24.8.2013 | 20:11
Manndráp á Íslandi.
Í alþjóðlegum samanburði eru morð ekki algeng hér á landi. Hér hefur til skamms tíma ekki verið skipulögð glæpastarfsemi sem beitir ofbeldi. Morð eiga sér því stað í öðru samhengi. Með nokkurri einföldun má segja að hinn dæmigerði gerandi sé ungur einhleypur karl með sakaferil að baki. Ef um náin tengsl var að ræða brutu karlar gegn fyrrverandi eða núverandi maka. Á Íslandi eru náin tengsl gerenda og þolenda algeng. Í greiningu á manndrápsmálum 1921 til 1990 kom í ljós að einungis í 33% þekktust gerandi og þolandi lítið eða ekkert. Meðalaldur gerenda á sama tímabili var 28. 6 ár. Mikill meirihluti brotamanna eru ógiftir eða ekki í sambúð. 8% gerenda voru ósakhæfir vegna geðrænna sjúkdóma en mun fleiri áttu við geðræna sjúkdóma að stríða. Ef þannig er þá eru menn líklegri til að drepa ókunnuga. Algengasti brotastaður er heimili brotaþola og sameiginlegt heimili brotaþola og geranda. 73% brota áttu sér stað í Reykjavík og nágrenni. Morð eru af ýmsum toga og hvert morð hefur sín sérkenni. Morð getur verið hluti af fjölskylduharmleik. Það getur líka verið hluti af ágreiningi eða uppgjöri. Áfengi og fíkniefni skiptir oft máli. Morð geta verið þrautskipulögð eða framin í æðiskasti. Margt bendir til þess að morðtíðni muni hækka hér á landi á næstu árum.
24.8.2013 | 10:51
Hrunið og efnahagsafbrot.
Eftir einkavæðingu bankanna 2002 færðist smá saman mikið vald frá ríkisvaldinu til fjármálastofnana. Lög um fjármálaviðskipti voru einfölduð og bankarnir fengu aukið svigrúm til lántöku, lánveitinga og fjárfestinga. Sköpunarverki tók meir og meir völd frá skapara sínum og það leiddi til margvíslegra átaka. Árin á undan hruninu höfðu skapað siðrofsástand. Fjármálalöggjöfin var óljós og götótt, eftirlit lítið og ekki samræmt milli stofnana og valdakerfi, stjórnunarhættir og launakerfi fjármálastofnana ýtti undir spillingu, óeðlilega fyrirgreiðslu og valdbeitingu. Í fyrirtækjamenningu bankanna voru lög hindrum sem reynt var að yfirstíga með skapandi krafti. Mælikvarðinn á það hvað er löglegt og ólöglegt, rétt og rangt verður fljótandi og ógreinilegur. Dæmi um þetta er olíumarkaðurinn eins og hann var á sínum tíma þar sem stjórnendur gerðu ekki greinarmun á samkeppni og samsteypu(kartell). Embætti Sérstaks Saksóknara var stofnað 1.2. 2009. Of snemmt er að leggja mat hver árangur hefur verið. Hins vegar er nauðsynlegt að draga lærdóma af Hruninu.. Það er ljóst að hvorki íslenskum bankamönnum né stjórnmálamönnum verður kennt um alþjóðlega fjármálakreppu. Það sem kom á undan hruninu var að löggjöf var einfölduð(deregulation) og bönkum gefið mikið svigrúm. Á sama tíma er eftirlit lítið og illa samræmt. Á sama tíma þróast mjög sérstök menning innan fjármálageirans. Það liggur fyrir að taka verður á öllum þesum atriðum. Við þurfum ekki að finna upp hjólið. Aðrar þjóðir hafa gengið í gegnum bankakreppur og lært af því.
24.8.2013 | 09:11
Efnahagsbrot á Íslandi.
Þegar minnst er á efnahagsbrot dettur líklega flestum í hug brot á skattalögum og svökölluð svört vinna. Þetta eru mikilvægar tegundir og oft fréttaefni. Efnahagsafbrot fela í sér misnotkun á valdastöðu til að afla ólögmæts ávinnings. Það er ljóst að slík afbrot valda fjárhagslegu tjóni. Þau valda ekki síður miklu siðferðilegu tjóni. Á árunum fyrir Hrun á sér aukning efnahagsafbrota hér á landi. Mikill vöxtur var í hagkerfinu, regluverkið óljóst og spilling í fyrirtækjamenningu fjármálafyrirtækja. Í þessum brotaflokki eins og sumum öðrum er langur vegur frá verknaði til rannsóknar og ákæru. Ísland gerist aðili að EES-samningi 1994. Samkeppniseftirlitið er stofnað 1993 og FME flutt frá Seðlabanka 1999. Með einkavæðingu bankanna stækkarr fjármálamarkaðurinn mjög hratt og yfirvöld hafa ekki lendur stjórn á því sem þar gerist. Fjármálamarkaður er í eðli sínu alþjóðlegur en það eru eftirlitsstofnanir ekki. Við slíkar aðstæður verða lög hindrum fyrir fjárfesta sem reynt er að komast í kringum. Græðgi og frami eru ofar lögum. Málum í meðferð hjá Samkeppniseftirliti fjölgaði mikið eftir 2005. FME er stofnað 1999 og eru tekjur þess frá fjármálastofnunum sem það hefur eftirlit með. Auknig á tekjum FME hefur þó ekki verið í neinu samræmi við vöxt fjármálastofnana. Fyrstu árin átti FME í harðri samkeppni við bankana um starfsfólk en þeir buðu yfirleitt mun betri laun. Embætti Skattrannsóknarstjóra verður til 1993. Skattsvik, bókhaldsbrot og fjársvik hafa verið algengustu tegundir brota hér á landi. Það eru karlmenn fremur en konur sem fremja efnahagsbrot og þeir eru helst á aldrinum 40 ára til 50 ára en í mörgum öðrum brotategundum eru menn mun yngri. Árið 2011 var áætlað að töpuð gjöld vegna svartrar vinnu væru yfir 10 milljarðar á ársgrundvelli.
Bloggfærslur 24. ágúst 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar