10.9.2013 | 21:56
Eþíópía og Ísland.
Nýlega var undirritaður samningur um verkefni á sviði jarðhitanýtingar í Eþíópíu. Margir aðilar koma að þessu verkefni : Ísland , Eþíópia, Norræni þróunarsjóðurinn og Alþjóða bankinn. Þáttur Íslands er að leggja fram hugvit og tækniþekkingu. Fyrsti hluti verkefnisins er að skilgreina líkleg svæði fyrir tilraunaboranir. Áætlað er að íbúar Eþíópíu séu 86 milljónir. Búseta manna í landinu á sér afar langa sögu og nær langt aftur í forsögu mannsins. Í landinu eru töluð yfir 80 mismunandi tungumál. Fyrstu almennu kosningarnar í landinu voru 1994 en kosningar þar hafa verið mjög umdeildar vegna gruns um kosningasvik. Núverandi forsætisráðherra landsins heitir H Desalegn. Landið er næstfjölmennasta ríki Afríku og svipað að stærð og Bolívía.
10.9.2013 | 18:27
Heimsmet sett á Alþingi.
Í ræðu sinni á Alþingi í dag tilkynnti forsætisráðherra að ríkisstjórnin myndi setja heimsmet á næstu mánuðum. Í undirbúningi eru róttækustu aðgerða stjórnvalda sem nokkurn tíma hafa verið framkvæmdar í veröldinni í þágu skuldsettra heimila. Þannig hljómuðu orð forsætisráðherra. Hér er greinilega stjórnmálamaður sem kann að hafa áhrif á væntingar almennings. Sett hefur verið fram kenning um byltingar. Þær verða þegar bilið milli væntinga um bættan hag og þess sem gerist verður óbærilegt. Vogun vinnur og vogun tapar. Hagstofan hefur nýlega sent frá sér Hagtíðindi þar sem kemur fram að skuldastaða heimilanna batnaði verulega á árunum 2010 til 2012. Heimilum með neikvæða eiginfjárstöðu hefur fækkað til muna. Í þessu ljósi má segja að mun auðveldara verði að setja heimsmetið. Í kosningabaráttunni lagði núverandi forsætisráðherra á það þunga áherslu að staðan í ríkisfjármálum væri mun verri en fegraðar tölur vinstri stjórnar sýndu. Fyrir nokkrum dögum sagði fosætisráðherra að staða ríkissjóðs væri svo góð að hann gæti hæglega greitt niður skuldir heimilanna og ætti nægan pening afgangs. Eitt er alveg ljóst. Forsætisráðherra hefur slegið alla út í hástemmdum lýsingum en í leiðinni sló hann alla út í mótsögnum.
10.9.2013 | 14:49
Hver er stefna Hoyre í Evrópumálum?
Hoyre vann glæstann sigur í norsku kosningunum. Flokkurinn mun leiða stjórnarmyndun og Erna Solberg verður næsti forsætisráðherra Noregs. Um stefnu flokksins í Evrópumálum má lesa á heimasíðu hans. Þar segir : náin samvinna og þátttaka er leið Evrópu út úr kreppunni. Noregur er hluti af pólitískum og efnahagslegum samruna. Hagsmunir Noregs eru þeir að taka virkan þátt í þessu ferli. Noregur er meira tengdur Evrópu en mörg lönd innan ESB. Noregur hefur innleitt 75% af ESB rétti án þess að hafa áhrif á ákvarðanir. (Sama á við um Ísland vel að merkja.) Samband Noregs við ESB einkennist af lýðræðishalla þar sem Noregur á ekki fulltrúa í stofnunum ESB. Þess vegna vill flokkurinn beita sér fyrir auknum samruna í Evrópu og einnig inngöngu Noregs í ESB. Ákvörðun um aðild yrði tekin í þjóðaratkvæðagreiðslu. (www.hoyre.no/politikk/hva mener hoyre om/utenriks og forsvar/europa eu/)
10.9.2013 | 11:21
Hver á að vera forgangsröðun stjórnvalda? Svar Kára Stefánssonar.
Kári Stefánsson er án efa einn þekktasti vísindamaður Íslendinga á sviði læknavísinda. Hann ritar nú grein í morgunblaðið og gagnrýnir harðlega forgangsröðun vinstri stjórnar í erfiðri glímu hennar við afleiðingar hrunsins. Kári segir nú svo komið að heilbrigðiskerfið geti ekki sinnt hlutverki sínu og karlar og konur sem hefðu átt að lifa lengur séu líklega farin að deyja þess vegna. -þetta er stór orð og þau geta ekki staðið svona án frekari rökstuðnings.- En hvað gerði ríkisstjórnin rangt? 1. Hún lauk við Hörpuna fögru, 2. Hún lét reisa stórt hús í Vatnajökulsþjóðgarði.3. Hún reisti stórt hús fyrir Náttúrufræðistofnun. 4. Hún reisti Hof á Akureyri. 5. Hún stóð fyrir Vaðlaheiðargöngum 6. Hún hugðist reisa hús fyrir norræn fræði.6.Hún styrkti uppbyggingu Kísilverksmiðju á Bakka. -Nú er eitt og annað við þetta að athuga. Um sum mál var samstaða með stjórn og stjórnarandstöðu. Sumar framkvæmdir eru aðrsamar og skila strax tekjum í ríkissjóð. Það sem ríkisstjórnin virðist vera að reyna er að koma hinum frægu hjólum atvinnulífsins af stað.- Framangreindar byggingar líkjast austurþýskum alþýðuhöllum að mati Kára. Þá hló ég upphátt enda þekki ég slíkar byggingar vegna langrar dvalar í Berlín. Kári virðist fremur svartsýnn að núvernadi ríkisstjórn skakklappist til að bæta stöðu heilbrigðismála. Hann hvetur stjórnina til að hækka skatta á mönnum eins og honum. Hann hefði getað hvatt ríkisstjórnina til að hækka veiðigjald á stórútgerðinni en nú er hverju mannsbarni ljóst að hún er vel aflögufær. Hann hefði einnig getað minnst á auðlegðarskattinn. Hann hefði einnig getað minnst á vaskinn og ferðaþjónustuna. Niðurskurður er erfiður en hann verður skelfilegur og afkáralegur er ríkisstjórn sker niður eigin skatttekjur.
10.9.2013 | 09:48
Af hverju töpuðu vinstri flokkarnir í Noregi?
Við fyrstu sýn virðist erfitt að skýra úrslitin. Efnahagslífið er í blóma og hagur ríkissjóðs afar góður og velferðarkerfið er sterkt. Skýringa verður að leita annað. Annars vegar; hvert stefnir norskt samfélag og hins vegar hvað gerðist eftir hryðjuverkin 22. 7. 2011. Stjórnarflokkarnir lögðu áherslu á það það þeir væru bestir í að stjórna landinu. þeir kynnu að láta hlutina ganga rétt fyrir sig og að hafa alla stjórnsýslu í lagi. En nú verða alls konar mistök. Á sjúkrahúsum jafnt sem öðrum stofnunum. Öll slík mistök gefa stjórnarandstöðunni tilefni til gagnrýni og árása. Stjórnarflokkarnir drógu ekki upp nógu skýra mynda af markmiðum sínum sem greindu þá frá stjórnarandstöðuflokkunum. Hitt atriðið er að efttir hryðjuverkin virtist Verkamanna ófær um að hefja politíska sókn. Vantrú á skrifræði hefur alltaf einkennt norsk stjórnmál og þessi óánægja fer greinilega vaxandi. Verkamannaflokkurinn hefur verið lengi við völd og hann tengist óhjákvæmilega þunglamalegu skrifræði hins opinbera. Jens Stoltenberg hefur sagt að þreyta hafi verið í stjórnarsamstarfinu og of margir stuðningsmenn flokks hans hefðu setið heima. Eftir sem áður er Verkamannaflokkurinn stærsti flokkur landsins. Hann hefur flesta þingmenn á Stórþinginu og var stærsti flokkurinn í nánast öllum kjördæmum. En í þetta skipti dugði það ekki.
10.9.2013 | 08:47
Hver er Erna Solberg?
Norski Hægri flokkurinn-Hoyre- vann frækilegan sigur í kosningunum og Erna Solberg mun nú mynda stjórn hægri-og miðflokka. Erna er fædd 21.2. 1961 í Bergen. Hún lagði stund á félagsfræði, stjórnmálafræði og hagfræði við Háskólann í Bergen. Aðeins 18 ára er hún kosin varafulltrúi í borgarstjórn Bergen. Hún var formaður sambands kvenna í Hoyre 1993 til 1994. Solberg var kosin á Stórþingið 1989. Á þingi var hún mjög vinnusöm , málefnaleg, kynnti sér málin til hlýtar og sýndi mikla flokkshollustu. Sem stjórnmálamaður er hún mjög fylgin sér og stundum kölluð Járn-Erna þó hún sjái sig sjálf ekki þannig. Eiginmaður hennar heitir Sindre Finnes en hann er hagfræðingur. Þau eiga tvö börn. Þau halda heimili bæði í Bergen og Oslo. Blogg Ernu Solberg má lesa hér : ernasolberg.wordpress.com. Upplýsingar um störf á Stórþinginu : www.stortinget.no
Bloggfærslur 10. september 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar