14.9.2013 | 11:19
Kína er stærri en USA í iðnframleiðslu.
Eftir alþjóðlegu fjármálakreppuna hefur staðan í hagkerfi heimsins breyst verulega. Árið 2010 fór Kína fram úr USA í iðnframleiðslu. Núna er forskot Kína 20% og fer vaxandi. Samkvæmt gögnum SÞ var iðnframleiðsla Kína 62% af framleiðslu USA árið 2007. Vöxtur iðnframleiðlsu í Kína á tímabilinu 1978 til 2010 er mun hraðari en vöxtur í USA. Árið 2011 var iðnframleiðsla í Kína 235% af iðnframleiðslu Japans og 345% af iðnframleiðslu Þýskalands. Fyrir fjármálakreppu var Kína nefnd verksmiðja heimsins og nafnbótin er meira verðskulduð núna. Á aðeins 6 ára-2007-2013- tímabili hefur Kína tekið risastökk sama á hvaða mælikvarða mælt er. Í iðnframleiðslu ESB og Japans er samdráttur og tiltöluleg stöðnun í USA. Bilið í framleiðni milli Kína og annarra landa fer hratt minnkandi. Kínverskar vörur hafa haldið samkeppnishæfni þrátt fyrir að gjaldmiðilinn hafi styrkst. Í USA hefur engin endurnýjun átt sér stað í iðnaði og er það í samræmi við spár Goldman Sachs og Boston Counsulting Group. Þær breytingar sem orðið hafa í iðnframleiðslu heimsins eru söguleg tímamót. (Socialist Economic Bulletin.)
14.9.2013 | 09:28
Ríki maðurinn nær sér á strik; mat Paul Krugman.
P Krugman ritar í bloggi sínu vaxandi ójöfnuð í bandarísku samfélagi og hvernig hann kemur í veg fyrir að þjóðfélagið lifi samkvæmt helstu gildum sínum. Samkvæmt hugmyndum um réttlæti eiga allir að vera metnir og komast áfram vegna hæfileika sinna. Réttlætið er í því fólgið að allir keppi á sama grunni. Efnahagslegur, félagslegur og menningarlegur ójöfnuður kemur í veg fyrir þetta. Það hafa ekki allir jafna möguleika til að komast í bestu háskólana svo dæmi sér tekið. Í Harward Business School eru skörp skil á milli venjulegra nemenda og þeirra sem koma úr afar auðugum fjölskyldum. Í fjármálakreppunni minnkuðu tekjur þeirra sem mestar höfðu nefna má fjármagnstekjur. Eftir kreppuna í hægum bata hefur ríkasta 1% verið sigri hrósandi. 95% af efnahagsbatanum frá 2009 hafa runnið í þeirra vasa. 60% af batanum fór til þeirra 0.1% sem mestar tekjur hafa. Tekjudreifingin verður sífellt ójafnari. Mikill meirihluti bandaríkjamanna lifa enn í kreppusamfélagi en það gera 1% svo sannarlega ekki. Það er öfugsnúið en stór hluti þessara tekna kemur úr fjármálageiranum þeim geira sem ríkisvaldið varð að koma til aðstoðar með miklum fjármunum. Skattpeningi frá almenningi. Þessi þróun grefur undan grunngildum lýðræðisins. Jafn réttur til náms víkur fyrir forréttindum. Virkt lýðræði víkur fyrir valdi peninganna. Krugman segir að við þessari þróun verði að bregðast en ekki sé hægt að endurtaka New Deal. Hann nefnir tillögu frá Bill de Blasio sem gæti orðið borgarstjóri New York. Hann vill að borgin útvegi öllum börnum vist á leikskóla. Hann vill fjármagna þetta með því að setja sérstakan skatt á tekjur yfir 500000 dollara. (P Krugman : Rich Mans Recovery í NYT)--Eru aðstæður svipaðar á Íslandi og í USA? Eru bankamenn hér að fá umframkjarabætur? Hverjir eru beinlínis að hagnast á ástandinu, t.d. vegna gjaldeyrishafta?
14.9.2013 | 08:33
Er umferðarmenningin að batna?
Umræða um umferðina er á fremur neikvæðum nótum í fjölmiðlum og samtölum fólks. Talað er um hraðakstur, glannalegar framúrkeyrslur, ofsaakstur ungs fólks og almennt tillitsleysi. Eftirlit lögreglu hefur minnkað mikið eftir hrun en umferð hefu einnig minnkað mikið. Þeir staðir á landinu þar sem alvarlegustu slysin verða eru vel þekktir en enn er beðið eftir úrbótum á nokkrum stöðum. En það er ekki bundið við Ísland að kvarta yfir umferðinni. Það þekkist víðar. En hvað segja tölurnar? Fjöldi banaslysa er svipaður á öllum Norðurlöndunum. 2012 eru þau fæst á Íslandi þegar miðað er við slys á hverja 100000 íbúa. Fyrri hluta þessa árs urðu samtals 513 slys og óhöpp hér á landi. Óhöpp án meiðsla urðu 442 en minniháttar slys 57. Alvarleg slys hafa orðið hafa orðið 13 og 7 banaslys. Allt árið 2012 létust 9 manns í umferðarslysum. Á árunum 2003 til 2012 létust 12 karlar að meðaltali á hverju ári. Sambærileg tala fyrir konur var 4.9 .
Bloggfærslur 14. september 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar