um 4.4% á þessu ári(ferðaþjónusta !). Taumhald peningastefnunnar er að veikjast. Virkir raunvextir bankans eru nú um 1.5%. Skuldatryggingarálag á fimma ára skuldbindingar ríkissjóða hafa lækkað lítillega og álit erlendra matsfyrirtækja ekki haft áhrif enn sem komið er. Fyrstu sex mánuði ársins hækkaði verð fasteigna um 6% miðað við fyrra ár. Samdráttur atvinnuvegafjárfestinga er 27% milli ára. Fyrir utan stóriðju, skip og flugvélar jukust fjárfestingar hins vegar. Búast má við að fjárfestingar dragist saman um 9.5% á þessu ári.(Peningamál 2013 3 )
21.8.2013 | 09:52
Brynjar, Ríkisútvarpið og bjórinn.
Brynjar Nielsen skrifar örgrein í Pressuna um að leggja niður ruv.is, breyta ruv.is, bjórbannið og drykkjumenninguna. Bjórbanni var aflétt 1989. Á Alþingi fóru fram miklar umræður á þingi um bjórmálið og voru umræður heitar og langar. Deilur um bjór höfðu staðið áratugum saman. Langflestir þeirra sem tóku þátt um umræðum eru hættir þátttöku í stjórnmálum. Þó er rétt að geta þess að Steingrímur J situr enn á þingi. Rök þeirra sem vildu halda í bannið voru þau m.a. að heildarneysla á áfengi myndi aukast. Í hópi þeirra sem fylgdu banninu voru margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Spádómur þeirra reyndist réttur. Þeir sem vildu aflétta banni töldu að með tilkomu bjórsins myndu drykkjumenning batna, þ.e. drykkja sterkra drykkja myndi minnka. það hefur einnig komið í ljós. Það verður að vera annarra að meta hvort drykkjumenningin í heild hefur batnað. Það er fróðlegt að skoða tölur. Í mars 1989 drekkur hver Íslendingur 4.13 lítra af vínanda (alkóhóllítrar). Af þessu voru 2.14 lítrar sterkt vín. 1.42 lítra af bjór og 0.57 lítra af léttvíni. 2007(!) eru tölurnar þessar. Heildarneysla er 5.95 lítrar. Neysla á bjór er 3.12 lítrar, neysla á léttum vínum 1.61 lítri á mann og neysla á sterkum vínum 1.15. ( Allt eru þetta opinberar tölur frá Hagstofu Íslands.)
Bloggfærslur 21. ágúst 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar