27.8.2013 | 13:46
Væntingar neytenda lækka enn.
Væntingarvísitala Gallup mælist nú 66.3 stig en var 100 stig í maí og júní. Þá voru svartsýnir og bjartsýnir álíka margir en nú hafa svartsýnir greinilega vinninginn. Ekki virðist bjart yfir ástandi og horfum í íslensku efnahagslífi. Flestir telja að ástandið í atvinnumálum og efnahagsmálum eigi eftir að versna. Þeir sem hafa lágar tekjur eru sýnu svartsýnni en þeir sem háar tekjur hafa. Hugsanleg skýring er sú að mörgum finnst vera óvissa um skuldaniðurfærslu, bæði hvað varðar hversu mikil hún verður og hvenær. Horfur á vinnumarkaði ættu hins vegar að gefa ástæðu til bjartsýni. Atvinnuleysi minnkar, heildarvinnustundafjöldi vex og störfum fjölgar. Það virðist hins vegar hafa hægt á vexti einkaneyslu á síðustu mánuðum.
27.8.2013 | 13:19
Ráðagerð Assads.
Assad virðist nota efnavopn í litlum skömmtum og smáum stíl. Þannig er hægt að dyljast. Fyrir 25 árum lét Hussein drepa 5000 Kúrda með eiturefnum. Hvenær ætlar Assad að gerast svo stórtækur? Þegar fjölmiðlar heimsins hafa horft framhjá drápum í smáum stíl nógu lengi. Eiturefni gera ekki greinarmun á hermönnum og almenningi, engar varnir eru mögulegar og enginn flótti er mögulegur. Átökin í Sýrlandi hafa magnast stig af stigi. Arabíska vorið er 2011 og því fylgja margvísleg mótmæli. Um vorið 2012 hefst borgarastyrjöld. Sumarið 2012 eru framdir stríðsglæpir þar sem eru fjöldamorðin í Hula. 2012/2013 gífurlegur fjöldi flóttamanna flýr átakasvæðin. Assad virðist sannfærður um það að ekkert verði gert þrátt fyrir yfirgnæfandi líkur á því að stjórnarherinn hafi beitt efnavopnum. 100 þúsund manns hafa látið lífið í stríðinu. 2 milljónir hafa flúið land. Milljónir hafa flúið átakasvæðin innanlands. OPCW er fjölþjóðleg stofnun í tengslum við SÞ sem beitir sér fyrir banna á notkun efnavopna. Aðildarríki eru 189 og er Ísland þar á meðal.
27.8.2013 | 09:52
Loftárás á sýrlenska stjórnarherinn en hvað svo?
Það er hafið yfir allan efa að efnavopnum var beitt í héraðinu Ghuta sem er nálægt Damaskus þann 21. 8. 2013. Uppreisnarmenn og stjórnarhermenn vísa sök hver á annan. Öryggisráð SÞ krafðist rannsóknar og USA undirbúa loftárásir á stjórnarherinn. Stjórnvöld í Íran hafa lýst því yfir að komi til hernaðaraðgerða USA (og annarra)geti þau ekki horft aðgerðarlaus á. Átökin væru þar með ekki bundin við Sýrland. Stjórnvöld í Sýrlandi hafa eindregið varað við aðgerður og sagt afleiðingar skelfilegar. Sýrland, Íran og Hisbollah mynd náið varnarsamstarf. Þetta gæti leitt af sér frekari útbreiðslu átaka á svæðinu ef ísraelíski herinn myndi reyna að eyðileggja kjarnorkustöðvar Írans með loftárásum.Í Suður-Líbanon ráða Hisbollah yfir meðlangdrægum eldflaugum sem hægt væri að beita gegn Ísrael. Loks er ljóst að verði gerðar loftárásir á stjórnarher Sýrlands vex hætta að hryðjuverkum í USA og Evrópu. Heimsbyggðin getur ekki horft aðgerðarlaus á að efnavopnum sé beitt gegn saklausu fólki. En hver eru réttu viðbrögðin? Hvaða ráð duga til að stöðva hrylling stríðsins?
Bloggfærslur 27. ágúst 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar