11.9.2013 | 20:01
Herra þingmaður og frú ráðherra.
Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata vill breyta þingvenjum. Í dag tók hann eitt lítið skref. Hann ætlar ekki að nota háttvirtur og hæstvirtur í ávörpum. Í stað þess mun hann nota herra og frú. Hann vill sýna kurteisi en virðingu verða menn að ávinna sér. Allt er þetta rétt og hefði mátt ætla að þingheimur tæki þessum tillögum fangandi. Svo var þó ekki. Ragnheiður Ríkharðsdóttir formaður þingsflokks Sjálfstæðisflokksins sté í pontu og sagði að hefðbundin ávörp hefðu tíðkast í áratuganna löngu rás (!) og það væri ekki í valdi eins þingmanns að breyta svo fastri venju(!). Um það að virðing væri áunnin var hún væri hún hins vegar sammála Jóni Þór. Starfandi þingforseti áminnti Jón Þór og sagði að hin mjög svo fasta þingvenja hefði stoð í lögum um þingsköp. Í nefndum lögum stendur ýmislegt sem ekki virðist vefjast fyrir þingmönnum. Í 65. grein segir að þingmönnum sé skylt að sækja þingfundi nema nauðsyn banni. Ef menn færu eftir þessu hefði enginn þingmaður þurft að kvarta yfir því að hann talaði fyrir tómum þingsal. Enginn þingmaður hefði þurft að auglýsa sérstaklega eftir því að ráðherra væri viðstaddur umræður. Ofuráhersla á form táknar oft að innihald er rýrt. Það að ríghalda í innihaldslaust form veitir hugsanlega einhverjum öryggi á miklum óvissutímum. Við vonum að Jón Þór komi með fleiri tillögur til úrbóta á stirnuðum föstum venjum Alþingis.
11.9.2013 | 16:34
Lífeyrissjóðir öflugir á hlutafjármarkaði.
Líklega eiga lífeyrissjóðirnir 32% af markaðsvirði útgefins hlutafjár. Þetta má áætla út frá upplýsingum sem Kauphöllin lætur frá sér fara. Í byrjun þessa mánaðar nam markaðsvirði eigna lífeyrissjóðanna 133 milljörðum króna. Af einstökum sjóðum er Lífeyrissjóður verslunarmanna atkvæðamestur og nam eign hans 41 milljarði. Eign LSR nam 32 milljörðum og Gildi á 21 milljarð. Lífeyrissjóðirnir eiga stóran hlut í nánast öllum félögum sem skráð eru í Kauphöllinni. Sem dæmi má nefna að lífeyrissjóðirnir eiga um helmings hlut í Icelandair og Vodafon. Lífeyrissjóðirnir eru virkir í viðskiptum og þá bæði sem kaupendur og seljendur hlutabréfa.
11.9.2013 | 13:26
Norska Alþýðusambandið setur fram kröfur til Ernu Solberg.
Gerd Kristiansen formaður LO vill fá skýr svör fá Ernu Solberg um stefnuna í efnahagsmálum. Forystumenn samtakanna vilja fá skýr svör vegna þess að mikið er í húfi. Munu hægriflokkarnir setja meira af olíugróðanum inn í hagkerfið? Það myndi leiða til þenslu og skattalækkanir myndu litlu breyta. Ríkisstjórnin verður að tryggja að nægar greiðslur renni inn í lífeyrissjóðskerfið. LO hefur óskað Solberg til hamningu og óskað eftir góðu og ábyrgu samstarfi. Náið samráð er milli samtaka atvinnurrekenda , launafólks og ríkisstjórnar á hverjum tíma. Kristiansen er þeirrar skoðunar að nú þegar Verkamannaflokkurinn er utanstjórnar muni samráðið og áhrif LO ekki breytast. LO eru stærstu samtök launafólks í landinu. Félagar eru 900 þúsund en það er helmingur þeirra sem eru innan samtaka launafólks í landinu. Mjög náið samstarf er milli Verkamannaflokksins og LO. Lo hefur stutt flokkinn með verulegum fjárframlögum.
11.9.2013 | 11:56
Skuldir, eignir og tekjur heimila; að túlka tölur.
Nýlega birtust í fjölmiðlum upplýsingar frá Hagstofu Íslands um skuldastöðu heimila. Samkvæmt þeim hafði skuldastaðan batnað á árunum 2010 til 2012. Fjöldi heimila með neikvæða eiginfjárstöðu hafði minnkað. Tölur eru flóknar og þær þarf að túlka og setja í samhengi. Heimili með neikvæða eiginfjárstöðu getur horfið af listanum af mismunandi ástæðum. Skuldir hafa verið greiddar niður eða felldar niður eða markaðsvirði eignarinnar hefur vaxið. Einnig er mögulegt að fasteignin hafi farið á nauðungaruppboð eða bankinn tekið hana til sín. Til þess að fá vit í slíkar tölur verða allar slíkar upplýsingar að liggja fyrir. Ólafur Margeirsson hagfræðingur hefur bent á aðferðafræðilegt vandamál. Hjá Hagstofunni eru tölur um skuldir, eignir, og ráðstöfunartekjur flokkaðar í tíundir. Nú er ekki víst að sama heimili sé í sömu tíund í öllum flokkum. Að öðru jöfnu vill Ólafur gera ráð fyrir því. Vandinn við þetta að þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á tengslum tekna og eignamyndunar sýndu lítil tengsl. Allir þekkja dæmi um að ekkert samhengi er á milli uppgefinna tekna og einkaneyslu. Samkvæmt tölum Hagstofunnar fækkaði fjölda heimila með neikvæða eiginfjárstöðu um 7000 á árunum 2010 til 2012. Það er alveg ljóst að Íbúðalánasjóður og fjármálastofnanir hafa ekki tekið allan þennan fjölda til sín. Skuldavandi og greiðsluvandi eru sitt hvað. Þau 20% sem hafa hæstar tekjur hafa 48% allra tekna en þau 20% sem hafa minnstar tekjur hafa 4% allra tekna. Vaxtagjöld eru hæst hjá þeim sem hafa hæstar ráðstöfunartekjur eða ca. 27% af ráðstöfunartekjum. Hjá þeirri tíund sem hefur lægstar tekjur eru vaxtagjöld um 10% af ráðstöfunartekjum. Almennt er það þannig að tekjulægstu heimilin eru í mestum greiðsluvanda. Tekjuhæsta tíundin skuldar mest og þessi hópur mun hagsnast mest á væntanlegum aðgerðum ríkisstjórnarinnar ef þær verða í formi flatrar niðurfellingar/leiðréttingar á skuldum. Enn er mögulegt að snúa frá þeirri ranglátu stefnu.
Bloggfærslur 11. september 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar