Nether Sýrlands(Syrian Electronic Army).

Það var SEA sem réðast á heimasíðu New York Times og gerði hana óstarfhæfa í marga klukkutíma. Á Twitter réðst SEA á reikning AP og setti falskar fréttir þar inn. 2011 kemur SEA fram á netinu með nokkrum heimasíðum. Að eigin sögn er um að ræða unga ákafa stuðningsmenn Assads sem vilja berjast gegn vestrænum fjölmiðlum vegna rangs fréttaflutnings um ástandið í Sýrlandi. Á þessu ári hefur hópurinn m.a. ráðist á BBC, Reuters, 60 minutes, Washington Post og Harvard háskólann. Allt bendir til þess að hópurin starfi í samvinnu við ríkisstofnanir. Uppreisnarmenn í Sýrlandi notfæra sér einnig netið, m.a. samskiptamiðilinn Facebook. SEA njósnar og reynir að afla sér upplýsinga um menn og starfsemi. Hernaður í netheimum er löngu orðin staðreynd.

Utanríkisráðherrann og þingviljinn.

Utanríkisráðherra gerði sér ferð til Brussel til að tilkynna stækkunarstjóra ESB að Ísland gerði hlé á aðildarviðræðum. Ráðherrann sagði ennfremur og sérfræðingar yrðu fengnir til að gera skýrslu um gang viðræðna hingað til og meta stöðu þeirra. Enn fremur átti skýrslan að innihald mat á stöðu ESB og þróun sambandsins. Alþingi átti síðan að ræða skýrsluna og taka frekari ákvarðanir í málinu. Líður nú nokkur tími og fer fram umræða um ferð ráðherrans og skýringar hans á málinu öllu. Næst ber það við að ráðherran tilkynnir fjölmiðlum og þjóðinni að hann hafi látið vinna lögfræðiálit innan ráðuneytisins. Álitið er birt á vef ráðuneytis og af því má ráða að þingsályktanir séu ekki bindandi í sama skilningi og lög. Þær sem ekki styðjist við lög séu á engan hátt bindandi nema sem leiði af þingræðisvenju. Ráðherranum er ljóst að báðir ríkisstjórnarflokkarnir eru andvígir aðild að ESB og að þessu samanlögðu íhugar hann nú að leggja niður samninganefnd og hópa. Í allra augum myndi slíkt þýða slit viðræðna en ekki hlé á viðræðum. Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins ítrekar þá skoðun sína að þjóðin eigi að koma að ákvörðunum í þessu máli. Loks gerist það að Forseti Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur að Alþingi eigi með formlegum hætti að samþykkja breytta stefnu varðandi aðildarviðræður. Það virðist vera skilningur hans og annarra nefndarmanna í forsætisnefnd Alþingis. Næsti þáttur í þessu leikriti mun gerast innan veggja þingsins. Nú ræðst hvort og hvernig þjóðin mun koma að málinu. Á máli skákmanna mætti segja að byrjunarleikir ráðherrans hafi verið undarlega slakir en kannski rætist úr í miðtaflinu.

Grikkland og kosningar í Þýskalandi.

Styrmir Gunnarsson virðist trúa því að skuldavandi Grikkja sé aðalkosningamálið í Þýskalandi ef marka skrif hans í Evrópuvaktina í dag. Þetta er misskilningur. Skuldavandi nokkurra ríkja á evrusvæðinu hefur verið mikilvægt viðfangsefni stjórnmála í Þýskalandi um nokkurt skeið. Styrmir virðist álíta það stórfrétt að fjármálaráðherran hafi "viðurkennt" að Grikkir þyrftu á frekari lánveitingum("björgunarpökkum") að ræða. Fjármálaráðherrann sagði frá þessu í kosningaræðu eins og um væri að ræða hlut sem allir vissu. Almenningur, stjórnmálamenn og sérfræðingar vissu þetta allt. Þess vegna talaði ráðherrann um þetta eins og sjálfsagðan hlut. Skuldavandi Grikkland er mikilvægt mál og ekki verður komist hjá því að ræða á fjölmörgum stóðum ; í Grikklandi sjálfu, í öllum löndum ESB, hjá AGS og öðrum alþjóðlegum fjárálastofnunum. Kosningabaráttan Í Þýskalandi snýst ekki fyrst og fremst um Grikkland en það er örugglega óskemmtilegt fyrir Grikki að fylgjast með því öllu sem skrifað er og sagt um kreppuna í landinu. Erfiðast f öllu er að reyna sára fátækt sem hluti grísku þjóðarinnar hefur orðið að gera í kreppunni.

Norsku kosningarnar og lýðheilsan í heiminum.

Í hinu virta breska læknablaði The Lancet birtist nýlega grein um norsku kosningarnar. Höfundur greinarinnar er R Horton og hún birtist 24. 8. 2013. Í greininni er Noregi lýst sem stórveldi á sviði alþjóðlegrar lýðheilsu og á sviði alþjóðlegs samstarfs á sviði bættrar heilsugæslu. Sérstaklega er nefnt GAVI verkefnið. Noregur hefur ásamt Gates stofnuinni lagt þessu verkefni mikið lið. Norðmenn eru fámenn þjóð segir Horton en þeir leggja mikið af mörkum. Þessi stefna hefur verið mörkuð af ríkisstjórn Jens Stoltenberg. Stefna hægri flokkanna og sérstaklega Framfaraflokksins er allt önnur  segir Horton. Ef þessir flokkar mynda stjórn mun stuðningur Noregs við alþjóðleg lýðheilsuverkefni minnka og hlutverk Noregs á alþjóðavettvangi verða veigaminna og dragast saman.

Bloggfærslur 28. ágúst 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband