2.9.2013 | 17:21
Verkfall á skyndibitastöðum og konur.
Í mörgum borgum USA er starfsfólk skyndibitastaða í verkfalli eins og bloggari hefur áður skrifað um. Aðalkrafan er að hækka lágmarkslaun úr 7.25 dollurum á tímann í 15 dollara á tímann. Verkfall þetta er stærsta verkfall í þjónustugreinum í USA og það er svar við þeirri þróun að hagvöxtur undanfarinna ára skilað sér til stórfyrirtækjanna en ekki í vasa launafólks. Verkfallið sýnir hversu mikilvægar konur eru fyrir verkalýðshreyfinguna og launabaráttuna. 32% allra á vinnumarkaði eru dökkir á hörund en 42% þeirra sem eru á lægstu launum tilheyra þessum hópi. Svartar konur eru meirihluti starfsfólks á skyndibitastöðum. En launin hrökkva ekki til. Meir en 13% starfsfólks fær opinbera aðstoð eða matarmiða. Konur eru tveir þriðju starfsmanna á skyndibitastöðum og fjórðungur starfsfólks á börn. Það eru því skattgreiðendur sem greiða kostnaðinn af miklum hagnaði fyrirtækja eins og McDonalds. Það eru konur sem bera hitann og þungan af kjarabaráttunni.
2.9.2013 | 15:03
Grikkland; kreppa í 20 ár?
Gríska vinnumálastofnunin spáir því í nýrri rannsókn að atvinnuleysið verði mjög mikið næstu tvo áratugina. Atvinnuleysið mælist núna 27.6% og fyrst eftir tvo áratugi verður það komið niður fyrir 10%. Kaupmáttur hefur hrunið og er nú eins og hann var fyrir 14 árum. Vegna niðurskurðarstefnu stjórnvalda hafa grískir launþegar tapað sem nemur 41 milljarði evra á síðastliðnum fjórum árum. Á þessu ári er reiknað með samdrætti sem nemur fjórum prósentum. Það væri þá sjötta samdráttarárið í röð. Árið 2014 er gert ráð fyrir vexti um 0.1 til 0.4 %. Fjármálaráðherra Þýskalands telur að í lok árs 2014 verði að veita grikkjum lán sem nemur 4.5 milljörðum evra. Gríski fjármálaráðherrann er bjartsýnn og telur að endurskipulagning ríkisfjármála gangi vel. Á þessu ári séu þjóðartekjur hærri en þjóðarútgjöld. Á öllum sviðum í ríkisrekstrinum er sparað til hins ýtrasta og eingöngu greitt það sem nauðsynlegt er.
2.9.2013 | 11:28
Verð á þorskafurðum fer lækkandi í Evrópu.
Á þessu ári hefur framboð aukist um 40% miðað við fisk úr sjó. Samfara þessu hefur verð lækkað verulega eða um 20%. Gífurlega mikil þorskveiði er í Barentshafi og kreppan í Suður Evrópu minnkar eftirspurn. Utflutningur héðan hefur aukist en mest í ferskum flökum. Á þessu ári hefur útflutningur frá Noregi aukist mikið en stærstur hluti hans er saltfiskur. Það sem af er árinu hefur magn útflutnings héðan aukist um 17% en verð lækkað um 17.3%. Magnaukning á ferskum flökum er nálægt 91% og fer mest til Bretlands. Verð á flöttum saltfiski er 22% lægra en var í fyrra en hann er fluttur út til Spánar, Frakklands og Bretlands. 25% þorskafurða fara út sem fersk flök og bitar en 34% sem fryst flök og bitar. 29% aflans fer í salt. (kvótinn.is)
2.9.2013 | 10:44
Utangarðsfólk í Reykjavík.
Árið 2009 var gerð rannsókn á utangarðsfólki. Þá kom í ljós að stór hluti hópsins átti við áfengis- og vímuefnavanda að glíma. Félagsleg tengsl einstaklinga voru yfirleitt slæm. Um helmingur átti við geðræn veikindi að stríða og 70% voru með líkamlegan sjúkdóm. Meðalaldur var 41 ár og 25% hópsins voru konur. 37% hópsins luku eingöngu grunnskólaprófi og 10 % luku ekki grunnskólanámi. Rúmlega fjórðungur hópsins hafði lokið iðnnámi eða starfstengdu námi. 55% lifðu af örorkubótum og 25% til viðbótar fengu fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Um helmingur hópsins hafði ekkert samband við upprunafjölskyldu og 15% til viðbótar sögðu sambandið vera lélegt. Samband kvennanna í hópnum við sína upprunafjölskyldu virtist vera betra en karlanna. Helmingur hópsins átti barn eða börn. Tæplega helmingur hafði verið greindur með einn eða fleiri geðsjúkdóm og flestir með kvíða og geðhvarfasýki. 73% höfðu einhvern tíma hugleitt sjálfsvíg og 32% gert tilraun til sjálfsvígs. 85% notuðu áfengi að staðaldri. Sumarið 2009 voru 100 einstaklingar sem töldust heimilislausir eða utangarðs samkvæmt skilgreiningu. 5 voru af erlendum uppruna. Rúm 60% hópsins höfðu verið heimilislaus í tvö ár eða meira. Í mars síðastliðnum voru heimilislausir 179 samkvæmt úttekt Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
2.9.2013 | 08:59
Skuldir og eignir einstaklinga 2012.
Hagstofan hefur gefið út rit um skuldir, eignir og eiginfjárstöðu. Skuldir einstaklingar voru 1.922 miljarðar króna í árslok 2012. Fasteignaskuldir voru 63% heildarskulda. Fjölskyldur á aldrinum 40 til 49 ára skulduðu mest eða 29% af heildarskuldum. Skuldlausar fjölskydlur voru rúm 34 þúsund eða 18% allra fjölskyldna.70% allra fjölskyldna áttu 8.8 milljónir eða minna í eigið fé. Hæsti tekjuhópurinn hafði að meðaltali 19 milljónir í heildarárstekjur, skuldaði að meðaltali 24.8 milljónir og átti eignir að meðaltali 63.5 milljónir. Hæsta skuldatíundin skuldaði 31.7 milljón eða meira og samanlagðar skuldir þeirra voru 41% allra skulda. Heildareignir fjölskyldna í árslok 2012 voru 3.969 milljarðar króna. Þar af voru fasteingir 71%. Á árinu var fasteignamat hækkað um 7.4%. Peningaleg eign var 953 milljarðar króna.Verðbréf voru 38% af þessum eignum. 30% fjölskyldna eru með neikvæða eiginfjárstöðu og sú tala fer lækkandi. Heildartekjur einstaklinga á árinu 2012 voru 1.083 milljarðar króna. Samanlagðar ráðstöfunartekjur voru 842 milljarðar og höfðu hækkað um tæp 6% frá fyrra ári. (Hagtíðindi 30. ágúst 2013).
2.9.2013 | 08:04
Aflamark fyrir næsta fiskveiðiár; 15 stærstu fá 39% af aflamarki.
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki. Ítarlegar upplýsingar ná fá á heimasíðu stofunnar. Nú úthlutað 381.431 tonni í þorskígildum. Úthlutun í þorski hækkar um 17 þúsund tonn og verður nú 171 þúsund tonn.Nýjar kvótategundir eru blálanga, gulllax og litli karfi. Samtals 627 skip fá úthlutað aflamarki en lögaðilar eru 488. Brimnes RE 27 fær úthlutað 2.5% af úthlutuðum þorskígildum. 50 stærstu fyrirtækin fá 86% af öllu aflamarki. Þrjár stærstu heimahafnir eru Reykjavík, Grindavík og Vestmannaeyjar. Þau fyrirtæki sem mest fá eru Fisk Seafood hf, Brim hf, Vinnslustöðin hf, Vísir hf, Rammi hf, Skinney- Þinganes hf, Gunnvör hf, Nesfiskur hf, Síldarvinnsla hf , Ísfélag Vestmannaeyja hf, Ögur hf, og Gjögur ehf.
Bloggfærslur 2. september 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar