19.9.2013 | 21:29
Glæpir í Suður Afríku.
Íbúar eru nú tæplega 53 milljónir og glæpatíðni er óvenjulega há. Hér eru hráar tölur sem sýna við hvað er að eiga. Á síðastliðnu ári voru morð 16259. Tilraunir til morðs voru 16363. Kynferðisglæpir voru 66387. Líkamsárásir voru 185893. Hættuleg rán voru 105888. Venjuleg rán voru 53540. Á hverjum degi eru að meðaltali framin 45 morð í landinu. (sjá heimasíðu lögreglunnar í Suður Afríku.)
19.9.2013 | 19:43
Hvað er Alvogen?
Lyfjafyrirtækið hóf starfsemi sína hér á landi 2010. Forstjóri og formaður stjórnar er Róbert Wessman. Hjá samstæðunni starfa um 1800 starfsmenn í 30 löndum. Í mai síðastliðnum voru 30 starfsmenn starfandi hér á landi. Þeim mun hafa fjölgað síðan en stuttar fréttatilkynningar hafa birst í blöðum um mannaráðningar. Í apríl kom í fréttum að Alvogen hyggðist byggja hátæknisetur annað hvort hér á landi eða á Möltu. Ætlunin er að framleiða líftæknilyf. Einkaleyfaumhverfi Möltu og Íslands leyfir þróun og framleiðslu lyfja áður en einkaleyfi þeirra rennur út. Á heimasíðu fyrirtækisins má lesa stutta kynningu á Róbert Wessman. Hann mun hafa starfað hjá Samskipum, Delta og Actavis. Hann er álitinn vera metnaðarfullur og fljóthuga. Erlendir háskólar hafa birt rannsóknir á afrekum Róberts í viðskiptum.Alvogen hefur nú ákveðið að byggja hátæknisetrið í Reykjavík eins og komið hefur fram í fréttum. Um 200 starfsmenn munu starfa í setrinu.
19.9.2013 | 14:27
Írland á leið úr kreppunni.
Nýjar tölur sýna aukningu í útflutningi og aukningu í einkaneyslu. Verg landsframleiðsla jókst um 0.4% á öðrum ársfjórðungi 2013 miðað við fyrri ársfjórðung. Vöxturinn er minni en stjórnvöld höfðu áætlað. Það mun takmarka möguleikana til hagræðingar og niðurskurðar í ríkisrekstri. Hagkerfið virðist vera að ná einhverjum stöðugleika þrátt fyrir að staðan á vinnumarkaði batni ekki. Undanfarna þrjá ársfjórðunga hafði hagkerfið dregist saman. Útflutningur jókst um 4.3% á öðrum ársfjórðungi og einkaneysla um 0.7%. Það er ljóst að næstu mánuðir munu einkennast af togstreitu milli lánadrottna Írlands og stjórnvalda um svigrúmið til niðurskurðar. AGS og ESB munu þrýsta á írsk stjórnvöld.
19.9.2013 | 12:24
Samar kæra sænska ríkið.
Samaráðið og sveitarfélagið Vapsten í Vesterbotten hafa kært sænska ríkið fyrir þeirri nefnd SÞ sem fjallar um kynþáttamismunun. Í kærunni er þess krafist að hætt verði við framkvæmdir í nikkelnámu í Stouroman sýslu. Þessar framkvæmdir munu eyðileggja möguleika Sama að vera með hreindýr á svæðinu. Umrædd nefnd SÞ hefur gagnrýnt stefnu sænska ríkisins í málefnum Sama margsinnis á undanförnum árum. Til árekstra hefur komið á fleiri svæðum þar sem Samar telja gengið á rétt sinn. Í Kvalsund í Finnmörku var hafinn undirbúningur fyrir byggingu vindmylla á svæði sem Samar höfðu nýtt sem beitarsvæði fyrir hreindýr.
19.9.2013 | 11:06
Íslenskur sjávarútvegur. Staða og horfur 2013.
Rétt er að minna á að sjávarafurðir eru mikilvægur hluti af fæðu landsmanna endaþótt greinin sé nánast hreinræktuð útflutningsgrein. Neysla á íbúa á ári er 88 kíló á íbúa á ári. 12% starfa á landsbyggðinni eru í sjávarútvegi en 1.5% starfa á höfuðborgarsvæðinu. Ebitda framlegð fyrirtækja í greininni hefur aldrei í sögunni verið meiri en 2011 en aukning frá fyrra ári var 26%. Síðustu ár hefur skuldetning fyrirtækja dregist hratt saman. Verðmæti útfluttra sjávarafurða nam 269 milljörðum króna 2012. Undanfarin ár hefur verið nokkur vöxtur í fiskeldi. Evrópa er mikilvægasta markaðsvæði íslenskra sjávarafurða. Mest er flutt til Bretlands, Noregs og Spánar. 78% starfsfólks í sjávarútvegi eru karlar en alls störfuðu í greininni 9000 árið 2012. Hér er ekki tekið tillit til afleiddra starfa. 50 stærstu útgerðirnar ráða yfir 86% af úthlutuðum kvóta. Hlutur stærstu útgerða hefur farið vaxandi undanfarin ár. Fjárfestingar eru litlar í greininni. Sem hlutfall af framlegð voru fjárfestingar 9% árið 2011 en áratuginn á undann var meðaltalið 26%. Íslenskum fiskiskipum er að fækka. Árið 2002 voru skráð skip 1935 en árið 2012 voru þau 1690 eða fækkun um 13%. Verðmæti útfluttra þorskafurða voru 83 milljarðar 2012. Nokkrar blikur eru á lofti í íslenskum sjávarútvegi. Verðlag á fiskafurðum í Evrópu, einkum Suður Evrópu fer lækkandi. Harðar deilur hafa staðið um fiskveiðistjórnun í áratugi. Út frá heildarhagsmunum þjóðfélagsins má segja að það sé óheppilegt. Sum stór sjávarútvegsfyrirtæki hafa fjárfest í öðrum og óskildum greinum. Stundum er rreynt að tryggja að allir þættir virðiskeðjunnar séu á einni hendi. Stundum er reynt að hafa áhrif á stjórnmálaumræðuna sjálfa. Það er gert með kaupum á fjölmiðlum. Fyrirtæki eiga að hafa ríka samfélagslega ábyrgð en eiga ekki að líta á hlutverk sitt út frá þröngum efnahagslegum einkahagsmunum.
Bloggfærslur 19. september 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar