20.9.2013 | 21:05
Forsetinn á Norðurslóðum.
Forseti Íslands var nýlega í viðtali hjá Bloomberg fréttastofunni. Tveir fréttamenn spurðu afar kurteislegra spurninga. Flestar tengdust þær Norðurslóðum og afstöðu Íslands(eða Forsetans) til málefna Norðurslóða. Forsetinn lýsti breyttri heimsmynd í kjölfar hlýnunar jarðar. Stór svæði á Norðurslóðum verða nú aðgengileg og nýjar siglingaleiðir opnast. það gjörbreytir siglingum milli heimsála ef Norðurleiðin er opin þrjá til fjóra mánuði á ári. Norðurslóðir eru mjög ríkar að náttúruauðlindum. Forsetinn var spurður um afstöðu hans(?) til Kína. Það er eðlilegt að Kína hafi áheyrnarfulltrúa hjá Norðurskautaráðinu. Það eru mikilvægir efnahagslegir hagsmunir þeirra. Fjarlægð frá svæðinu skiptir ekki máli. Kínverjar hafa áhuga á hafnaraðstöðu(?) á Íslandi sagði forsetinn. Mikilvægt væri einnig að hafa gott samstarf við Rússa. Fréttamaðurinn vildi vita hvaða þjóðum Íslendingar tengdust helst. Fyrst nefndi forsetinn Bandaríkin sem mikilvægt vina-og bandalagsríki, en einnig Norðurlönd, England og Þýskaland. Forsetinn taldi að hagsmunir Noregs, Grænlands og Íslands væru að standa utan ESB. Hann var ekki beðinn um að útskýra það frekar. Að lokum var fjallað um bankahrun, deilur við Bretland, greiðslur til sparifjárreigenda og önnur slík smámál.
20.9.2013 | 16:18
Mugabe og barnaníðingarnir.
Samkvæmt fréttum vill forseti Zimbabwe láta vana barnaníðinga. Barnaníð virðist vera plága í landinu.Fyrri hluta þessa árs var tilkynnt um 1600 nauðganir á börnum til lögreglu. Einhverjir virðast trúa því að þeir læknist af hiv-smiti með því að nauðga barni. Landið hét áður Rhodesia og var undir stjórn lítils hóps hvítra manna. Mugabe náði völdum og flokkur hans Zanu-pf stjórnaði landinu einn. 2008 voru haldnar kosningar. Eftir kosningarnar var flokkurinn ekki einráður. Landinu var sett ný stjórnarskrá og kosið á þessu ári. Efnahagur landsins er nánast í rúst. Atvinnuleysi og fátækt yfirþyrmandi. Náttúra landsins er mikilfengleg. Viktoríufossarnir eru eitt af mestu náttúrundrum jarðarinnar. Fílahjarðir lifa á víðáttumiklum sléttum. Mugabe tók nánast allt land af hvítu landeigendunum. Því fylgdi snarminnkandi framleiðsla, óðaverðbólga og skortur á eldsneyti og matvælum. Í kosningum á þessu vann flokkur Mugabe sigur. Andstæðingar hans töldu kosningarnar farsa.
20.9.2013 | 14:21
Hver verða úrslit í þýsku kosningunum?
Á sunnudag verður kosið í Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Á kjörskrá eru rúmar 60 milljónir manna. Kosningaþátttaka verður líklega nálægt 70% og "flokkur" þeirra sem mæta ekki á kjörstað er því næst stærsti flokkurinn. Samkvæmt nýjustu könnunum sjónvarpsstöðvarinnar ZDF munu hægri flokkarnir fá 40% atkvæða. Jafnaðarmenn fá 27% og Frjálsir Demókratar 5.5%. Die Linke sem er flokkur vinstra megin við Jafnaðarmenn mun fá 8.5% og Græningjar 9%. AfD sem er flokkur andstæðinga evru mun fá 4%. Skekkjumörk eru í slíkum könnunum. Þau er t.d. 3% hjá hægri flokkunum. Nokkur óvissa er um kosningaþátttöku. Einnig hefur verið nokkur umræða um taktíska kosningu hjá hægri mönnum. Hluti kjósenda kægri flokkanna myndi þá færa sig yfir til Frjálsra demókrata. Í þessu ljósi eru úrslitin óráðin og talsvert spennandi. Afar ólíklegt er að Jafnaðarmenn og Græningjar nái meirihluta en óvíst er einnig hvort Frjálsir demókratar nái inná þing. 66% allra með kosningarétt segjast ákveðnir hvaða flokk þeir ætla að kjósa. Tveir möguleikar eru helst í stöðunni; annars vegar áframhaldandi hægri-miðju stjórn og hins vegar samsteypustjórn hægri flokkanna og jafnaðarmanna.
20.9.2013 | 09:52
Samkeppnishæfi Íslands og Samtök iðnaðarins.
Nýlega var í fréttum að samkvæmt könnun Alþjóðaefnahagsráðsins um samkeppnishæfni þjóða væri Ísland í 31. sæti. Fyrir hrun var Ísland í 20. sæti þannig að samkeppnishæfnin hefur versnað verulega. Ísland er einu sæti neðar en Púertó Ríkó. Aðrar Norðurlandaþjóðir eru mjög ofarlega á þessum lista. Í könnun ráðsins kom fram að fjármálamarkaður væri veikur hér á landi. Gjaldeyrishöft gerðu öll viðskipti erfiðari og regluverk um erlenda fjárfestingu væri óljóst og flókið. Landbúnaðarkerfið væri of dýrt og tollar háir og óskilvirkir. Iðnaðar-og viðskiptaráðherra taldi álit erlendu skammstöfunarinnar áhyyggjuefni. Nýlega ritaði formaður Samtaka iðnaðarins grein og segja má að hún sé nokkurs konar framhald af könnun ráðsins. Þar er fjallað um tækni-og hugverkaiðnað hér á landi en hann hefur vaxið mjög hratt undanfarin ár. Þessi iðnaður byggir fyrst og fremst á mannauði, þekkingu, menntun og alþjóðlegum markaðstengslum. Áhyggjuefnið er að fjöldi fyrirtækja og fólks í þessum greinum hafa farið úr landi. Mörg nálæg lönd leggja mikla áherslu á að fá til sín sprotafyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki og þetta er alþjóðlega umhverfið sem Ísland er að keppa í. Ísland verður að vera án gjaldeyrishafta og hafa gjaldmiðil sem er gjaldgengur á alþjóðlegum gjaldeyrismarkaði. "krónuvinir" sem lifa í þokuheimi þjóðrembu skilja þetta auðvitað ekki. Hinn eiginlegi vandi fyrir þjóðina eru völd og áhrif "krónuvina".
20.9.2013 | 07:18
Skattundanskot leigusala?
Leigumarkaður er mikið til umræðu vegna þess ástands sem þar ríkir. Leigjendum hefur fjölgað ört á undanförnum árum. Nú eru um 30% heimila leigjendur. Leigutaka og leigusala eru orðin umfangsmikil viðskipti. Verð á leiguhúsnæði er afar hátt almennt séð en sérstaklega hátt í ákveðnum hverfum Reykjavíkur. Það hefur verið landlægt á Íslandi að leigutekjur væru ekki gefnar upp til skatts. Ríkisskattstjóri segir grun um töluverð undanskot. Embættis síns vegna tekur hann mjög varlega til orða. Leigumarkaðurinn stækkar og vex að mikilvægi. Styrkja verður rétt leigjenda þannig að hann verði eins og hann er bestur svo sem í Þýskalandi. Öll viðskipti á leigumarkaði eiga að vera samningsbundin. Auðvitað er eðlilegt að húseigendur fái arð af eign sinni. Það á ekki að gerast með ólöglegum viðskiptum.
Bloggfærslur 20. september 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar