Tilkynningarskylda og barnavernd.

Samkvæmt barnaverndarlögum ber öllum landsmönnum lagaleg skylda að tilkynna til barnaverndarnefnda ef þeim þykir ástæða til. Þá er átt við hverskonar ofbeldi eða vanrækslu. Slíkum tilkynningum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Almenningur hefur tilkynningarskyldu. Allir verða að gefa upp nafn þegar tilkynnt er en hægt er að óska nafnleyndar þannig að eingöngu starfsmenn barnaverndar viti nafn. Hægt er að tilkynna til neyðarlínu 112 sem kemur boðum áfram. Árið 2010 höfðu 16 barnaverndarnefndir bakvakt allan sólarhringinn. Árið 2000 voru tilkynningar 2728 en 2011 voru þær 8661. Fyrstu 3 mánuði þessa árs var fjöldi tilkynninga 2121 en fjöldi barna var 1764. Umönnunaraðilar barna og lögregla hafa einnig tilkynningarskyldu. Ljóst er að ekki eru öll tilvik tilkynnt. Margt kemur til. Nefna má sem dæmi vanþekkingu á einkennum vanrækslu. Vanræksla er ekki eingöngu líkamleg heldur tilfinningaleg. Börn geta einnig verið vanrækt hvað varðar aðstoð við nám og umsjón og eftirlit. Um 70% allra tilkynninga eru af höfuðborgarsvæðinu. 

Á SUS að biðjast afsökunar?

Ungir sjálfstæðismenn hafa skorað á Eygló Harðardóttur og Sigurð Inga Jóhannsson að biðjast afsökunar á því að hafa tekið þátt í því að samþykkja ákærur á hendur Geir H Harde. Nú yfirsést ungu mönnunum að Eygló og Sigurður Ingi voru einnig meðflutningsmenn frumvarpsins um að Alþingi ákærði Geir. Gott og vel. Þetta er ekki ný hugmynd. Eldri og virðulegri sjálfstæðismenn hafa sett fram slíkar hugmyndir á netmiðlum og samfélagsmiðlum. Í þeim hópi eru nokkrir fyrrverandi þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Hver skyldi nú vera hugsunin? Eiga framsóknarmenn að sanna eftir á að þeir séu verðugur samstarfsaðili? Hvað þá um dómara í Landsdómi? Eiga þeir líka að biðjast afsökunar? Þetta leiðir hugann að skýrslu Rannsoknarnefndar Alþingis. Nefndarmenn ræddu við fjölmarga menn sem sátu í valdastöðum í bankakerfi , í  opinberri stjórnsýslu og einnig  var rætt við stjórnmálamenn. Enginn þeirra taldi ástæðu til að biðjast afsökunar á því sem hann hafði gert eða ekki gert í aðdraganda Hrunsins. 

Breiðu bökin borga auðlegðarskatt.

Þessi skattur hefur verið umdeildur. Sumir telja hann óréttlátan og hugsanlega í andstöðu við stjórnarskrána. Hann sé hugsanlega eignaupptaka. Aðrir telja hann réttlátan og löglegan. Eðlilegt sé að efnamiklir einstaklingar leggi sitt af mörkum í efnahagslegum þrengingum. Dómstólar verða að skera úr um þetta og eitt mál mun nú þegar hafa verið dómtekið. Skattstofninn er hrein eign einstaklinga eða hjóna. Ef einstaklingur á 75 milljónir eða meira borgar hann slíkan satt og ef um hjón er að ræða er talan 100 milljónir. Skattprósentan er ýmist 1.5% eða 2%. Ef eign er meiri en 150 milljónir hjá einstakling og 200 milljónir hjá hjónum er próseentan 2%. Nú eru aðstæður eignafólks auðvitað mismunandi. Það er á mismunandi aldri og sumir hættir virkri atvinnuþátttöku. Tekjur þeirra eru mismunandi og eignir tilkomnar með mismunandi hætti. Margir erfa eignir frá auðugum foreldrum en aðrir hafa komist í álnir af eigin rammleik t.d. í viðskiptum. Hópur stóreignafólks á Íslandi er ekki stór og hann er hægt að kortleggja nákvæmlega. Auðvitað kemur í ljós að margir stóreignamenn eru skyldir og tengdir. Sumir eru mjög áberandi í þjóðlífinu eins og eigendur stórfyrirtækja og stjórnmálamenn. Undanfarin ár hefur Sjálfstæðisflokkurinn beitt sér untan þings og innan gegn auðlegðarskatti. Skatturinn er talinn ólögleg eignaupptaka. Það eru stór orð og afar ólíklegt að þeir þingmenn sem þau sögðu geti staðið við þau. Löggjafinn hefur víðtækt vald til skattlagningar ef farið er eftir ákveðnum grundvallar reglum. Skattlagnig má ekki vera óbærilega há eða fela í sér brot á jafnræðisreglu.

Bloggfærslur 26. ágúst 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband