Hræsnarar gegn fávitum; NSA í þýskri kosningabaráttu.

Mikill æsingur er í umræðu um njósnir NSA og samstarf við BND(þýska leyniþjónustan) í kosningabaráttunni. Ásakanir ganga á víxl. Hægrimenn kalla jafnaðarmenn hræsnara vegna þess að samstarfið hafi hafist í valdatíð þeirra. Steinmeyer þingflokksformaður gegndi þá mikilvægu hlutverki. Atburðirnir 11.9. 2001 urðu til þess að samstarfið var aukið mikið. Jafnaðarmenn benda á að þetta segi ekkert um hvernig samstarf leyniþjónustanna sé í dag.  Nú hefur yfirmaður BND lýst því yfir að mikið magn gagna sé afhent NSA með reglulegu millibili og sjálfkrafa. Enn er ekki ljóst hvort NSA aflar sér upplýsinga um þýska ríkisborgara með beinum hætti. Það er heldur ekki ljóst hvernig NSA notar Prism til að fylgjast með tölvusamskiptum fjölþjóðlegra fyrirtækja. Það er ljóst að afhjúpun víðtækra njósna er rétt að hefjast. (Der Spiegel).

Sund og sundkennsla í Noregi.

Það sem af er þessu ári hafa 59 drukknað í Noregi. Árið 2012 drukknuðu 83. 17 drukknuðu í júlí á þessu ári. Samkvæmt könnun á vegum norska sundsambandsins getur um helmingur tíu ára barna synt 200 metra eða meira. 17% barna innflytjenda/minnihlutahópa geta ekki haldið sér á floti. Af þeim sem læra að synda í skólanum eru nemendur af asískum eða afrískum uppruna fleiri en hlutfallstala gefur tilefni til. Ástandið er mjög mismunandi eftir stöðum í Noregi. Í Ósló fá nemendur 10 tíma í sundkennslu. Flestir læra að synda af foreldrum , í sundfélögum eða á sundnámskeiðum. Nemendur í Drammen fá 14 tíma , nemar í Þrándheimi 24 tíma og í Tromsö fá nemar 45 tíma áður en þeir ljúka 7 bekk. Formaður sundsambandsins Per Rune Eknes telur að 45 tímar á ári ætti að nægja flestum. Ákveðinn tímafjöldi er ekki aðalatriði heldur hæfni og geta.( Klassekampen.no)

Gríska Hagstofan um atvinnumarkaðinn.


Gríska Hagstofan sendi frá sér fréttarilkynningu í dag. Í henni kemur fram að atvinnuleysið í mai hafi verið 26.7%. Tæp 1.4 milljónir manna eru án atvinnu en með atvinnu eru rúmar 3.6 milljónir.  Rúm 30 þúsund manns misstu atvinnu í apríl. Utan vinnumarkaðar eru 3.3 milljónir. Þeim fækkaði um 20 þúsund í apríl. Árið 2008 voru atvinnulausir tæp 360 þúsund. Tæp 32% kvenna eru nú atvinnulausar en 24.6% karla. Atvinnuleysi er langmest í aldurshópnum 15 til 24 ára eða 65%. Atvinnuleysi er mismunandi eftir landsvæðum. Á Krít er það 24.8%.

Fiskveiðar Færeyinga.

Vegna deilna Færeyinga við ESB og Norðmenn er rétt að huga að mikilvægi sjávarútvegs fyrir eyjaskeggja. Árið 2012 var útflutningur sjávarafurða 91% af heildarútflutningi. Í veiðum og vinnslu eru 2800 störf eru Færeyingar eru 48 þúsund talsins.  Í þjónustustörfum eru 55% af vinnumarkaði sem er talsvert minna en hér á landi. Makrílveiðar jukust afar mikið á árunum 2009 til 2011. Árin 2001 til 2007 voru kolmunaveiðar afar mikilveiðar en síðustu ár hefur veiðin minnkað afar mikið. Verðbólga er lítil í Færeyjum eða um 2%. Færeyska krónan er tengd dönsku krónunni sem er tengd evrunni (með vikmörkum) eins og kunnugt er.

John F Kennedy ; forseti og glaumgosi.

C Andersen hefur skrifað bók um síðustu ár Kennedy. Forsetinn var glæsilegur stjórnmálamaður sem hreif milljónir manna með sér. Kennedy fjölskyldan var mikilvægasta pólitíska fjölskylda USA. Forsetinn hefur orðið að goðsögn, tákni og nánast politískri helgimynd. En framhlið er eitt og bakhlið annað. Lengi hefur verið vitað um kvennamál forsetans. Áður en hann giftist Jacqueline hafði hann verið í sambandi við Joan Crawford, Audrey Hepburn og Zsa Zsa Gabor. Lítið breyttist eftir að John F gekk í hjónaband. Hann átti í löngu ástarsambandi við Mary P Mayer. Mjög þekkt er samband hans við Marilyn Monroe en hún virðist hafa trúað því að Kennedy ætlaði að skilja við Jacqueline og giftast henni. Kennedy var bakveikur og var með mikla verki. Læknir hans lét hann fá mikið af verkja-og deyfilyfjum en það kann að hafa haft áhrif á hegðun hans. Framhliðin var ást, tryggð, lífsgleði og hugrekki. En hún var tilbúningur eins og sagan um Kamelot og Arthúr konung. ( Bók C Andersen er fáanleg hjá Amazon. Stuðst við Spiegel).

Bloggfærslur 8. ágúst 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband