7.8.2013 | 14:11
Erlendir ferðamenn.
Árið 2000 komu hingað rúm 300 þúsund erlendir ferðamenn. Áratug síðar voru þeir 488 þúsund og í fyrra var talan 672 þúsund. Ferðamenn í skemmtiferðaskipum eru ekki í þessum tölum. Meðalvöxtur á tímabilinu er 7.2%. 84% allra erlendra ferðamanna koma með flugi. Ástæður komu þeirra hingað er annars vegar náttúra landsins og hins vegar saga og menning þjóðarinnar. Tekjur á hvern ferðamann hafa farið lækkandi og voru tæp 30 þúsund árið 2009. Nú er svo komið að vinsælir ferðamannastaðir eru undir álagi. Nauðsynleg uppbygging til að vernda staðina verður að eiga sér stað og hana verður að fjármagna með gjaldtöku af ferðamönnum. Fjölmargar leiðir koma til greina og fyrirmynda má víða leita. Náttúran er auðlind og ofnýting mun skaða og að lokum eyðileggja auðlindina. Mikilvæg stefnumótun er framundan.
7.8.2013 | 11:56
Væntingarvísitalan hækkar á Evrusvæðinu.
Samkvæmt væntingavísitölu IFO stofnunarinnar búast atvinnurekendur við batnandi ástandi á næstu 6 mánuðum. Í flestum löndum svæðisins er raunverulegt ástand óbreytt og slæmt. Í Frakklandi, á Spáni, Kýpur, Ítalíu er efnahagsástandið slæmt. Hægan bata má sjá á Írlandi, í Belgíu, Finnlandi, Hollandi og Slóveníu. Í Þýskalandi og Eistlandi er ástandið gott að mati sérfræðinga. Í Slóveníu og Kýpur er búist við að ástandið versni. Á evrusvæðinu var vöxtur frá apríl til júní á þessu ári en samdráttur hafði verið í eitt og hálft ár á undan. Stundum er stemmingin verri en ástandið gefur tilefni til stundum eins og núna er hún betri.
7.8.2013 | 08:36
Norðmenn taka afstöðu með ESB en gegn Færeyingum.
Ráðherra sjávarútvegsmála Lisbeth Berg-Hansen í stjórn Jens Stoltenberg hefur tekið eindregna afstöðu í málinu. Skoðun hennar er í samræmi við stefnu miklivægra hagsmunasamtaka í norskum sjávarútvegi. Í fréttatilkynningu ráðuneytisins frá 31. 7. er talað um skort á raunsæi hjá Færeyingum og einnig Íslendingum þegar kemur að makríl. Berg-Hansen segist ánægð með og sammála aðgerðum ESB.Við munum einnig setja á löndunarbann á síld frá Færeyjum ef þeir standa við ákvörðun sína um auknar veiðar. Ráðherrann segir að Norðmenn muni hindra útflutning á síld frá Færeyjum eftir að bann ESB hefur tekið gildi. Kannski utanríkisráðherra Íslands hafi skoðun á málinu og vilji tjá sig? Flokksbróðir hans sjávarútvegsráðherrann?
7.8.2013 | 08:01
Binni í Vinnslustöðinni sýpur hveljur.
Sigurgeir Brynjar framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar skrifar grein á visir.is í dag. Þar kemur hann með skýringar og útreikninga á nýlegum arðgreiðslum fyrirtækisins. Að mati Binna eru þær fullkomlega eðlilegar, dreifast á marga og koma öllu byggðarlaginu í Eyjum til góð. Gott hjá Binna! Allt í góðu lagi en umræða bara öfund og leiðindi og skilningsleysi á því að ofurskattar eru að sliga útgerðina í landinu!! Binni bendir á það að hluthafar eru 260 en hann gleymir því sem mikilvægast er að gera grein fyrir eignadreifingu. Ekki nema það sé svo að allir eigi nákvæmlega jafnt! Nú hefur Binni reiknað út að hlutafé í Vinnslustöðinni hafi gefið jafn mikinn arð og ríkistryggð skuldabréf ef reiknað er frá 2002. Sem sagt; áhættulaus fjárfesting er jafn góð og fjárfesting í Vinnslustöðunni. Inní þessum útreikningum er örugglega Hrunið en árið 2008 hvarf eigið fé sjávarútvegsins sem greinar nánast alveg. Verður þá ekki samanburður óheppilegur því varla telst hrun alls bankakerfisins og fjölmargra fyrirtækja verða eðlilegt árferði? Enda þótt Binni sé Snæfellingur virðist hann hafa gengið í flokk Eyjamann í Vinnslustöðunni í harðri baráttu við Snæfellinga í Vinnslustöðinni. Hann telur arðgreiðslur tryggja eignarhald Eyjamanna í VSV. Eða eins og stendur á öðrum stað ; við lifum í besta mögulega heimi allra heima.
Bloggfærslur 7. ágúst 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar